Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 30
Birgir Helgason og Sigrún
Guðmundsdóttir eru orðin
að rokkstjörnum á samfélags-
miðlum en þau gefa fuglum
að éta á hverjum einasta degi.
Birgir kallar á smáfuglana með
bílflauti og hvetur alla til að
gæta að smáfuglunum.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég var bara úti í búð að kaupa
brauð,“ segir Birgir Helgason léttur
í bragði þegar Fréttablaðið nær af
honum tali. Hann er duglegur að
birta myndir af því í Facebook-
hópnum Fuglafóðrun þegar hann
gefur hinum ýmsu fuglum að éta
skammt frá heimili sínu í Hveragerði.
„Eins og til dæmis í dag, þegar
hefur rignt í gær og alla nótt, þá varla
borgar sig að standa í því að gefa. En
ég geri það nú samt því það er allt
gaddfreðið þarna úti þar sem ég gef
þeim,“ segir Birgir sem hefur ásamt
eiginkonu sinni, Sigrúnu Guðmunds-
dóttur, gefið á hverjum einasta degi
undanfarin ár.
„Ég hef gert þetta í svona sex eða
sjö ár og þetta byrjar í desember og
stendur alveg fram í mars, þó að það
fari auðvitað eftir snjóalögum,“ segir
Birgir.
Hann segir þetta hafa verið afar
mikilvægt þennan sérlega harða
vetur. „Undanfarnar fimm, sex vikur
hafa verið snjóalög yfir öllu og ég er
auðvitað austur í Hveragerði og það
er hérna heilmikið óbyggt landsvæði
þegar maður kemur niður Kambana,
á vinstri hönd áður en maður kemur
inn af hringtorginu. Þar er stórt
svæði þar sem ég hef getað gefið
þeim.“
Birgir hefur gefið fuglunum á sama
stað öll þessi ár á hverjum einasta
degi. „Og ég byrjaði fyrir nokkrum
árum síðan að flauta tvisvar, svona
bíb-bíb, þegar ég var að koma inn á
stæðið og þá bara kom allur mökkur-
inn.“
Bíllinn bilaði hjá Birgi á dögunum
og þá gat hann ekki flautað. „Ég fór
fótgangandi og lenti þá í vandræðum
með það hvað ég ætti að gera til að
láta þá vita, þannig að ég prófaði
bara að berja í botninn á þessari
tíu lítra fötu sem ég fer með alltaf
og heyrðu, það bara fylltist loftið af
fuglum.“
Birgir segir að á venjulegum degi
komi þrestir, snjótittlingar og starar.
„Þeir koma á hverjum degi. Svo þar
fyrir utan fæ ég gæsir, auðnutitt-
linga, krumma og dúfur, þannig að
ég er með sjö tegundir af fuglum
en ekki allt saman í einu, gæsirnar
komu hérna um daginn og voru í
tvær vikur en svo hef ég ekkert séð
þær meira.“
Þá hefur krumminn verið dug-
legur að heimsækja Birgi og Sigrúnu.
„En nú er hann að ná sér í kærustu
og má ekkert vera að því að borða.
Maður sér munstur í þessu öllu
saman eftir öll þessi ár.“
Birgir hefur verið duglegur að
deila myndum af fuglunum inni á
Facebook-hópnum Fuglafóðrun. Þær
hafa slegið í gegn en það er eiginkona
hans Sigrún sem útbýr fóðrið. „Það
er gaman að geta deilt þessu og fólk
er að deila upplýsingum um hvaða
korn á að kaupa og svona, og þegar
maður gerir þetta á hverjum degi
eins og ég getur verið smá kostnaður
við þetta og maður þarf að velja réttu
verðin.“
Birgir segir eiginkonu sína allt í
öllu í þessum málum. „Ég er aðallega
í því að fara með þetta út í óræktina
og vaða snjóskaflana en hún sér
um að blanda þetta og við notum
í þetta matreiðsluvél og hökkum
þetta saman, þá getur maður tekið
brauð og allt milli himins og jarðar,
olíu og feiti og allt þetta en við gefum
flestum fuglunum brauð og korn og
annað slíkt en svo fær krummi sér-
fæði. Þannig að hann fær mataraf-
gangana og grófari mat og honum gef
ég annars staðar líka. Ég gef krumma
lengst í burtu svo hann geti komið
þangað og sótt sinn mat og svo gef
ég smáfuglunum annars staðar.“
Birgir segist mæla með þessu fyrir
alla. „En ég er líka kominn á þann
aldur að ég er ekki í vinnu og svona
en þetta er bara skemmtilegt.“ n
Og ég byrjaði fyrir
nokkrum árum síðan
að flauta tvisvar, svona
bíb-bíb.
