Fréttablaðið - 14.01.2023, Síða 17
bregðist við á annan hátt. „Sálfræð
ingar segja að hjá þessari þriðju
týpu, þeim sem gera eitthvað í mál
unum, sem ég tilheyri víst, vinni
heilinn betur úr þessum atburðum.
Hann setur það ljóta í aftursætið og
það góða í framsætið,“ segir hann
og bætir við: „Þó að ég hafi séð dáið
fólk, séð árásarmanninn og allan
þennan viðbjóð, þá fer það að ég
hafi bjargað þessari konu yfir allt
hitt ljóta.“
Ánægður að sjá hana á lífi
„Ef þessi kona mun lifa af einungis
vegna þess sem við gerðum, þá verð
ég kannski ánægður með það sem
ég gerði,“ sagði Snorri nokkrum
dögum eftir árásina.
Anja Rune, konan sem hann kom
til bjargar, slasaðist mikið í árásinni.
Hún var skotin tvisvar, í öxl og læri,
og hlaut fyrir vikið mikla áverka
og hefur þess vegna þurft að fara í
sex skurðaðgerðir. Hún glímir við
eftirköst, er með vandamál í öðrum
handleggnum og þarf að ganga við
staf.
Ljóst er að björgin sem Snorri og
hinir mennirnir veittu skipti sköp
um, en líkt og áður segir stöðvuðu
þeir blæðingu úr læri hennar, sem
kom úr slagæð.
Að sögn Snorra er vonin sú að
hún muni ná sér með endurhæf
ingu. „Ef hún nær því ekki þá fékk
hún samt lífið. Það er betra en ekki
neitt. Miðað við að hafa verið skotin
tvisvar þá slapp hún vel. Í f lestum
tilfellum hefði maður bara dáið,“
segir hann nú.
Í upphafi ágústmánaðar hittust
Snorri og Anja Rune í fyrsta skipti
eftir daginn örglagaríka. Hann segir
það hafa verið tilfinningaþrungna
stund, þó sérstaklega fyrir hana.
„Hún brast svolítið í grát, sem var
skiljanlegt,“ segir hann og játar að
hafa sjálfur verið nálægt því.
„Ég var mest ánægður að sjá að
hún var þarna, að hún var til,“ bætir
hann við.
Sú stund sem snerti hann þó
meira var fyrsta símtalið frá Anja
Rune, þar sem hún kynnti sig,
útskýrði hvað hefði gerst eftir að
hún fór í sjúkrabílinn og hversu
mikilvæg hans hjálp hefði verið.
„Það var mjög sérstök stund.“
Óvænt vinátta
Á meðan Snorri var að hlúa að henni
segist hann ekki hafa órað fyrir því
að seinna ættu hann og þessi kona
eftir að verða vinir. „Menn búast
kannski ekki við þessu í þessum
aðstæðum. En síðan höfum við
bara spjallað saman og við einhvern
veginn klikkum bara saman,“ segir
hann.
„Hún er bara mjög næs. Hún er
mjög lík mér,“ segir Snorri en bendir
þó á að þau eigi ekki sömu áhuga
mál. Þau eigi þó auðvelt með að tala
saman og eru nokkuð dugleg að
senda hvort öðru skeyti.
Áður en þau hittust fyrst eftir
árásina segist Snorri hafa óttast að
hann yrði táknmynd árásarinnar
í huga hennar.„Í hvert skipti sem
ég sé Snorra líður mér illa. Hann
minnir mig á þessa atburði,“ var
hann hræddur um að hún myndi
hugsa. „En sem betur fer fór það í
hina áttina. Ég virðist vera jákvæð
táknmynd.“
Er á lífi vegna þess sem hann gerði
Snorri hefur einnig hitt fjölskyldu
Anja Rune og upplifað mikið þakk
læti af fjölskyldunnar hálfu.
„Þá er sagt við mann: „Þessi kona
er á lífi vegna þess sem þú gerðir.
Vegna þess erum við með eigin
mann sem er enn giftur, krakka
sem eiga enn þá mömmu sína og
vini sem eiga enn vinkonu. Það
verða afmælisdagar, jól og sólar
landaferðir. Í staðinn fyrir börn sem
sakna mömmu sinnar, eiginmann
sem saknar eiginkonu sinnar og vini
og fjölskyldu sem sakna hennar.““
Hann segir auðvelt að láta til
finningarnar taka völdin þegar
hann hugsar til þessa. „Þegar maður
hugsar þetta þá taka tilfinningarnar
yfir. En þá hugsa ég til sjálfs mín: Þú
gerðir vel, þú mátt vera stoltur af
því, en farðu nú að gera eitthvað
annað.“
Fyrir áramótin var Snorra og Anja
Rune boðið í sérstakan annálsþátt
dönsku sjónvarpsstöðvarinnar
TV2. Þar ræddu þau um atburðina
í Field’s og samband þeirra í kjölfar
atburðanna. „Þetta er eiginlega það
eina jákvæða sem gerðist í Field’s,“
segir Snorri um sögu sína og Anja.
