Fréttablaðið - 14.01.2023, Qupperneq 30
Skrifstofustjóri og aðstoðar-
maður framkvæmdastjóra
Hagar leita að jákvæðum, sjálfstæðum og duglegum ein-
stakling til að sjá um daglegan rekstur skrifstofu Haga og
aðstoða forstjóra og framkvæmdastjórn Haga með almenna
skipulagningu, s.s. vegna funda, ferðalaga, o.fl.
Helstu verkefni:
• ábyrgð á rekstri skrifstofu Haga, m.a. utanumhald og
pantanir á skrifstofuvörum og öðrum aðföngum
• undirbúningur funda framkvæmdastjórnar og stjórnar
Haga
• skipulagning viðburða
• móttaka gesta, símsvörun o.fl.
• almenn skrifstofustörf og tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Þjónustulund og góð færni í mannlegum samskiptum
• Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Bílpróf
Hagar hf. eru fjölskylda af fyrirtækjum sem starfa á ís-
lenskum smásölumarkaði. Meginstarfsemi Haga er á sviði
smásölu með mat-, sérvöru og eldsneyti og tengdum rekstri
vöruhúsa. Hagar starfrækja samtals 38 matvöruverslanir
undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups, 22 Olís þjónustu-
stöðvar, 45 ÓB-stöðvar, umfangsmikla vöruhúsastarfsemi,
birgðaverslun, netverslun með matarpakka auk verslunar
með sérvöru.
Hjá Högum og dótturfélögum starfa um 2.500 manns sem
hafa það að markmiði að stuðla að bættum lífskjörum við-
skiptavina í gegnum framúrskarandi verslun.
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá. Umsóknir skal senda
inn á alfred.is en umsóknarfrestur er til og með 22. janúar nk.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Skagafjörður óskar eftir að ráða drífandi og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Sviðsstjóri veitir sviðinu faglega og stjórnunarlega forystu og starfar í samræmi
við stefnu sveitarfélagsins ásamt lögum og reglugerðum sem varða starfsemina. Sviðsstjóri er stjórnendum til ráðgjafar og stuðnings í verkefnum og ákvörðunum sem þeir fást
við. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með öllu faglegu starfi og rekstri fjölskyldusviðs og starfar náið með sveitarstjóra og öðrum sviðsstjórum.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar veita Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri, sigfus@skagafjordur.is, 455 6000 og Geirlaug Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá Hagvangi, geirlaug@hagvangur.is, 520-4700.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 30. janúar 2022
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is. Prófskírteini og greinargóð ferilskrá fylgi umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar
fram kemur af hverju sótt er um starfið og hvernig viðkomandi uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til þess.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með starfs- og fjárhagsáætlunum á sviðinu.
• Yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi á sviðinu og samræmingu og
samþættingu á milli eininga.
• Umsjón með starfsemi nefnda og ráða á fjölskyldusviði.
• Ráðgjöf og stuðningur til annarra stjórnenda á sviðinu í störfum þeirra
og stjórnun.
• Samskipti við fagnefndir og hagsmunaaðila.
• Þátttaka í stefnumótun og nýsköpunarverkefnum þvert á fagsvið
sveitarfélagsins.
• Stuðlar að úrbótaverkefnum í öllum þáttum starfsemi sviðsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Meistaragráða sem tengist starfsvettvangi sviðsins er kostur.
• Góð fagþekking á málefnum sviðsins.
• Farsæl rekstrar- og stjórnunarreynsla er skilyrði.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
• Reynsla af straumlínustjórnun og samþættingu verkefna er kostur.
• Skýr sýn á leiðir til að styrkja skólaumhverfi, frístundaþjónustu og velferðarmál í sveitarfélaginu.
• Þekking og reynsla af snemmtækum stuðningi og samþættingu þjónustu er kostur.
• Leiðtoga-, samstarfs- og samskiptahæfni.
• Metnaður til að ná árangri í starfinu.
Í Skagafirði búa rúmlega
4.300 manns þar sem lögð er
áhersla á fjölskylduvænt og
heilsueflandi samfélag með
öflugu fræðslustarfi og góðri
frístunda- og velferðaþjónustu.
Skagafjörður er framsækið
sveitarfélag þar sem atvinnu-
möguleikar eru miklir og
þjónusta mjög góð. Íþrótta- og
tómstundalíf er með miklum
blóma sem og menning og
önnur afþreying.
Fjölskyldusvið Skagafjarðar
samanstendur af þremur
meginstoðum sem starfa
samþætt; félagsþjónustu,
frístundaþjónustu og fræðslu-
þjónustu, ásamt öflugri
stoðþjónustu sérfræðinga
sem vinna þvert á sviðið.
Á fjölskyldusviði starfa
tæplega 400 manns á um
40 starfsstöðvum víðs
vegar um sveitarfélagið
og teygir starfsemin sig
um allt Norðurland vestra.
Sveitarfélagið Skagafjörður
er leiðandi sveitarfélag í
barnaverndarþjónustu á Mið-
Norðurlandi, sem og leiðandi
í málefnum fatlaðs fólks á
Norðurlandi vestra.
Sérnám í heimilislækningum hefur verið starfrækt í fjölda ára á
Íslandi og hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins verið leiðandi
í því námi. Sérnámið fer fram undir virkri handleiðslu sérfræðings í
heimilislækningum sem fylgir sérnámslækni eftir allan námstímann.
Sérnámslæknir skipuleggur nám sitt í samráði við kennslustjóra.
Nánari upplýsingar veitir Elínborg Bárðardóttir – elinborg.bardardottir@heilsugaeslan.is
Sjá nánar á www.starfatorg.is og á www.heilsugaeslan.is undir laus störf.
Sérnám í heimilis-
lækningum
Lausar eru til umsóknar sex
sérnámsstöður lækna í heimilis
lækningum hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Kostir sérnáms í heimilislækningum:
• Einstaklingsmiðuð námsáætlun
• Starfsnám undir virkri handleiðslu reyndra sérfræðinga
• Samningur við Landspítala varðandi spítalahluta sérnámsins
• Hópkennsla hálfan dag í viku
• Þátttaka í rannsóknar og/eða gæðastarfi
• Sameiginlegar námsferðir innanlands og utan
• Rafræn sérnámsmappa sem heldur utan um framgang í námi