Fréttablaðið - 31.01.2023, Qupperneq 4
48,5 metrar á sekúndu
mældust á Hellisheið-
inni í gær.
Við getum ekki stýrt
fjöldanum. Á heims-
höfunum er frjáls
sigling.
Ásgrímur Lárus
Ásgrímsson,
framkvæmda-
stjóri aðgerða-
sviðs Land-
helgisgæslunnar
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Alex og William
manual hvíldarstólar
Alex manual með 20% afsl. 195.000 kr.
Alklæddir
Anelín leðri
Litir: svart,
dökkbrúnt og cognac
William manual með 20% afsl. 215.000 kr.
Nú með
20%
afslætti
Búist er við góðum vexti á komandi
árum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Í greiningu Global
Data á íslenska bílaleigumarkað-
inum er gert ráð fyrir 7,5 prósenta
árlegum meðalvexti til ársins 2025.
Helsta ástæðan er fjölgun erlendra
ferðamanna og aukið aðgengi að
ýmsum tegundum bíla til leigu.
Kemur þar fram að 60 prósent
erlendra ferðamanna sem koma
til Íslands vilji kynnast landinu
með því að keyra um það sjálf.
Ekki er gert ráð fyrir að þetta hlut-
fall minnki á komandi árum nema
síður sé.
Helsta áskorunin sem bílaleigur á
Íslandi standa frammi fyrir er hins
vegar hár viðhaldskostnaður. Hann
er einkum tilkominn vegna erfiðra
veðurskilyrða og færðar. Önnur
vandamál sem greinin stendur
frammi fyrir eru dýrar tryggingar
og fæð bílastæða á vinsælum ferða-
mannastöðum. Væntanleg sam-
keppni frá fyrirtækjum á borð
við Uber og Lyft geti einnig reynst
áskorun. n
Viðhald er versti
óvinur bílaleiga
Áhyggjuraddir heyrast vegna
sístækkandi skemmtiferða-
skipa sem tekur langan tíma
að tæma í björgun. Land-
helgisgæslan beinir augum
sínum að þessari vá.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ÖRYGGISMÁL Í vor taka Landhelgis-
gæslan og aðrir viðbragðsaðilar
þátt í tveimur æfingum vegna slysa
skemmtiferðaskipa. Annars vegar er
það æfing í Faxaflóa, sem er sú höfn
sem tekur við f lestum skemmti-
ferðaskipum. Hins vegar er það
æfing á Seyðisfirði vegna ferjunnar
Norrænu.
„Augu viðbragðsaðila á Íslandi
hafa beinst að þessu og það hefur
orðið vakning um að fólk þarf
að kynna sér þetta betur,“ segir
Ásgrímur Lárus Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar. Búist er við mikilli
fjölgun skemmtiferðaskipa á þessu
ári. Skráður farþegafjöldi sex stærstu
hafnanna er 812 þúsund í ár saman-
borið við 448 þúsund árið 2022.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst
varðandi öryggi skemmtiferða-
skipa, sem fara sífellt stækkandi. Í
dag taka þau stærstu 7 þúsund far-
þega, rúmlega þrefaldan fjölda Tit-
anic. Því hefur verið haldið fram að
aldrei geti verið öruggt að sigla með
svo mikinn fjölda, sökum þess tíma
sem taki að koma öllum frá borði.
20 skemmtiferðaskip hafa sokkið
á hálfri öld. Þá sé þjónustufólkið
oft ekki vant sæferðafólk og ekki
sé hægt að nota björgunarbáta við
allar kringumstæður.
Björgunarbáta var til dæmis ekki
hægt að nota þegar skipið Viking
Sky bilaði við Hustadvika, vestan
við Þrándheim í Noregi, árið 2019.
Afar litlu munaði að skipið strand-
aði í miklum stormi með nærri
1.400 manns innanborðs. Sex þyrlur
ferjuðu fólk í burtu en eftir sólar-
Æfingar vegna skemmtiferðaskipa
hring, þegar loksins tókst að stýra
skipinu frá skerjagarðinum, voru
enn þá 1.000 manns um borð.
Ásgrímur segir að það yrði mikil
áskorun fyrir Íslendinga að takast á
við svona verkefni. „Það var áskorun
fyrir Norðmennina og það yrði það
fyrir allar þjóðir,“ segir hann.
Landhelgisgæslan á þrjár þyrlur
og stefnt er að því að hafa ávallt tvær
tiltækar á meðan ein er í lengra við-
haldi. Næstu björgunarþyrlur eru
í Skotlandi, Noregi, Grænlandi og
Færeyjum en það tekur tíma að
fljúga þeim hingað, taka eldsneyti
og f leira þannig að það tæki um
sólarhring þar til þær gætu sinnt
björgun hér. Danir gætu sent hingað
skip frá Færeyjum og Grænlandi
en það tekur allt að tveimur sólar-
hringum.
Í Noregi hefur orðið vakning
um þetta og aukning hefur verið í
smærri skemmtiferðaskipum, sem
taka aðeins 300 til 400 farþega.
Spurður um þetta segir Ásgrímur að
það sé vissulega viðráðanlegri stærð
þegar kemur að fjöldabjörgun. Síð-
asta æfing sem Landhelgisgæslan
tók þátt í, síðastliðið haust, snerist
einmitt um fjöldabjörgun í litlu
skemmtiferðaskipi við Svalbarða.
„Við getum ekki stýrt fjöldanum.
Á heimshöfunum er frjáls sigling.
