Fréttablaðið - 20.01.2023, Blaðsíða 2
Við verðum að styðja
við mótmæli gegn
stríðinu sem eru að
eiga sér stað í Rúss-
landi og það andóf
sem er gegn stríðinu
þar.
Guttormur
Þorsteinsson,
formaður Sam-
taka hernaðar-
andstæðinga
Ferðaþjónustan stillir saman strengi
Alls kynnti 231 fyrirtæki starfsemi sína á Mannamótum, árlegri ferðakaupstefnu þar sem landsbyggðafyrirtæki í ferðaþjónustu kynna þjónustu sína fyrir
ferðaþjónustuaðilum á höfuðborgarsvæðinu. Á dögunum kynnti Ferðamálastofu spá fyrir næstu ár þar sem því var spáð að rúmlega þrjár milljónir ferða-
manna kæmu til landsins árið 2025 og því nóg af verkefnum fram undan við að sýna sparihliðar Íslands. Fréttablaðið/Valli
- einfaldara
getur það
ekki verið!
Reiknað er með fjölmenni á
mótmæli gegn hernaðinum í
Úkraínu við sendiráð Rússa á
morgun. Einn skipuleggjenda
segir að taka muni áratugi
fyrir löndin tvö að jafna sig.
benediktarnar@frettabladid.is
Úkraína „Þetta er harmleikur
tveggja landa. Það mun taka ára-
tugi að jafna sig á þessu,“ segir
Andrei Menshenin, skipuleggjandi
mótmælanna Russians against the
war, sem fara fram klukkan tvö á
morgun, laugardag, fyrir utan rúss-
neska sendiráðið í Reykjavík.
Búist er við fjölmenni á mótmæl-
unum. Maria Alyokhina, meðlimur
rúss neska and ófs list ahópsins Pussy
Riot, verður meðal ræðumanna.
Mótmælin eru skipulögð af
Íslandsdeild Russians against the
war. Hópurinn hefur staðið fyrir
fjölmörgum mótmælum við rúss-
neska sendiráðið. Andrei vonast
eftir að mótmælin verði fjölmenn
af fólki af öllum þjóðernum sem er
á móti innrás Rússa í Úkraínu.
„Ég finn fyrir mikilli sorg vegna
stríðsins,“ segir Andrei. „Þetta stríð
er harmleikur tveggja landa. Þetta
er harmleikur fyrir Úkraínu, þar
sem fjöldi fólks hefur tapað lífi sínu
eða öllu sem það átti. En þetta er
einnig harmleikur fyrir Rússland.
Efnahagurinn er í rúst og framtíð
landsins er í algerri óvissu,“ segir
Andrei. Hann bætir við að hundruð
þúsunda Rússa hafi þurft að f lýja
landið í leit að betra lífi.
Andrei segir að hann óttist um líf
skyldmenna sinna og vina í Rúss-
landi. Hann reynir að vera í dag-
legum samskiptum við fólkið sitt,
en að hans sögn er öryggi þess og
mannréttindum ógnað daglega.
„Þetta eru mikil vonbrigði. Í upp-
hafi innrásarinnar héldum við
að þessu yrði lokið f ljótlega og að
samið yrði um frið. En núna sjáum
Líka harmleikur fyrir Rússa
Á laugardag mun hópurinn Russians against the war standa fyrir mótmælum
gegn innrásinni í Úkraínu við rússneska sendiráðið. Mynd/aðsend
við að það er of seint og að skaðinn
er skeður,“ segir Andrei. Hann telur
að það muni taka marga áratugi
fyrir löndin að jafna sig á þessu
stríði.
Andrei segir að Rússland sé fjöl-
mennt land og þó að margir Rússar
styðji Pútín og innrásina, þá sé einn-
ig stór hluti Rússa sem vilji ekkert
með stríðið hafa.
„Þarna er venjulegt fólk sem vill
lifa venjulegu lífi,“ segir Andrei.
Guttormur Þorsteinsson, for-
maður Samtaka hernaðarandstæð-
inga, verður einnig á mótmælunum.
Guttormur segir það mikilvægt
að styðja við mótmæli Rússa sem
gagnrýna Pútín og innrásina í
Úkraínu.
Að sögn Guttorms er augljóst að
það kraumi óánægja með stríðið í
Rússlandi, en þúsundir hafa f lúið
landið, meðal annars til að forðast
herskyldu.
„Við verðum að styðja við mót-
mæli gegn stríðinu sem eru að eiga
sér stað í Rússlandi og það andóf
sem er gegn stríðinu þar,“ segir Gutt-
ormur. n
gar@frettabladid.is
reykjavíkurborg „Vilníus mun
án efa geta fagnað afmæli sínu með
glæsibrag þótt borgarstjóri Reykja-
víkur sé ekki mættur á staðinn í
eigin persónu,“ segir Kolbrún Bald-
ursdóttir, borgarfulltrúi Flokks
fólksins.
Kolbrún gagnrýndi í borgarráði í
gær að Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri ætlar með aðstoðarmanni
sínum til Vilníus í Litáen þar sem
fagna á 700 ára afmæli borgarinnar
í næstu viku.
„Svona ferð er alveg álitamál í
ljósi slæmrar fjárhagsstöðu borgar-
innar,“ bókaði Kolbrún í borgarráði
í gær.
Í greinargerð borgarstjóra vegna
ferðarinnar segir að borist hafi
ósk um að hann myndi taka þátt
í alþjóðlegri ráðstefnu þar sem
borgarstjórar í Evrópu og víðar deili
„árangri af athyglisverðum verk-
efnum, sem aðrar borgir geta lært
af“, eins og það er orðað.
„Borgarstjóri heimsótti Vilnius,
Riga og Tallinn í mars á síðasta ári
til að sýna táknrænan stuðning við
borgirnar í kjölfar innrásar Rússa
í Úkraínu,“ segir borgarstjórinn í
bréfi sínu. n
Litáar geti fagnað án aðstoðar frá Degi
Kolbrún
Baldursdóttir,
borgarfulltrúi
Flokks fólksins
gar@frettabladid.is
veður Reykjavíkurborg hefur
undanfarna daga f lutt gríðarlega
mikið af snjó í Elliðaárvog. Snjónum
er mokað af götum Reykjavíkur í
fjölda bíla sem flytja hann þangað.
„Þetta er umfangsmikið verk sem
hefur gengið ágætlega,“ segir Hjalti
Jóhannes Guðmundsson, skrifstofu-
stjóri reksturs og umhirðu borgar-
landsins, sem telur að bílarnir séu
tuttugu til þrjátíu talsins. „Þetta er
gríðarlegt magn af snjó,“ segir Hjalti.
Í dag er búist við miklum hlýind-
um og úrkomu og gert er ráð fyrir
asahláku. Tryggingafélög hafa því
varað viðskiptavini sína við því að
mikil hætta sé á vatnstjóni og mikil-
vægt að gera viðeigandi ráðstafanir.
Eru þeir hvattir til að hreinsa snjó,
klaka og önnur óhreinindi frá nið-
urföllum við hús sín.
Bent er á að tryggingar bæta ekki
vatnstjón sem verður vegna utan-
aðkomandi vatns frá svölum, þak-
rennum eða frárennslisleiðum. n
Mikið magn af
snjó flutt á brott
Snjóflutningar í Reykjavík í gær.
2 FRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 20. jAnúAR 2023
FÖStUDAGUR