Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 13

Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 13
Hjalti Þorvarðarson: Formaður 1946. Gjaldkeri 1943, 1944 og 1945. „princip" gengislaganna, gaf hún út bráðabirgða- lög til þess að löghelga verknaðinn. Alþýðusambandið og verklýðsfélögin mótmæltu harðlega þessum aðförum, og A. S. í. hvatti sam- bandsfélögin til að undirstrika mótmælin með því að segja upp samningum. Um 40 félög urðu við þessum tilmælum sam- bandsins, þar á meðal F. I. R. Þegar ríkisstjórnin sá, að verklýðshreyfingin ætlaði ekki að una þess- ari ögrun, sá hún sitt óvænna og gaf út ný bráða- birgðalög, þar sem hún nam hin fyrri úr gildi. Þar með var tilgangi uppsagnanna náð, og sam- bandsstjórn skoraði á félögin að framlengja samn- inga að nýju. Urðu félögin við því. Þegar að því kom að framlengja samninga F. I. R. við atvinnurekendur, neituðu þeir með öllu að framlengja samningana, nema því aðeins að á þeim yrðu gerðar veigamiklar breytingar. Þar á meðal kröfðust þeir þess að kaup yrði lækkað um 12.5% og helztu hlunnindi rafvirkja afnumin. Þessum ósvífnu kröfum var að sjálfsögðu vísað á bug og voru samkomulagshorfur ekki góðar. — Var ekki annað sýnt, en að ennþá einu sinni kæmi til verkbanns af hendi atvinnurekenda. Sáttasemjari tók deiluna í sínar hendur á síð- asta degi, en engar horfur virtust á samkomulagi, þar sem meistarar héldu fast við kröfur sínar, en samninganefnd F. I. R. hafnaði þeim gjörsamlega. Hafði félagið leitað aðstoðar A. S. í. og var fram- kvæmdastjóri þess með í samningaumleitunum, með atvinnurekendum voru lögfræðingar Vinnu- veitendasambandsins. Sáttafundur hófst kl. 2 e. h. í Alþýðuhúsinu; stóð hann rösklega klukkutíma, án árangurs. Gerði þá sáttasemjari hlé á viðræðum vegna fundar í F. L. R. R. Um kvöldið kl. 8.30 hófst fundur að nýju. Tilkynnti þá sáttasemjari, að samninganefnd meistarafélagsins hefði á fundin- um um daginn, verið falið að undirrita samninga óbreytta. Kom því ekki til verkbanns að þessu sinni. En félagar F. í. R. voru enn ríkari af reynslu, enn fyrr. Skammgóður vermir. Sigur verklýðsins í vísitöludeilunni varð þó skammgóður vermir fyrir launþeganna. Ríkis- stjórnin var ekki af baki dottin í þeim ásetningi sínum að svifta alþýðuna allri vörn gegn ört vax- andi dýrtíð, sem var bein afleiðing af gengis- fellingunni. Um áramótin 1950—51 samþykkti al- þingi breytingu á gengislögunum, þar sem endi skyldi bundinn á allar bætur fyrir launþega vegna vaxandi dýrtíðar. — Þar með var sú fyrirætlun ríkisvaldsins fullkomnuð, að svifta hið vinnandi fólk með öllu lofuðum bótum vegna þeirrar dýr- tíðaraukningar sem gengisfellingin hafði valdið. Þetta síðasta tiltæki ríkisstjórnarinnar var hrein stríðsyfirlýsing á hendur verklýðssamtökunum, sem ekki var hægt annað en skilja og verða við. Alþýðusambandið hvatti félögin til samnings- uppsagnar og sameiginlegrar baráttu. Verður undirbúningur og framkvæmd þeirrar baráttu ekki rakin hér, svo eru þau mál öll mönnum enn í fersku minni. Fyrir samheldni og einhug þeirra félaga sem til deilu lögðu vannst sigur — sigur, sem jafnframt er eina vörn vinnandi fólks í dag gegn sívaxandi og skipulagðri dýrtíð valdahafanna. Atökin í vor út af vísitölugreiðslunni, leiddi glöggt í ljós nauðsyn þess, að iðnsveinafélögin efli samtök sín og skapi með þeim möguleika til sameiginlegra átaka iðnfélaganna, en séu ekki í einu og öllu háð þeim heildarsamtökum er verða til hverju sinni er leggja skal til átaka. Iðnsveina- félögunum sem hlut áttu að vísitöludeilunni hef- ur nokkuð verið legið á hálsi fyrir að gangast Siguroddur Magnússon: Formaður 1947 og 1948. Varaformaður 1946. TÍMARIT RAFVIRKJA T 1

x

Tímarit rafvirkja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.