Meira að segja innan landhelginn-
ar er frjáls saklaus för,“ segir hann.
„Það er áhætta í öllu. Það er áhætta
að f ljúga. Það er áhætta að vera í
rútu. Það getur ýmislegt komið upp
á í skipi.“ Auk þess að verða vélar-
vana getur komið upp eldur í skipi,
sýking, kælikerfið getur bilað eða
hitakerfið, svo dæmi séu tekin.
Þrátt fyrir mikla fjölgun skemmti-
ferðaskipa sér Ásgrímur ekki fram á
fjölgun í mannskap eða búnaði hjá
Landhelgisgæslunni. Hún muni
gera það besta með það sem hún
hefur. Aðspurður hvað skorti helst
segir Ásgrímur að sennilega myndu
forystumenn allrar strandgæslu
svara á sömu leið. „Fleiri skip, f leiri
þyrlur og meiri mannskap. Og menn
myndu brosa með.“ n
Minnstu munaði
að stórslys yrði
þegar Viking Sky
rak að strönd-
inni við Hustad-
vika árið 2019.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
kristinnhaukur@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Japanska hval-
veiðifyrirtækið Kyodo Senpaku
hefur óskað eftir meira hvalkjöti frá
Íslandi til að selja í nýjum sjálfsaf-
greiðsluverslunum. Einnig að jap-
anska ríkisstjórnin auki hvalveiði-
kvótann.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá um miðjan mánuðinn verður
íslenskt hvalkjöt selt í fjórum sjálfs-
afgreiðsluverslunum í Tókýó, Osaka
og Yokohama. Tæplega 3 þúsund
tonn af íslensku langreyðarkjöti
voru send til Japan fyrir jól, bæði
afli sumarsins og eldra kjöt. Þar er
kjötið unnið í ýmsar vörur, svo sem
hvalabeikon og onomi, það er kjöt af
sporðinum sem þykir fínt.
Nú segir Konomu Kubo, talsmaður
Kyodo Senpaku, við fréttastofuna
AP að fyrirtækið hyggist opna 100
sjálfsafgreiðsluverslanir. Einnig að
óskað hafi verið eftir meira kjöti
því 5.000 tonna hvalveiðikvóti jap-
anskra stjórnvalda dugi ekki til að
halda greininni uppi. Hafa ber þó í
huga að Japanir nýttu aðeins 80 pró-
sent af kvótanum á síðasta ári. Aðal-
lega er veitt norðan við eyjaklasann.
Þá hyggst Kyodo Senpaku láta
smíða nýtt hvalveiðiskip til að
leysa hið aldna skip Nisshin Maru
af hólmi. Mun það kosta 6 milljarða
jena, sem samsvarar um 6,5 millj-
örðum íslenskra króna.
Ástæðan fyrir því að hvalkjötið er
selt í sjálfsölum er sú að flestir stór-
markaðir vilja ekki selja kjötið. Þeir
markaðir og veitingastaðir sem hafa
selt hvalkjöt hafa lent í vandræðum,
einkum vegna mótmæla andstæð-
inga hvalveiða. n
Japanir vilja meira hvalkjöt frá Íslandi í sjálfsalana
Stórmarkaðir vilja ekki selja hvalkjöt þannig að opnaðar voru sjálfsaf-
greiðslubúðir. MYND/AÐSEND
benediktboas@frettabladid.is
RYKJAVÍK Fulltrúar Sjálfstæðis-
f lokksins í innkaupa- og fram-
kvæmdaráði Reykjavíkurborgar
lýstu yfir furðu sinni á hversu
langan tíma það tæki að svara fyrir-
spurnum á síðasta fundi ráðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði fram
tvær fyrirspurnir í júní í fyrra og
bíður enn svara. „Þetta ámælisverða
verklag segir sína sögu um stjórnun
ráðsins en greinilegt er að formaður
þess lætur sér slíka upplýsingatregðu
í léttu rúmi liggja,“ segir í bókun
flokksins en Sabine Leskopf, fulltrúi
Samfylkingar, er formaður ráðsins. n
Finnst ámælisvert
hvað tekur langan
tíma að svara
arnartomas@frettabladid.is
VEÐUR Lægðin sem nú gengur yfir
landið gerði vart við sig í gærkvöldi
þegar mikill bylur skall skyndilega
á. Mesti vindur mældist 48,5 metrar
á sekúndu á Hellisheiðinni í gær og
43,2 í Kerlingarfjöllum. Veðurfræð-
ingur býst við að veðrinu muni slota
með kvöldinu.
„Framan af verður þetta verst á
Vesturlandi, Breiðafirði og Vest-
fjörðum,“ segir Eiríkur Örn Jóhann-
esson veðurfræðingur hjá Veður-
stofu Íslands. „Suðausturland fær
svo hvell undir hádegið en síðan fer
þessu jafnt og þétt að lægja.“
Eiríkur segir að undir kvöld verði
veðrið víðast hvar orðið skaplegt
en ennþá verði smá strengur á Vest-
fjörðum og með suðausturströnd-
inni. Búist er við að veðrið verði þá
með rólegra móti fram á fimmtudag
þegar næsti hvellur er væntanlegur.
„Næsta lægð er að koma þá en
eins og þetta lítur út núna ætti hún
ekki að vera jafnslæm,“ segir Eiríkur
Örn. n
Lægðin að mestu gengin yfir með kvöldinu
Næsti hvellur er væntanlegur á
fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. JANÚAR 2023
ÞRIÐJUDAGUR