Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 28
Ég get ekki beðið eftir
því að taka af stað.
Siggi Gunnars
Við getum ekki beðið
eftir því að kynna tíu
ný íslensk lög fyrir
þjóðinni.
Ragnhildur Steinunn
Lögin tíu sem keppa um eftir-
sóttan farmiðann á Eurovisi-
on í vor verða gerð landslýð
heyrinkunn á RÚV annað
kvöld. Siggi Gunnar og Unn-
steinn Manuel, nýir kynnar
Söngvakeppninnar með Ragn-
hildi Steinunni, hokna af Euro-
vision-reynslu, sér við hlið og
ekki veitir af því Siggi er við
það að tryllast úr spenningi.
toti@frettabladid.is
„Við getum ekki beðið eftir því að
kynna tíu ný íslensk lög fyrir þjóð-
inni, f lytjendur þeirra og höfunda,“
segir Ragnhildur Steinunn Jóns-
dóttir sem verður á kunnuglegum
slóðum á RÚV á laugardagskvöld
þegar hulunni verður svipt af lög-
unum tíu sem koma til greina sem
framlag Íslands í Eurovision og
verða kynnt í þættinum Lögin í
Söngvakeppninni.
„Nú er bara um að gera að hækka
í botn, hlusta á lögin og kynnast
hæfileikafólkinu sem hyggst heilla
landann upp úr skónum þetta árið
í von um að hreppa farmiðann í
Eurovision,“ heldur Ragnhildur
Steinunn áfram öllum hnútum
kunnug.
Þá ber einnig til tíðinda að hún
mætir að þessu sinni til leiks með
með tvo ferska nýliða í kynna-
þríeyki Söngvakeppninnar, þá
Unnstein Manuel og útvarpsmann-
inn Sigurð Þorra sem er langbest
þekktur sem Siggi Gunnars.
Tónlistarmaðurinn Unnsteinn
tekur undir með Ragnhildi og
segir mikla breidd í hópnum og að
reynsluboltar í bland við upprenn-
andi söngstjörnur eigi eftir að láta
að sér kveða í Söngvakeppninni
þetta árið.
Tryllt spenna og stuð
„Skemmtilegast finnst mér þó að
stúdera lögin og fá þverskurð af
þeim pælingum sem popphöf-
undar eru í árið 2023. Eina sem ég
hefði viljað breyta væri að skylda
alla til að taka eins og eina, jafnvel
tvær, upphækkanir. En ég mun bera
þetta erindi upp við útvarpsstjóra
fyrir næstu Söngvakeppni,“ segir
Unnsteinn.
„Ég er um það bil að tryllast úr
spenningi fyrir þessu verkefni sem
mig hefur dreymt um að koma að
síðan ég var krakki,“ segir Siggi og
virðist vart geta á sér heilum tekið
af kæti.
„Lögin í ár eru mjög sterk og ég
er sannfærður um að við munum
standa uppi með nokkrar nýjar
íslenskar poppstjörnur að lokinni
keppni. Það er sannur heiður að
gera þetta með hinni reynslumiklu
Ragnhildi Steinunni og ljúflingnum
Unnsteini en við komum báðir nýir
inn í þetta verkefni.“
Risapartí í Gufunesinu
Söngvakeppnin fer fram í febrúar
og mars í Söngvakeppnishöllinni í
Gufunesi eftir vel lukkaða eldskírn
þar á síðasta ári. Fyrirkomulagið er
eins og áður og undankeppnirnar
tvær fara fram 18. og 25. febrúar og
úrslitastundin rennur síðan upp 4.
mars.
„Eitt er víst að þetta verður
stærsta partí Íslands,“ heldur Siggi
áfram fjallbrattur og minnir á að
Söngvakeppnin hafi einmitt allt til
að bera til þess að geta staðið undir
því. „Ég get ekki beðið eftir því að
taka af stað.“
Ragnhildur Steinunn segir þau
leggja mikið upp úr skemmtana-
gildinu í allri dagskrárgerð í kring-
um Söngvakeppnina. „Keppnin
sjálf er auðvitað að vissu leyti alvar-
leg og þar gilda ákveðnar reglur en
Söngvakeppnin er orðin svo miklu
meira en bara keppnin.
Þetta er gleðiveisla þar sem
við reynum að bjóða upp á fjöl-
breytt hlaðborð af öllu mögulegu.
