Fréttablaðið - 20.01.2023, Blaðsíða 17
Hjá okkur í Mela-
búðinni er aðal-
málið að við nostrum
aðeins við þorramatinn
og svo getur fólk valið
sér sjálft hvað það vill fá
úr kjötborðinu.
Pétur Alan Guðmundsson
Þorrinn er genginn í garð
og í dag fagna landsmenn
bóndadeginum í allri sinni
dýrð. Það gera þeir meðal
annars með því að úða í sig
þorramat og í Melabúðinni í
vesturbæ Reykjavíkur er öllu
tjaldað til á þessum degi.
„Það er alltaf rífandi stemning í
Melabúðinni. Við vorum byrjaðir
í þorramatnum fyrir áramótin
og þegar það er svona kalt í veðri
finnst fólki mjög gott að fá þorra-
matinn. Undirbúningurinn hefur
í sjálfu sér ekki verið langur. Við
byrjuðum fljótlega í desember í
jólatraffíkinni að huga að þessu
með magn og tegundir og passa
upp á að gleyma engu. Svo rúllar
þetta bara af vana,“ segir Pétur
Alan Guðmundsson, annar eig-
enda Melabúðarinnar.
Melabúðin er rótgróin fjöl-
skylduverslun. Guðmundur
Júlíusson og Katrín Stella Briem
tóku við rekstri Melabúðarinnar
árið 1979 og í dag reka synir þeirra,
þeir Pétur og Snorri, verslunina.
Pétur segir verslunina vera fjöl-
skyldufyrirtæki sem hafi frábært
starfsfólk og yndislega viðskipta-
vini, sem vita að þeir ganga að
gæðunum vísum.
„Hjá okkur í Melabúðinni er
aðalmálið að við nostrum aðeins
við þorramatinn og svo getur fólk
valið sér sjálft hvað það vill fá úr
kjötborðinu. Viðskiptavinirnir eru
ánægðir með að geta valið sjálfir
eftir tegundum.“
Ekkert skrítið á boðstólum
Spurður hvað sé til af þorramat í
kjötborðinu segir Pétur: „Við erum
með allan pakkann. Við erum með
heit og köld svið, soðna lifrarpylsu
og blóðmör, kalda og súra, súra
hrútspunga, lundabagga, bringur,
hákarl, hvalrengi, nýja og súra
sviðasultu, magál, nýja og súra
grísasultu, hangikjöt, rófustöppu,
kartöflumús, síld, rúgbrauð, flat-
brauð og bara allt þetta venjulega
í þorramatnum. Það er ekkert
skrítið á boðstólum eins og sels-
hreifar eða annað slíkt. Það er liðin
tíð,“ segir Pétur.
Hann segir að það henti fólki
vel að geta valið sér þorramatinn
úr kjötborðinu í stað þess að vera
með tilbúna þorrabakka.
„Það eru til dæmis ekki allir
sem vilja frá bringukolla og fólk
getur bara tekið það sem það vill
fá. Fólk er mjög hrifið af þessu,“
segir kaupmaðurinn á horninu
en eitt af gildum Melabúðarinnar
er að leggja áherslu á persónu-
lega þjónustu og vera með breitt
vöruúrval.
„Við tökum mest af okkar þorra-
mat frá Sláturfélagi Suðurlands en
svo nostrum við aðeins við hann
til að gera hann að okkar hætti.
Við leggjum ekki í súr en notum
okkar „trix“ til þess að gera matinn
virkilega ljúffengan. Við erum með
Fjallalambs svið og slátur sem er
þekkt fyrir gæði. Sviðin eru verkuð
á gamla mátann og slátrið er
alvöru gott slátur,“ segir Pétur.
Pétur segir að bóndadagurinn sé
afar stór söludagur í Melabúðinni
og það ríki ávallt stuð og stemning
í búðinni á þeim degi.
Gaman að gefa
krökkunum að smakka
„Bóndadagurinn hefur alltaf verið
mjög stór hjá okkur. Fólk kemur
og kaupir í lítil sem stór þorra-
blót og jafnvel pantar matinn í
þorrablót. Við lánum fólki trogin
en það eru margir sem koma og
kaupa fyrir sín litlu heimaþorra-
blót og þá tekur það allt sem þarf
og rúgbrauð, harðfisk, síld og fleira
með. Þá getur fólk keypt tilbúna
rófustöppu eða kartöflumús en
sumir velja að gera það sjálfir. Svo
er gaman að segja frá því yngri
krakkar úr skólunum og leikskól-
unum hafa verið að koma til okkar
þar sem þau fá að skoða matinn og
smakka hann. Þar eru nú sjaldnast
komnir fordómarnir. Þau er mjög
spennt fyrir þessu og það er gaman
að gefa þeim að smakka,“ segir
Pétur.
