Fréttablaðið - 14.01.2023, Qupperneq 20
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Jónína Birna Björnsdóttir, vöru-
merkjastjóri hjá OJK-ÍSAM, segir að
um 60% kvenna verði fyrir hárlosi í
lengri eða skemmri tíma á ævinni.
„Sérstaða Nourkrin er Marilex,
einkaleyfisvarða innihalds-
efnið sem unnið er úr fiskiþykkni,
ensími úr sjávarríkinu, og pró-
teóglýkönum. Það er efnið sem hár-
sekkina vantar þegar hárvaxtar-
hringurinn brenglast. Nourkrin er
einnig eina hárbætiefnið sem hefur
undirgengist klínískar rannsóknir
en þær eru yfirleitt ekki til staðar
hjá bætiefnum,“ upplýsir hún.
„Nourkrin hárbætiefnið var
fundið upp árið 1986 og kom á
markað stuttu síðar. Varan hlaut
strax góðar viðtökur enda er hár-
losvandamál algengara en maður
heldur og ekki mikið talað um
það,“ segir Jónína en OJK-ÍSAM
hefur verið með nokkra Nourkrin-
prófanahópa til að sýna fram á
virknina.
Mikill áhugi á Nourkrin-hópum
„Á Íslandi hafa fjölmargir verið í
prófunum hjá okkur síðan varan
kom á markað árið 2018. Við
höfum auglýst eftir þátttakendum
á Facebook og í Fréttablaðinu og
margir sótt um. Það eru greinilega
margir að kljást við hárlos,“ segir
Jónína og bætir við: „Í þessari með-
ferð prófa þátttakendur vöruna í
sex mánuði. Teknar eru myndir
áður en hún hefst, síðan aftur eftir
þrjá mánuði og svo í lokin eftir sex
mánuði.
Nær allir sem hafa verið í próf-
unum finna mun til hins betra á
hárinu á sér, minna hárlos, aukinn
hárvöxt og meira líf í hárinu. Fólk
með sjálfsofnæmis-sjúkdóminn
alopecia hefur til dæmis náð mjög
góðum árangri með Nourkrin. Í
síðasta prófanahóp var einn þátt-
takandi með alopecia areata, eða
blettaskalla. Hann getur myndast
í kjölfarið á miklu álagi. Annar
þátttakandi var með mjög bólgna
hársekki og því fylgdi mikill pirr-
ingur í hársverði, svo mikill að
ómögulegt var að setja hárið í tagl
eða nota derhúfu. Pirringur fór
eftir um það bil þrjá mánuði með
Nourkrin og líðanin var miklu
betri,“ segir Jónína enn fremur.
Hún segir það einstaklega
gefandi að fylgjast með þátt-
takendum í prófanahópunum,
sérstaklega fólki sem var búið að
gefa upp alla von um árangur en
sá loksins eitthvað fara að gerast.
„Árangur hefur verið finnan-
legur hjá næstum öllum og sjáan-
legur hjá mjög mörgum eins og
myndirnar sýna. Mismikið eftir
því sem við erum mörg,“ segir
hún. „Um 60% kvenna glíma við
hárlos í lengri eða skemmri tíma
á lífsleiðinni og um 80% karla.
Algengasta ástæðan er erfðir. Ef
karlar byrja að taka inn Nourkrin
um leið og skallamyndun hefst er
hægt að seinka henni. Nourkrin
Man inniheldur Marilex-M sem
búið er aðlaga fyrir karla, með
sérstökum próteóglýkönum sem
draga úr rýrnun hársekkja, örva og
lengja vaxtarskeiðið.“
Margar ástæður fyrir hárlosi
Þegar Jónína er spurð hvers vegna
hárlos sé svo almennt vandamál,
svarar hún: „Hárlos hefur líklega
alltaf verið til staðar en nú er farið
að fylgjast betur með ástæðum
þess og meira talað um það. Komið
hefur í ljós að þættir eins og álag
eða stress eru ein algengasta
ástæðan fyrir hárlosvandamálum
kvenna og sá þáttur er sífellt að
aukast. Einnig hafa hárlosvanda-
mál aukist mikið í kjölfar Covid
og búið er að gera vísindalega
rannsókn þar sem sýnt er fram á
mikinn árangur þeirra sem tóku
inn Nourkrin eftir að hafa misst
mikið hár í kjölfar Covid.“
Jónína bendir á að innihalds-
efnið Marilex sé einkaleyfisvarið
og því eingöngu í Nourkrin vörum.
„Það er vísindalega sannað að
Marilex er það efni sem hársekk-
ina vantar þegar hárvaxtarhring-
urinn brenglast. Virkni Nourkrin
hefur verið rannsakaður með
klínískum rannsóknum sem ekki
er þekkt hjá öðrum bætiefnum
fyrir hár.
