Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 9

Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Blaðsíða 9
Kári Þórðarson: Formaður 1935, 1936, 1937 og 1940. Varformaður 1934. þær tvær tillögur, er hér fara á eftir, samþykktar i einu hljóði: .1 „Fundurinn samþykkir að fresta samninga- gerð um óákveðinn tíma“. II. „Þar sem útilokað er með bráðabirgðalög- um, að frjálsir samningar geti tekist um bætt kjör, en hinsvegar brýn þörf fyrir auk- inn vinnukraft í iðninni, skorar Rafvirkja- félagið á meðlimi sína, að hefja vinnu fyrir það kaup sem bezt býðst“. Var síðari tillagan birt í útvarpi og blöðum, sem áskorun til félagsmanna um að hefja vinnu á ný. Þar með var þessari löngu og þýðingarmiklu deilu — lengstu deilu er rafvirkjastéttin hefur háð, formlega lokið. Naumast er það þó sannleik- anum samkvæmt. Réttara væri að segja að skipt hafi verið um bardagaaðferð. Með þeirri ákvörð- un félagsins að vinna samningslaust, en hver og einn réði sig fyrir beztu kjör, var meira fólgið en ýmsum kann að virðast í fljótu bragði. Með þeirri ákvörðun var raunverulega stígið fyrsta jákvæða skrefið í baráttunni fyrir endurheimt samningsréttarins, — afnámi hins lögþvingaða gerðardóms, — fyrsta skrefið í þeirri baráttu er síðar hlaut viðurnefnið „skæruhernaðurinn 1942“. Prentarar viðurkenndu aldrei gerðardóm- inn, en framlengdu samninga óbreytta. Þegar líða tók á árið bættust stöðugt fleiri félög í þann hóp, er tók upp baráttu fyrir afnámi gerðardómsins. Sóknarþungi verkalýðshreyfingar- innar óx stöðugt, og um haustið hafði verklýður- inn að fullu brotið af sér fjötra gerðardómslag- anna. Eftir að samningsfrelsið var endurheimt er farið að ræða um hvort gera eigi nýja samninga við F. L. R. R., af því varð þó ekki, en hinsvegar var horfið að því ráði að setja ,,taxta“. Kom hann til framkvæmda á árinu 1943, og var þá ákveðinn kr. 2.50 í grunn á klst. Á það greiðist dýrtíðar- vísitala að viðbættu 50%. Þessi háttur hélst næstu ár. „Taxtinn“ var framlengdur, en grunnkaup hækkað til samræmis við hækkanir hjá öðrum félögum. Gengið í A. S. I. — Nafni félagsins breytt. Fram til þessa hafði R. V. R. verið utan Al- þýðusambandsins. Þó hafði á fundi í nóvember 1937 verið samþykkt að óska upptöku í sam- bandið, en af einhverjum ástæðum hafði þeirri upptökubeiðni ekki verið sinnt. Á félagsfundi 18. apríl 1942 er enn á ný samþykkt að sækja um upptöku í A. S. í. og er þá félaginu veitt upptaka í sambandið. Á félagsfundum sem haldnir voru á árinu 1942, er mikið rætt um að breyta skipulagi og starfs- háttum félagsins. Miklar breytingar urðu á at- vinnuháttum þessarar stéttar, sem og annara, á þessu tímabili. Ymsir þeirra er verið höfðu leið- togar hagsmunabaráttunnar í gerðardómsdeilunni og árin næstu á undan, höfðu ýmist gerst atvinnu- rekendur í bókstaflegri merkingu, eða meðeig- endur í atvinnufyrirtækjum. Hafði þessi þróun miður hollar afleiðingar í för með sér fyrir félags- heildina. Að vísu má segja að þetta fyrirbrigði sé ekki áður óþekkt í rafvirkjastétt, því að af þessum sökum hefur stéttin átt við mikla félags- lega örðugleika að etja bæði fyrr og síðar. Fram að þessu hafði félagið eingöngu verið sveinafé- lag (þó nemendur væru að vísu teknir inn sem aukafélagar) og starfssvæði þess í Reykjavík. En nú koma fram ýmsar raddir um breytingar í þessu efni. Aðallega virðast þó tvö sjónarmið hafa verið uppi. Annarsvegar að meistarar geti verið í fé- laginu og verði þá eitt félag í iðninni, hinsvegar að félagið verði áfram eingöngu launþegafélag, en starfssvæði þess verði allt landið. Þeir sem Sigurður Magnússon: Varaformaður 1941. Aðstoðar- gjaldkeri 1933, 1935, 1938 og 1942. Dáinn 13. okt. 1943. TÍMARIT RAFVIRKJA 7

x

Tímarit rafvirkja

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.