Fréttablaðið - 20.01.2023, Blaðsíða 18
Pakki og blóm
Lína Birgitta Sigurðardóttir, áhrifavaldur og
eigandi vörumerkisins Define The Line Sport,
kann svo sannarlega að njóta lífsins með sínum og
á bóndadeginum er það engin undantekning.
„Ég held upp á bóndadaginn með mínum bónda
en mér finnst mikilvægt að halda í þessa hefð, mér
finnst hún skemmtileg og hún gefur tækifæri til að
gera eitthvað saman.
Oftast er þetta mjög svipað en hingað til höfum
við farið á hótel eða út að borða og yfir daginn fær
hann blóm og pakka. Í ár er það samt sem áður
ekki hótel, heldur út að borða á einn uppáhalds-
staðinn okkar sem er Punk og svo fær hann að
sjálfsögðu pakka og blóm.“
Gull af manni
Sigríður Hrund Péturs-
dóttir, fjárfestir og
formaður FKA, hefur
mikla ástríðu fyrir
dögum sem þessum og
leggur mikinn metnað í
að dekra við sinn bónda
og alla bændur í kringum
sig.
„Ég held upp á bóndadaginn með pompi og
prakt, bæði fyrir eiginmann minn til 25 ára,
drengina mína þrjá heima við og strákana sem ég
er svo heppin að vinna með í Vinnupöllum.
Eðaldrengirnir í vinnunni og eiginmaðurinn
munu fá boli sem á stendur Gull af manni, það
verða sverar hnallþórur á borðum frá hádegi og í
lok dags sendi ég þá saman í axarkast hjá Ber-
serkjum. Síðan förum við öll saman út að borða
eitthvað sem þeim finnst gott, til dæmis ham-
borgara með sveittri sósu.
Við hjónin ætluðum að skella okkur á göngu-
skíðanámskeið yfir komandi helgi en veikindi
hamla þeirri ferð svo ég mun elska hann á yfir-
snúningi heima við í staðinn. Okkur líður afar
vel saman og sunnudags hádegi eru sérstakar
hjónastundir þar sem við ræktum samveru með til
dæmis mat, kaffi, LP-plötum og blaðalestri.
Eitt sem ég geri aldrei á bóndadeginum – ég
kaupi ekki súrmat eða þorramat nema óskað
sé eftir því – ég fer frekar í hina áttina og dekra
drengina sem ég er svo heppin að fá að ferðast
með í lífinu eins vel og umfangsmikið og mér
frekast er kostur.“
Bóndadagur á HM
Hildur Gunnlaugsdóttir,
arkitekt og lífskúnstner,
er sniðugri en flestir og
fær hinar frumlegustu
hugmyndir um alls konar.
Hún er gift fyrrverandi
landsliðsmanni í handbolta,
Hreiðari Leví Guðmundssyni,
og litast bóndadagurinn að sjálfsögðu af HM í
handbolta eins og hjá fleirum.
„Ég er hræðileg en ég geri miklar kröfur til manns-
ins míns á konudaginn en hef ekki mikið gert fyrir
hann á bóndadaginn og ætla að ráða bót á því í ár.
Við verðum í Svíþjóð þennan dag en byrjum daginn
á því að fara í góðan morgunmat með mímósu og
síðan í heilsulindina á hótelinu þar sem við eyðum
nokkrum tímum í hinum ýmsu gufum og pottum.
Svo gírum við okkur upp með andlitsmálningu og
tilheyrandi galla og förum á Ísland/Svíþjóð leikinn.
Ég er búin að lofa manninum mínum að gíra mig
upp í handboltabulluham með honum en ég er
ekki þekkt fyrir mikinn áhuga á íþróttaáhorfi. Að
leik loknum ætlum við að borða ólystugan djúp-
steiktan mat.“
Svona gleðja
þær bónda sinn
í tilefni dagsins
Í dag er bóndadagurinn og í tilefni af því spurðum við
nokkar þjóðþekktar konur, sem kunnar eru fyrir að vera
miklir gleðigjafar og hafa einstaklega gaman af því að
koma sínu fólki á óvart, hvort þær haldi upp á bóndadaginn
og færi bónda sínum gjöf í tilefni dagsins.
sjofn@frettabladid.is
Fær harðfisk að morgni
Sigþrúður Ármann, framkvæmdastjóri Exedra og
varaþingmaður, er mikill gleðigjafi og þekkt fyrir að
kunna að hafa gaman og standa fyrir skemmtilegum
viðburðum þar sem gleðin er við völd.
