Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 5

Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 5
Aldarfjórðungs starf Á þessu ári eru liðin 25 ár síðan íslenzkir raf- virkjar bundust samtökum og stofnuðu með sér stéttarfélag það er nú ber nafnið Félag íslenzkra rafvirkja. Enda þótt 25 ár séu ekki hár aldur, hefur starfsemi þessa félags og þeirra einstakl- inga er undir merki þess hafa skipað sér, verið svo nátengd framsókn hinnar íslenzku þjóðar síð- asta aldarfjórðung, í menningarlegu og atvinnu- legu tilliti, að rétt og skylt er að minnast þessara tímamóta að nokkru. Hér verður þó aðeins stiklað á stóru. Veldur þar hvcrutveggja, að ef rekja ætti ýtarlega starf- semi félagsins á liðnum aldarfjórðungi, útheimti slíkt stórum meira rúm en hér er til umráða, svo og hitt, að aðeins lítill hluti hins raunverulega starfs kemur fram í þeim heimildum sem við er að styðjast, þ. e. gjörðabókum félagsins frá liðn- um árum. Undirbúningur og stofnun. Um aðdraganda og stofnun félagsins má lesa annarsstaðar í þessu riti, verður því hér hlaupið fljótt yfir sögu. Þann 20. maí 1926 komu nokkrir rafvirkjar saman til fundar í húsi K. F. U. M., „til þess að ræða stofnun félags meðal rafmagnsvirkja“, eins og að orði var komist í fyrstu gjörðabók félags- ins. Hallgrímur Bachmann stjórnaði þessum fundi, en málshefjandi var Jón Guðmundsson. Lýsti hann hugmynd fundarboðenda um félagsstofnun- ina, og urðu síðan um það allmiklar umræður. Undirtektir fundarmanna voru góðar, og var að lokum samþykkt í einu hljóði, að kjósa 5 manna nefnd til þess að undirbúa félagsstofnunina, semja lög o. þ. h. í nefndina voru kjörnir: Ögmundur Sigurðsson, Jónas Guðmundsson, Sæmundur Run- ólfsson, Jón Guðmundsson og Hallgrímur Bach- mann. Síðar var tveim mönnum bætt í nefndina, þeim Einari Bachmann og Guðmundi Þorsteins- syni. Stofnfundurinn var svo 4. júní sama ár. Var þar gengið formlega frá stofnun félagsins, því sett lög og kosin stjórn. (Á öðrum stað í ritinu er skrá yfir allar stjórnir félagsins, og er því sleppt hér upptalningu á fyrstu stjórninni.) Félagið hlaut nafnið Rafmagnsvirkjafélag Reykjavíkur, er síðar breyttist í Rafvirkjafélag Reykjavíkur og enn síð- ar í Félag íslenzkra rafvirkja. Mun nánar vikið að því síðar. Tilgangur og markmið. Tilgangurinn með félagsstofnunni er markaður á stofnfundi þannig: „1. að rafmagnsvirkjun verði viðurkennd sem iðngrein. 2. Koma föstu formi á námstilhögunina og námið bætt. 3. Afla meðlimunum lífvænlegra kjara.“ Hallgrímur Bachmann: Hefur átt sæti í stjórn félags- ins í 7 ár. Formaður 1926, 1927, 1930, 1931 og 1932. Gjaldkeri 1933 og 1934. Guðmundur Þorsteinsson: Ritari 1926, 1927 og 1931. Varaformaður 1938. Dáinn 2. marz 1948. TÍMARIT RAFVIRKJA 3

x

Tímarit rafvirkja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.