Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 2
Þó að þetta séu gjör- ólíkt íslenskri glímu þá eru þetta átök sem heilla marga. Pétur Marínó Jónsson Bridds spyr ekki til um aldur Þessi ungi drengur spilar augljóslega bridds af mikilli alvöru, enda veglegir vinningar í boði fyrir sigurvegara á hinni árlegu hátíð Reykjavík Bridge Festival sem fer nú fram í Hörpu dagana 26. til 29. janúar. Þar munu keppendur spila annaðhvort í pörum eða hópum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Í fyrsta sinn verður keppt í deildarkeppni í glímu um helgina þegar Unbroken- deildin í uppgjafarglímu fer fram í húsnæði Mjölnis. Móts- stjóri segir íþróttagreinina í stöðugum vexti. kristinnpall@frettabladid.is Íþróttir Tæplega hundrað kepp- endur eru skráðir til leiks þegar fyrsta deildarkeppnin í uppgjafar- glímu á Íslandi fer fram um helgina. „Það er búin að vera mikil spenna í glímusamfélaginu frá því að við til- kynntum þetta seint á síðasta ári. Maður sá það strax á mætingunni að fólk fór alveg á fullt og það kom mikill keppnisgír í fólk til að koma sér í stand fyrir fyrstu helgina,“ segir Pétur Marinó Jónsson hjá Mjölni sem er mótsstjóri Unbroken-deild- arinnar. „Maður heyrir af því sama hjá öðrum klúbbum, að það hafi strax verið mikil spenna fyrir þessu. Það hefur mikill uppgangur átt sér stað í glímunni síðastliðin ár og það var þörf á fleiri mótum.“ Uppgjafarglíma, eða brasilískt jiu jitsu, gengur út á að ná and- stæðingnum í hengingu eða lás og fá hann til að gefast upp. Ólíkt hefð- bundnu jiu jitsu eru þátttakendur ekki í búningi. Þetta er því ekki skylt þjóðaríþrótt Íslendinga, glímu, en Pétur segir Íslendinga heillast af átökunum. „Þó að þetta sé gjörólíkt íslenskri glímu þá eru þetta átök sem heilla marga. Þetta er svolítið eins og að fara í gamnislag með tækni og þegar þú ert búinn að prófa þetta og kynn- ast þessu er þetta ávanabindandi, bæði í æfingum og keppnum.“ Pétur segir að það sé fjölbreytt f lóra af þátttakendum í ár. „Við skiptum þessu upp í byrjendadeild og úrvalsdeild eftir reynslu kepp- enda og það er breitt aldursbil. Þetta er alveg frá sextán ára aldri upp í tæplega fimmtugt.“ Deildarkeppnin fer fram yfir þrjár helgar í vetur og í upphafi sumars verður úrslitakvöld þar sem von er á erlendum gestum. Hann viður- kennir að það hafi verið snúið að útfæra deildarkeppni í glímu. „Þetta var smá snúið. Við vildum tryggja að aðilar fengju sem flestar glímur en við vorum ekki með neina erlenda fyrirmynd. Þetta er tilraun og mikil handavinna að baki við að raða glímunum og sjá til þess að einstaklingar mætist ekki oft. Þetta gengur mjög vel og við erum spenntir að sjá hvernig þetta fer fram. Það stefnir í 160 glímur á morgun, sem er ansi mikið, en við erum með fjóra velli til að keppa á,“ segir Pétur og heldur áfram: „Það er núna tímabil fram undan og ég held að þetta geti orðið lyfti- stöng fyrir íþróttina að hafa þessa gulrót, f leiri mót og keppnir. Maður finnur það á andanum hjá félög- unum.“ n Ríða á vaðið með deild í uppgjafarglímu á Íslandi Pétur Marinó Jónsson, hjá Mjölni, segir mikinn uppgang hafa átt sér stað í glímunni á Íslandi undanfarin ár. MYnd/MjöLnIR/ÁSGeIR MARTeInSSon kristinnhaukur@frettabladid.is bretland Í gær fór fram minning- arathöfn í borginni Hull, sem var ásamt Grimsby ein helsta miðstöð Íslandsveiða í Bretlandi. Minnst var 60 sjómanna á þremur togur- um sem fórust þennan dag. Það er Lorellu og Roderigo sem fórust árið 1955 og Kingston Peridot sem fórst árið 1968, á svipuðum tíma og annar togari, Ross Cleveland. Meðal viðstaddra var Lynn Petr- ini, borgarstjóri Hull, fyrrverandi sjómenn og ættingjar fallinna sjó- manna. „Þetta mun aldrei gleymast. Þeir gáfu líf sitt til þess að fæða þjóð- ina og þeirra ætti að vera minnst að eilífu,“ sagði viðstödd kona við breska ríkisútvarpið. Alls fórust 6.000 sjómenn frá Hull milli 1835 og 1980, þar af margir við Íslands- strendur. Sjómennska var á þessum tíma hættulegra starf en kolanámu- gröftur. Árið 1968 fékk Hull viður- nefnið „hin dapra borg“. n Minntust áhafna þriggja togara frá Hull sem fórust allir á sama degi Meðal viðstaddra voru vinir og fjöl- skyldur hinna látnu. MYnd/AÐSend birnadrofn@frettabladid.is VeÐUr Búast má við slæmu veðri um mestallt land í dag og hefur Veðurstofan gefið út gula viðvörun vegna veðurs. Viðvörunin á við um höfuð- borgarsvæðið, Suðurland, Faxa- flóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra, Norðurland eystra, Austurland að Glettingi og miðhálendið. Í dag er spáð talsverðri rign- ingu og vegna mikillar kuldatíðar undanfarið má búast við auknu afrennsli ásamt leysingum á sunn- an- og vestanverðu landinu. Aukin hætta er á krapastíf lumyndun í leysingum. Vegna veðursins ákvað Icelandair að aflýsa öllum komum frá Norður- Ameríku í morgun. Þá var öllu morgunf lugi til Evrópu af lýst og þar af leiðandi komum frá Evrópu seinnipartinn. Öllu innanlands- flugi hefur jafnframt verið aflýst í dag. n Búist við slæmu veðri víða í dag Flugstöðin. Miklar seinkarnir eru á flugi vegna veðurs. 2 fRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 27. jAnúAR 2023 fÖStUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.