Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 38

Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 38
RÁÐGJAFI á sviði starfsendurhæfingar VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf ráðgjafa hjá VIRK. Um er að ræða mjög krefjandi og fjölbreytt starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfs- endurhæfingar á vinnumarkaði. Helstu verkefni • Ráðgjöf, stuðningur og hvatning við einstaklinga með skerta starfsgetu • Upplýsingaöflun, skráning og mat samkvæmt gildandi verkferlum • Umsjón og eftirfylgd með einstaklingsbundnum áætlunum sem gerðar eru í samvinnu við þverfagleg teymi VIRK • Vinnur í nánu samstarfi við sérfræðinga VIRK, fagaðila í starfsendurhæfingu og vinnustaði • Samskipti við stéttarfélög og atvinnurekendur Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. á sviði félagsráðgjafar, hjúkrunar, iðjuþjálfunar, sálfræði eða sjúkraþjálfunar • Víðtæk reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar og/eða starfsendurhæfingar • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund • Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum • Skipulagshæfni og kostnaðarvitund • Góð þekking á vinnumarkaði • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað sam- félagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum. Upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar 2023. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Erum við að leita að þér?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.