Kannski má segja að aðalréttur
kvöldsins sé keppnin sjálf þar sem
ákveðnar reglur gilda en í forrétt-
inum og eftirréttinum gilda engar
aðrar reglur en að hugsa út fyrir
boxið og gleðja landann.“
Leynigesturinn svíkur ekki
Síðustu ár hafa erlendar stór-
stjörnur úr Eurovision komið fram
á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar,
til dæmis má nefna Loreen, Söndru
Kim, Emily deForest og Måns Zel-
merlöw svo nokkur séu nefnd.
Unnsteinn, Ragnhildur Stein-
unn og Siggi segja að þessari stefnu
verði haldið af dillandi einurð og
festu og að enginn verði svikinn
af leynigestinum í ár. „Það styttist
einmitt í að við tilkynnum hvaða
erlenda Eurovision-stjarna kemur
til landsins en ég held að okkur
sé óhætt að segja að atriðið í ár sé
óvenjulegt,“ segir Ragnhildur Stein-
unn og mælir fyrir allt þríeykið
þegar hún segist sannfærð um að
atriðið eigi eftir að vekja mikla
lukku.
Sem fyrr eiga áköfustu Eurovisi-
on-stuðboltar landsins kost á því
að upplifa stemninguna beint í æð
og kaupa sig inn í salinn á alla við-
burði Söngvakeppninnar en miða-
sala hefst á tix.is 1. febrúar. n
Eurovision-draumur Sigga rætist með
Unnsteini og Ragnhildi Steinunni
Ragnhildur Steinunn verður sem fyrr kynnir Sögnvakeppninnar og trommar nú upp með æsispenntu nýliðana Sigga og Unnstein. MYND/RÚV
Systur sigruðu eftir æsispennandi keppni fyrra. MYND/AðseND
toti@frettabladid.is
Skoski leikarinn Iain Glen hlýtur, að
öllum öðrum ólöstuðum, að mega
teljast frægasti leikarinn í spennu-
myndinni Napóleonsskjölin og
talsverður happafengur fyrir leik-
stjórann Óskar Þór Axelsson.
Flestir hér á landi þekkja Glen
líklega fyrst og fremst sem hinn
landlausa riddara Ser Jorah Mor-
mont, einn f lottasta töffarann í
The Game of Thrones. Þá er hann
í einu aðalhlutverkanna í The Rig,
spennuþáttum með hryllingsívafi,
sem eru nýbyrjaðir á Amazon Prime
og gerast á skoskum olíuborpalli úti
á reginhafi.
Glen hefur verið lengi að og í upp-
hafi ferils síns skaut hann til dæmis
upp kollinum í þremur Taggart-
þáttum 1986, sakamálaþáttunum
Trial & Retribution 1997 og Sigour-
ney Weaver-myndinni Gorillas in
the Mist 1988.
H a n n g e r ð i
síða n h i nu m
drykkfellda og
v i ð s j á r v e r ð a
í r sk a ei n k a-
s pæja r a Jack
Tay lor f r ábær
skil í samnefndum
þáttum sem hófu göngu sína 2010
og í þeim liggur einmitt sú sterka
Íslandstenging sem réði miklu um
að Glen ákvað að slá til og leika
bandaríska útsendarann William
Carr í Napóleonsskjölunum.
Marteinn Þórisson, sem skrif-
aði handrit Napóleonsskjalanna
upp úr samnefndri skáldsögu
Arnaldar Indriðasonar, var einnig
handritshöfundur nokkurra Jack
Taylor-þátta og vann þar upp úr
skáldsögum Ken Bruen um lög-
reglumanninn fyrrverandi sem
tefldi ítrekað á tæpasta vað í undir-
heimum Galway á Írlandi.
Þá er einn framleiðenda bæði
Napóleonsskjalanna og Jack Tay-
lor-þáttanna, Ralph Christians,
með sterkar tengingar við Ísland.
Hann er eiginmaður Sigríður Hall-
dórsdóttur og þau gerðu einmitt
heimildarmyndina Undir mögnuðu
tungli 1993 í tilefni þess að 20 ár
voru liðin frá eldgosinu í Heimaey.
Óskar Þór, leikstjóri Napóleons-
skjalanna, segir fyrri kynni Glens
af þeim Christian og Marteini hafa
vegið þungt og vakið slíkan áhuga
hjá Glen á verkefn-
inu að mun auð-
veldara hafi reynst
að landa þessum
sko sk a stór-
laxi en ætla
hefði mátt
í fyrstu. n
Íslandstenging
kom til skjalanna
Glen kemst í yfirnáttúruleg vand-
ræði á olíuborpalli í The Rig.
Glen og Óskar rótast í Napóleons-
skjölunum. MYND/Juliette RowlAND
Iain Glen í
Game of
Thrones.
24 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 27. jAnúAR 2023
fÖSTUDAGUR