Er eitthvað eitt vinsælla í þorra-
matnum en annað?
„Hrútspungar og hvalur er
mjög vinsælt og svo kemur þetta
dæmigerða sem er ekki súrt, eins
og hangikjöt og sviðasulta. Margir
segjast borða þorramat en þá er
það jafnvel bara hangikjöt og
sviðasulta sem okkur mörgum
finnst ekki vera alveg þorramatur
en er gott út af fyrir sig,“ segir
Pétur.
Hann segir að yngsta fólkið
sé ekki mikið fyrir það að borða
þorramat og það sé alveg eðlilegt.
„Ég var sjálfur svona. Ég borðaði
ekki þorramat áður. Mér fannst
lyktin af honum ekki góð en svo
var ég að fylla á þorraborðið, ákvað
að prófa og sé eftir að hafa ekki
byrjað fyrr og finnst hann í dag
vera virkilega góður. Mér finnst
frábært að fá þorramat á þessum
tíma árs fyrir utan það að fitan
er holl og góð. Fólk tengir svona
veður eins og hefur verið undan-
farnar vikur við þorramat og við
fáum mikla orku við að innbyrða
hann.“
Stóru þorrablótin sem hafa
verið í dvala undanfarin ár vegna
Covid eru nú komin á fullt og til
að mynda héldu KR-ingar fjöl-
mennt þorrablót um síðustu helgi.
Spurður hvort þetta breyti ein-
hverju fyrir hann og Melabúðina
segir Pétur:
„Já og nei. Þessi stóru þorra-
blót hafa ekki verið á dagskránni
undanfarin ár en litlu þorrablótin
héldu áfram. Margir fara kannski
bara einu sinni til tvisvar og fá sér
þorramat en aðrir espast upp og þá
koma þeir til okkar og fá sér jafnvel
til að hafa í fötu, kaupa mysu með
og geyma í ísskápnum eða kaupa
bara fyrir kvöldmatinn. Svo eru
litlir hópar að hittast. Það voru til
dæmis tíu karlar, allir yfir sjötugt,
sem pöntuðu hjá okkur þorramat
til að hafa á þorrablóti en það
mátti ekkert vera súrt. Ég var hissa
á því,“ segir Pétur og hlær.
„Með aldrinum held ég að við
þróumst meira út í það að borða
þorramat. Kannski minna á yngri
árum en svo kemur þetta. Við
þroskumst öll. Ég tala þar út frá
minni reynslu. Ég laumaði mér í að
smakka þennan mat og mér finnst
til dæmis lundabaggar og bringu-
kollar æðislegir. Þeir eru mitt
uppáhald.“
Þorri allra landsmanna
með okkur
Pétur segist reikna með ys og þys í
Melabúðinni í dag á sjálfan bónda-
daginn en hann er þrautreyndur
í bransanum og hefur staðið
vaktina í Melabúðinni í yfir 40 ár.
„Það er alltaf gríðarleg stemning
í búðinni á þessum degi. Það er
snillingur hjá okkur sem heitir því
þjóðlega nafni Þorri en hann var
valinn einu sinni Þorri allra lands-
manna og ber nafn með rentu. Það
myndast mikil stemning í búðinni
á þessum degi svo það þarf ekki
uppákomur út af fyrir sig. Við
gefum fólki að smakka hákarl og
súrmat og við sem erum að vinna
í versluninni erum á tánum og
sinnum kúnnum okkar sem allra
best.“ n
Melabúðin er að Hagamel 39.
Sími: 551-0224. Sjá nánar á mela-
budin.is. og á Facebook-síðu Mela-
búðarinnar.
Öllu tjaldað til
í Melabúðinni
Pétur og kjöt-
stjórinn Halldór
Jónsson, til
vinstri, að raða
kræsingunum
í kjötborðið í
Melabúðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Pétur segir að það henti fólki vel að geta valið sér þorramatinn úr kjötborð-
inu í stað þess að vera með tilbúna þorrabakka.
Lifrarpylsa, blóðmör og lundabaggar eru herramannsmatur og úrvalið af
þorramat í Melabúðinni er glæsilegt.
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 20. janúar 2023