Birgir Helgason.
Í HELGARBLAÐINU
Birgir og Sigrún slá í gegn með
sjö tegundum af fuglum
Nýlega voru endur í hópi þeirra fugla sem gæddu sér á mat frá þeim Birgi og Sigrúnu. MyNd/AÐsENd
Fuglarnir koma alltaf um leið og Birgir flautar bílflautunni. MyNd/AÐsENd
toti@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
Rúnar Freyr
Gíslason
verkefnastjóri
Söngvakeppn-
innar á RÚV
„Vinnulag um
vistun og með-
ferð efnisins
hefur verið tekið
föstum tökum,“
segir Rúnar Freyr Gíslason, verk-
efnastjóri Söngvakeppninnar á
RÚV, þegar hann er spurður hvort
RÚV hafi, í ljósi sögunnar, áhyggjur
af því að lögin í Söngvakeppninni
leki út áður en þau verða kynnt í
sérstökum þætti, Lögin í Söngva-
keppninni, á laugardagskvöld.
„Við höfum gert ráðstafanir sem
við teljum og auðvitað vonum að
geri það að verkum að svona leki,
eða þjófnaður komi ekki upp í ár,“
segir Rúnar Freyr en í fyrra birtust
lögin sem þá kepptu á vefsíðunni
eurovisionfun.com kvöldið áður
en þau voru kynnt í Sjónvarpinu.
Þá lak Eurovision-lag Daða
Freys, 10 years, á netið innan við
sólarhring eftir að því var skilað
til keppninnar. Málið var litið
alvarlegum augum hjá RÚV þar
sem litið var á það sem hreinan og
kláran þjófnað.
„Annars gleðjumst við auðvitað
yfir þeim gríðarlega áhuga sem
virðist vera á Söngvakeppninni,
bæði hérlendis og erlendis,“ segir
Rúnar og bætir við að þegar kynn-
ingu laganna lýkur annað kvöld
verði hægt að fara inn á songva-
keppnin.is, hlusta á lögin og kynna
sér málin betur.
Öll lögin tíu verða svo gefin út
sama kvöld á Spotify á íslensku
og á ensku í öllum tilfellum nema
einu.
„Vorið nálgast. Gleðilega
Söngvakeppni,“ segir Rúnar Freyr
brosandi. n
Eurovision-lögin
ættu ekki að leka
Lag Daða lak fyrir tveimur árum við
lítinn fögnuð í Efstaleitinu.
Sérfræðingurinn
Ég hataði
sjálfa mig
Tinna Aðalbjörnsdóttir missti allt í
hendur stjórnlausrar fíknar en segir
stóru eftirsjána liggja í því að hafa
ekki sagt fyrr frá kynferðisof beldi
sem hún varð fyrir á barnsaldri.
Ef hún hefði sagt frá leyndarmál-
unum hefði ævi hennar mögulega
orðið öðruvísi. Tinna segist eiga
starfsfólki Hlaðgerðarkots lífs sitt
að launa.
Fann ástina á
Íslandi
Danshöfundurinn og leikstjórinn
Lee Proud kom hingað til lands í
fyrsta sinn fyrir tíu árum og hefur
tekið þátt í f jölmörgum upp-
færslum atvinnuleikhúsanna. Eftir
að hann fann ástina á Ölstofunni
skiptir hann tíma sínum á milli
Íslands og London.
Heili karla minnkar við
barneignir
Nýverið kom út vísindagrein í tímaritinu Cerebral
Cortex, þar sem sýnt er fram á að heili karla geti minnk-
að við það að verða feður, en um leið gert þá að betri
uppalendum.
26 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 27. jAnúAR 2023
fÖSTUDAGUR