„Það má segja að bóndadagurinn sé hátíðisdagur
hjá okkur hjónum. Yfirleitt er ég búin að útbúa gjöf
sem ég afhendi honum strax um morguninn. Hann og
vinir hans hafa í allmörg ár haldið daginn hátíðlegan
og hefst dagskrá þeirra með morgunmat og stendur
yfir allan daginn. Hafa þeir meðal annars þann háttinn
á að hlýða á predikun og snæða hádegisverð heima
hjá tengdaforeldrum einhvers úr hópnum. Hafa
foreldrar mínir til að mynda tekið á móti þeim við
mikinn fögnuð. Einnig er þorrablót Stjörnunnar einn af
hápunktum ársins í Garðabæ. Þangað höfum við farið
í mörg ár með frábærum vinum. Ég og vinkonur mínar
hittumst yfirleitt um miðjan dag og tökum okkur til
saman áður en haldið er í teiti í heimahúsi fyrir sjálft
þorrablótið. Bóndadagurinn er því mikill gleðidagur.
Ég mun gleðja bóndann árla morguns með gjöf sem
inniheldur að sjálfsögðu harðfisk enda fátt meira við
hæfi á sjálfum þorranum. Með harðfisknum verð ég
búin að velja vel bruggaðan bjór. Einnig finnst mér
gaman að gefa honum flott bindi eða góðan rakspíra. Í
þetta skiptið verður bóndadagurinn svolítið öðru-
vísi þar sem að bóndinn og vinir hans ætla að fara til
Svíþjóðar og styðja Ísland í milliriðlinum. Ég verð því
að afhenda honum gjöfina mjög snemma þennan
dag og treysti á að hann drekki bjórinn og gæði sér
á harðfiskn um á leiðinni út á völl, enda um fínasta
morgunmat að ræða á sjálfan bóndadaginn.“
Út að borða
Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir er markaðsstjóri,
stofnandi og annar eiganda Maikai, sem hefur notið
mikillar hylli landsmanna. Hún hefur mikla ánægju af
óvæntum uppákomum.
„Ég held alltaf upp á bóndadaginn, hvort sem það
er lítið eða stórt. Stundum eru það litlar gjafir eða til
dæmis út að borða. Ég held að við séum með plön í
kvöld þetta árið. En gjöf fær hann þegar hann vaknar,
litla gjöf en síðan tek ég hann mögulega í hádegis-
mat.“
Fær heiðarlegt lambakjöt
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er þingmaður
og veislustýra en hún er einnig þekkt fyrir að stýra
þorrablótum með miklu ágætum þar sem hlátra-
sköllin hafa heyrst hátt.
„Ég er á því að það sé um að gera að nýta öll tilefni
til að gera sér dagamun yfir vetrarmánuðina. Bónda-
dagurinn er fínasta tilefni til þess. Ég er í vinnuferð
í Skotlandi ogkem ekki heim fyrr en seint að kvöldi
bóndadags. Annar í bóndadegi verður því haldinn há-
tíðlegur á laugardag. Verst finnst mér að missa af því
að horfa saman á leikinn.
Ég hafði hugsað mér að elda góðan kvöldmat fyrir
hann en við höfum reyndar gaman af því að elda
saman og gefum okkur yfirleitt góðan tíma í það um
helgar. En í tilefni dagsins mun ég standa vaktina sjálf
og bjóða upp á lambakjöt. Heiðarlegt og íslenskt
og vekur alltaf lukku. Annars hafði ég ætlað mér að
draga hann með mér í sund og gufu um daginn. Við
erum bæði unnendur sundlauganna hér heima og
förum töluvert saman í sund.“
Ef það á að dekra við karlinn er góð hugmynd að senda hann í nudd og spa.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 kynningarblað A L LT 20. janúar 2023 FÖSTUDAGUR