Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 23
Nánari upplýsingar veita Hilmar G. Hjaltason,
hilmar@vinnvinn.is og Margrét Stefánsdóttir,
margret@vinnvinn.is hjá Vinnvinn.
Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og
birgðahald á fljótandi eldsneyti. Félagið rekur
einnig þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi
á rafbúnaði og vélbúnaði. Starfsmenn
félagsins eru um 130 talsins á starfsstöðum
víðsvegar um landið.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningar
bréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Framkvæmdastjóri
Olíudreifingar
Við leitum að öflugum, árangursdrifnum leiðtoga sem er lausnamiðaður og býr yfir
forystuhæfileikum til þess að stýra Olíudreifingu.
Framkvæmdastjóri stýrir daglegum rekstri félagsins. Þá tekur framkvæmdastjóri þátt í
stefnumótun, framkvæmir stefnu og ákveður stjórnskipulag í samráði við stjórn félagsins.
Framkvæmdastjóri er talsmaður félagsins og annast samskipti við hagsmunaaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirumsjón með daglegum rekstri félagsins.
• Mótun og eftirfylgni með stefnu félagsins og framtíðarsýn þess.
• Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og hagsmunaaðila.
• Áhættustýring, gæðastjórnun, fjármálastjórnun.
• Stjórnun framkvæmda.
• Yfirsýn með þróun á orkumörkuðum.
• Yfirsýn og ábyrgð á fjárhagslegum- umhverfis-, og samfélagslegum þáttum.
• Yfirsýn og ábyrgð á öryggismálum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun, stefnumótun og rekstri.
• Þekking á og reynsla af orkumálum.
• Þekking á eða reynsla af umhverfismálum og nýtingu náttúruauðlinda er kostur.
• Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæð vinnubrögð, jákvætt viðhorf og hæfni til að taka ákvarðanir undir álagi.
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Allar fyrirspurnir verða meðhöndlaðar
sem trúnaðarmál.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir,
katrin@hagvangur.
Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar nk.
Fyrirtæki sem er í takti við tímann leitar að lyfjafræðingum til starfa
á dag-, kvöld- og næturvaktir.
Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir metnaði og sveigjanleika
til að veita framúrskarandi faglega þjónustu.
Markmið okkar er að mæta þörfum viðskiptavinarins og þjónusta
hann sem best.
Lyfjafræðingar
hagvangur.is
Sótt er um störfin
á hagvangur.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára