Fréttablaðið - 14.01.2023, Side 35
SÉRFRÆÐINGUR
SAFNEIGNAR
HÖNNUNARSAFN
ÍSLANDS
HONNUNARSAFN.IS
Hönnunarsafn Íslands auglýsir til umsóknar
starf sér fræðings safneignar. Í starfinu felst
skráning safngripa, umsjón með safnkosti
og varðveislurýmum safnsins ásamt því að
miðla á skapandi hátt þessari áhugaverðu
hlið safnsins.
Leitað er að lausnamiðuðum og jákvæðum
einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á
safnastarfi og hönnun.
Helstu viðfangsefni
@ Umsjón með safnkosti og varðveislurými safnsins
@ Skráning á safnkosti í Sarp skráningarkerfi
@ Eftirlit og umsjón með aðstæðum í sýningasölum
@ Miðlun safnkosts á samfélagsmiðlum
@ Svörun fyrirspurna
@ Þátttaka í gerð sýninga
@ Önnur verkefni sem safnstjóri felur starfsmanni
Hæfniskröfur
@ Óskað er eftir einstaklingi með háskólapróf
og reynslu sem tengist starfssviði safnsins
@ Reynsla af safnastarfi æskileg
@ Reynsla af skráningu í skráningarkerfi æskileg
@ Góð almenn tölvufærni og gott vald á
upplýsingatækni og miðlun
@ Vandvirkni, nákvæmni, sjálfstæði, útsjónarsemi
og góð þjónustulund
@ Góðir samskipta- og skipulagshæfileikar
@ Góð færni í íslensku og ensku
@ Hugmyndaauðgi varðandi miðlun safnkosts
Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2023
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður
Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafns
Íslands (sigridurs@honnunarsafn.is) eða í síma
617 15 25.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá,
kynningarbréf og upplýsingar um umsagnaraðila.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að
sækja um starfið á ráðningarvef Garðabæjar
https://starf.gardabaer.is/rcf3/Default.aspx
GARÐATORG 1
210 GARÐABÆR
Lögfræðingur
Lögfræðiteymi á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara leitar að
öflugum lögfræðingi. Í boði er krefjandi og fjölbreytt starf sem
reynir á ýmis réttarsvið lögfræðinnar.
Gríðarleg uppbygging er fyrirhuguð í Reykjavík á komandi árum og fær viðkomandi tækifæri til að
vinna að framgangi hennar í spennandi og krefjandi verkefnum. Teymið ber ábyrgð á gerð
uppbyggingarsamninga og sér um úthlutun lóða hjá Reykjavíkurborg. Auk þess tekur teymið
virkan þátt í fjölbreyttum borgarþróunarverkefnum og innleiðingu Græna plans Reykjavíkurborgar.
Teymið er hluti af skrifstofu borgarstjóra og borgarritara og er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Helstu verkefni:
▪ Samningagerð, stefnumótun, verkefnastjórnun og fyrirsvar vegna þróunar- og
uppbyggingarverkefna.
▪ Gerð úthlutunarskilmála fyrir lóðir.
▪ Lögfræðilegar álitsgerðir, ráðgjöf og umsagnir vegna verkefna lögfræðiteymis.
▪ Meðferð stjórnsýslumála og annarra mála sem heyra undir verkefni lögfræðiteymis.
▪ Undirbúningur mála fyrir borgarráð.
Hæfniskröfur:
▪ Meistarapróf eða embættispróf í lögfræði.
▪ Haldbær þekking og reynsla af samningagerð og skjalagerð.
▪ Þekking og reynsla af vinnu á sviði eignarréttar auk samninga- og kröfuréttar er æskileg.
▪ Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, ábyrgð, sveigjanleiki, samskiptalipurð og góð framkoma.
▪ Góð færni til framsetningar máls í ræðu og riti á íslensku og ensku.
▪ Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu, stjórnsýslurétti og þinglýsingum er kostur.
Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur er til og með 31. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Ívar Örn Ívarsson í síma 411 1111 eða í gegnum tölvupóstfangið
ivar.orn.ivarsson@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Sótt er um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is
ATVINNUBLAÐIÐ 13LAUGARDAGUR 14. janúar 2023