Helstu ástæður fyrir hárlosi
geta verið eftirfarandi:
n Stress/álag
n Veikindi
n Sykursýki
n Mataræði
n Vanvirkur skjaldkirtill
n Hjáveituaðgerð
n Lyfjaneysla
n Reykingar
n Meðganga fæðing, brjóstagjöf
n Covid-veikindi
n Slæm hármeðhöndlun og fleira
Við miðum alltaf við að það taki
einn hárvaxtarhring til að sjá mun
og það tekur hárvaxtarhringinn 6
mánuði að ná jafnvægi. Hársekk-
irnir geta verið á misjöfnum stað í
hringnum þegar meðferð hefst og
því tekur þetta þennan tíma. Hjá
flestum sést munur strax eftir 3
mánuði og jafnvel fyrr hjá öðrum.
Það þarf þolinmæði og tíma til að
takast á við hárlos, þetta vandamál
læknast ekki á einni nóttu. Nauð-
synlegt er að taka inn 2 hylki á dag
til að hársekkirnir fái það magn af
Marilex sem þeir þurfa til að snúa
hringnum við.“
Jónína segir að hún fái mikil og
sterk viðbrögð frá fólki sem tekur
inn Nourkrin. „Já, við fáum reglu-
lega fréttir um frábæran árangur.
Fólk sendir okkur tölvupóst eða
skilaboð og segir okkur frá ánægju
sinni. Við erum líka í sambandi við
þá sem voru í prófanahópum og
fáum að fylgjast með árangri hjá
þeim.“
Nourkrin sjampó og næring
Nourkrin sjampó og hárnæring
er væntanlegt í sölu í apótekum á
næstunni. Jónína segir það vera
frábærar vörur sem gefa hárinu
mikið líf og aukinn glans. „Það
geta allir notað Nourkrin sjampó
og hárnæringu, líka þeir sem hafa
engin hárlosvandamál. Allir sem
vilja fá smá líf í hárið og aukinn
glans ættu endilega að prófa.
Vörurnar verður bæði hægt að
kaupa einar og sér en svo verður
líka kynningartilboð þegar þær
koma í sölu, þeir sem kaupa þriggja
mánaða skammt af Nourkrin fá
sjampó og hárnæringu frítt með
sem er ansi góður kaupauki,“ segir
hún.
Þegar Jónína er spurð hvort
þetta sé dýr meðferð segir hún það
fara eftir því við hvað er miðað.
„Mér finnst gott að miða Nourkrin
meðferð við klippingu/litun
sem þarf að gera reglulega fyrir
hárið. Margir sem eru með hár-
losvandamál voru vanir að eyða
ákveðinni upphæð í klippingu/
litun sem er kannski ekki lengur í
boði. Ef keyptur er þriggja mánaða
skammtur af Nourkrin er fólk að
fá þrjá mánuði á verði tveggja svo
það margborgar sig og ég tala ekki
um þegar sjampó og hárnæring
fylgir með,“ segir hún. n
Nourkrin fæst í öllum helstu apó-
tekum. Nánari upplýsingar á isam.
is/nourkrin
n Fyrir n Eftir
n Fyrir n Eftir
Jónína Birna segir að fljótlega komi einnig á markað sjampó og næring frá Nourkrin sem hentar fyrir alla.
Af hverju hárlos?
Hárvaxtarhringur er hringrás
hárvaxtar líkamans. Í eðlilegum
hárvaxtarhring eru 85-90% hár-
sekkjanna á vaxtarstigi á meðan
10-15% þeirra eru á hvíldarstigi
áður en þau losna. Hver hár-
vaxtarhringur er 6 mánuðir.
Próteóglýkanar er sérstök gerð
af próteini sem sannað hefur
verið vísindalega að stjórni vexti
í hársekkjum. Þegar hárlosvanda-
mál kemur upp þá hefur hinn
hefðbundni hárvaxtarhringur
brenglast vegna þess að hlutfall
próteóglýkana í hársekkjunum
verður of lágt. Helstu ástæður
fyrir að hlutfall próteóglýkana
lækkar eru meðal annars: stress,
álag, veikindi, sykursýki, lyf,
reykingar, sjúkdómar, meðganga,
hjáveituaðgerð, Covid, fæðing,
hármeðhöndlun og fleira.
Hið einstaka Marilex inni-
haldsefni er vísindalega þróuð
lífvirk (bioactive) próteóglýkan-
formúla sem er einkaleyfisvarin
og eingöngu í Nourkrin vörum.
Marilex var þróað til að styðja
við eðlilegan, heilbrigðan hár-
vöxt með því að takast á við
próteóglýkan-skort í hársekkjum
sem er undirliggjandi ástæða
fyrir næstum öllum hárlos-
vandamálum. Marilex hefur
verið prófað um allan heim og
er samþykkt af heilbrigðisyfir-
völdum í öllum heimsálfum.
Með því að nota próteóglý-
kan- meðferð sem inniheldur
mikið af sérstökum hárvaxtar-
próteóglýkönum (vaxtarprótein)
líkt og Nourkrin er hægt að örva
hársekkina svo hárvaxtarhring-
urinn verði aftur eðlilegur.
Nourkrin er algjörlega öruggt
og allir, nema þeir sem eru með
ofnæmi fyrir fiski eða skelfiski,
geta notað það.
Komið hefur í ljós
að þættir eins og
álag eða stress er ein
algengasta ástæðan fyrir
hárlosvandamálum
kvenna og sá þáttur er
sífellt að aukast.
2 kynningarblað A L LT 14. janúar 2023 LAUGARDAGUR