Fréttablaðið - 20.01.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
bakþankar |
T Ö G G U R
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is
Konur þurfa bara að vera duglegri
að gefa færi á sér í stjórnendastöður
og grípa tækifærin. Þá náum við
jafnrétti. Eða hvað?
Sumir halda því fram að á bak
við konu í leiðtogahlutverki sé það
raunverulega karl sem er við stjórn-
völinn. Nærtækt dæmi er af far-
sælum forsætisráðherra, sem hefur
verið sökuð um að leyfa karlkyns
samráðherra að vera í hinu raun-
verulega bílstjórasæti ríkisstjórnar-
rútunnar. Voru Geir Haarde, Bjarni
Ben. og Sigurður Ingi þá ekki við
stýrið í forsætisráðuneytinu?
Aðrir kyngerva kvenkyns stjórn-
endur og taka þannig fókusinn
af því sem þær hafa fram að færa.
Nýlegt dæmi er að finna undir
fyrirsögninni „Ótímabært sáðlát“,
þar sem formaður stjórnmála-
flokks er sögð hafa toppað of
snemma. Hefði Logi Már Einarsson
fengið sömu fyrirsögn?
Svo er hægt að segja að hún sé
bara „erfið kona“. Eitraður stimpill
sem dregur úr vægi alls sem hún
hefur fram að færa. Týndust afrek
Reynis Lyngdal og Baltasars Kor-
máks kannski undir fyrirsögnum af
„erfiðum körlum“?
Gleymum ekki tímalausri klass-
ík, að draga úr vægi þess sem þær
hugsa og segja með því að gagnrýna
útlitið. Vinsæll þáttastjórnandi sem
gaf konum vettvang til að tjá sig
um ofbeldi, er sett fram í líki tröll-
skessu á fjölskylduskemmtun. Það
bætist við hótanir um ofbeldi. Var
tröllkarlalíkneski af Gulla Helga
nokkuð dregið í kringum bálköst á
þrettándabrennu?
Allir ofantaldir karlar eru klárir
og sniðugir – og ættu aldrei svona
meðferð skilið. Gefum konum líka
pláss til að vera klárar og sniðugar.
Hægt er að gera betur. n
Konur þurfa bara