„Ég var gerður að svona „poster
boy“ fyrir þessa atburði. Þar var
reynt að gefa því jákvæða sem gerð
ist þarna athygli frekar en öllu því
neikvæða.“
Þar fjallaði Anja Rune um návígi
sitt við árásarmanninn. Í kjölfar
þess að hún var skotin, og áður en
Snorri kom og hlúði að henni, kom
árásarmaðurinn að henni. Hann
stóð upp við hana, á hári hennar, á
meðan hún þóttist vera látin.
„Það tekur ekkert smá mikið á að
þykjast vera dauð þrátt fyrir allan
þennan sársauka,“ segir Snorri um
vinkonu sína. „Þetta hlýtur að hafa
verið hrikalega erfitt og sársauka
fullt.“
Snorri hefur nú tjáð sig um málið
nokkrum sinnum í dönskum miðl
um. Hann segist hafa lent í því ein
staka sinnum að fólk beri kennsl á
hann og spyrji hann út í málið.
„Þrisvar sinnum hafa krakkar
komið til mín og spurt hvort ég
sé ekki maðurinn á YouTube, eða
maðurinn sem bjargaði konunni,“
segir Snorri og vísar þar til viðtals
sem birtist á myndbandaveitunni.
„Og einu sinni kom kona til mín
með dætur sínar. Hún þakkaði mér
fyrir og fannst mjög mikilvægt að
útskýra fyrir börnunum sínum
hvað ég hefði gert.“
Snorri er ekki á neinum sam
félagsmiðlum og vegna þess segist
hann hafa sloppið við mörg skila
boð vegna málsins. Hins vegar fái
Anja Rune ekki frið. „Það er alltaf
einhver að reyna að ná í hana. Ég
hef ekki þurft að fá athyglina á sama
hátt og hún.“
Breytt lífsviðhorf
Spurður um hvað atburðirnir í
Field’s hafi skilið eftir sig og hvort
hann geti dregið einhvern lærdóm
af þessari reynslu segir Snorri: „Ég er
ekki að fara að stoppa stórar hryðju
verkaaðstæður ef þær koma upp.
En ég mun kannski getað komið til
bjargar.“
Stærsta breytingin að hans mati
er þó breytt lífsviðhorf hans. „Ég
finn fyrir gleði í garð lífsins, þakk
læti fyrir lífið,“ segir Snorri og
útskýrir: „Allt í einu eru þessi smáu
vandamál allt öðruvísi. Hlutir eins
og að gleyma að kaupa eitthvað úti
í búð pirra mig ekki lengur. Maður
sér næstum því engin vandamál
lengur,“ segir hann.
„Fólk verður pirrað út í minnstu
smáhluti. Ef einhver á í smávægileg
um vandræðum hugsa ég: Ég redda
þér bara, ég hjálpa þér. Ég hjálpaði
konu fyrir hálfu ári síðan sem hafði
verið skotin. Auðvitað get ég hjálpað
þér. En ég segi það þó ekki. Ég segi
bara: Minnsta mál.“
Þrátt fyrir að hann segi að lítið
hafi breyst í lífi sínu eftir árásina
3. júlí, segir hann hana hafa opnað
augu sín.
„Ég veit ekki alveg hvernig maður
segir þetta á íslensku, en þessi lífs
reynsla var „augnaopnandi“. Hlut
irnir eru ekki eins alvarlegir og áður.
Sama hvað blasir við þá hugsa ég:
Við reddum þessu bara.“ n
Snorri hefur upplifað mikið þakklæti frá fjölskyldu Rune.
Snorri er ekki á
neinum sam-
félagsmiðlum
og segist þess
vegna hafa
sloppið við
mörg skilaboð.
Konan sem
hann bjargaði,
Anja Rune, hafi
þó ekki fengið
frið.
Mynd/BryndÍs
ÞorsteinsdÓttir
Þá er sagt við mann:
„Þessi kona er á lífi
vegna þess sem þú
gerðir. Vegna þess
erum við með mann
sem er enn giftur,
krakka sem eiga enn
mömmu sína.“
Hlutirnir eru ekki eins
alvarlegir og áður.
Sama hvað blasir við
þá hugsa ég: Við redd-
um þessu bara.
Hér eru Snorri og Anja Rune saman en vinátta hefur tekist með þeim.
14. janúar 2023
Laugardagur Fréttablaðið helgin 17