Fréttablaðið - 31.01.2023, Síða 8
Það verður ekki séð að
tímasetningin sem slík
fari gegn lögunum
enda þótt hefðin á
vinnumarkaði kunni
að hafa verið önnur.
700
metrum
yfir
sjávarmáli
verður
nýja
aðstaðan.
Aðalatriðið er þetta:
Allir geta komið í
Kerlingarfjöll, tjaldað
þar, gist í skála eða í
góðum herbergjum.
Magnús Orri
Schram, fram-
kvæmdastjóri
Kerlingarfjalla
Pláss verður fyrir 100 gesti í
nýrri og endurbættri ferða-
þjónustu í Kerlingarfjöllum,
en framkvæmdastjóri á
svæðinu segir að þar komi til
sögunnar alveg ný og áður
óþekkt vara í geiranum.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Gagngerar end-
urbætur standa nú yfir á öllum
mannvirkjum í Ásgarði í Kerlingar-
fjöllum og er stefnt að því að opna
svæðið fyrir ferðamönnum á ný á
vormánuðum.
„Við erum búin að vera að undir-
búa nýja starfsemi í á þriðja ár,“
segir Magnús Orri Schram, fram-
kvæmdastjóri Kerlingarfjalla, og
lýsir umskiptum í ferðaþjónust-
unni á svæðinu.
„Við erum að taka allt svæðið í
gegn,“ segir hann. „Meðal annars
erum við að byggja nýtt og rúmgott
veitingahús á grunni þess gamla
sem verður glæsilegt í alla staði
– og bæta við vönduðum hótel-
rýmum í nýrri álmu, ásamt því að
bæta allan húsakost sem fyrir er,
svo sem gömlu A-húsin sem hafa
verið einkennandi fyrir svæðið,“
heldur hann áfram og bætir því
við að heitar laugar muni standa
gestum Kerlingarfjalla til boða á
haustmánuðum, en þær verða stað-
settar inn af veitingaskálanum.
„Þessi böð verða sérstök að því
leyti að þau standa í bratta,“ segir
Magnús Orri, en nú sé verið að
vinna að því að afla þeim nægilegs
vatns.
Þá verða tjaldsvæðin bætt að
miklum mun, upplýsingaskiltum
fjölgað, gönguleiðir merktar og
nýjar stikaðar, „og í vor kemur út
ný bók um allar gömlu gönguleið-
irnar á svæðinu,“ segir Magnús Orri
og bendir á að allt verkið sé unnið
í góðu samstarfi við Umhverfis-
stofnun.
„Aðalatriðið er þetta: Allir geta
komið í Kerlingarfjöll, tjaldað
Heilsársferðaþjónusta opnuð á miðju hálendi
Kerlingarfjöllin nýlega friðlýst
Kerlingarfjöll eru mikill fjallabálkur á miðhá-
lendi Íslands, rétt sunnan Hofsjökuls. Svæðið
allt var friðlýst sem landslagsverndarsvæði
2020.
Markmið friðlýsingarinnar er að vernda
merkilegar jarðminjar svæðisins, landslag,
óbyggðir og ásýnd þess. Friðlýsingunni er einn-
ig ætlað að efla Kerlingarfjöll sem útivistar-
svæði, en fjöllin hafa í áratugi verið vinsæll
áfangastaður göngu- og skíðafólks.
Verndarsvæðið nær utan um Kerlingarfjöll í
heild sinni ásamt nærliggjandi óbyggðum suð-
vestur af Hofsjökli – alls 344 ferkílómetrar.
HEIMILD: UMHVERFISSTOFNUN
Ferðaþjónustan
í Kerlingar-
fjöllum tekur
stakkaskiptum
á árinu. Í fyrsta
sinn er verið
að bjóða upp á
vandaða heils-
ársþjónustu
inni á miðju
hálendinu.
MYND/AÐSEND
þar, gist í skála eða í góðum her-
bergjum,“ segir Magnús Orri, en
pláss verður fyrir hundrað manns
í gistingu á staðnum, fyrir utan
tjaldstæðin.
Hann segir ferðaþjónustuna
innanlands hafa kallað eftir svona
þjónustu um árabil. „Tíðindin í
þessu eru þau að hér er komin til
sögunnar alveg ný og áður óþekkt
vara í íslenskri ferðaþjónustu. Í
fyrsta sinn er verið að bjóða upp
á vandaða heilsársþjónustu inni
á miðju hálendi. Nýja aðstaðan
gerir það að verkum að fólk getur
búið við góðar aðstæður og ein-
staka upplifun í 700 metra hæð
á einum óviðjafnanlegasta stað
íslenskrar náttúru,“ segir Magnús
Orri Schram. n
jonthor@frettabladid.is
K JARAMÁL Elín Blöndal, dósent
við lagadeild Háskólans á Bifröst
og sérfræðingur í vinnurétti og
vinnumarkaðsmálum, segir deilur
Ef lingar og ríkissáttasemjara um
miðlunartillögu þess síðarnefnda
bæði varða lög um stéttarfélög og
vinnudeilur og hefðir og venjur á
vinnumarkaði.
Ef samningaumleitanir sátta-
semjara bera ekki árangur er
honum heimilt að leggja fram miðl-
unartillögu til lausnar vinnudeilu.
„Þetta varðar heimildir ríkis-
sáttasemjara og hvernig hann beitir
þeim,“ segir Elín, sem bendir á að í
lögunum segi að sáttasemjari megi
leggja fram miðlunartillögu við
þessar aðstæður en þá þurfi hann
að ráðgast við, eða eiga samráð við,
samningsaðilana, Eflingu og Sam-
tök atvinnulífsins.
„Málið fyrir héraðsdómi snýst
meðal annars um hvort þessi skilyrði
séu til staðar. Það er ekkert augljóst
að svo hafi ekki verið,“ segir hún.
„Það eru margir sem telja að hann
hafi stigið of snemma fram. Það er
eitt sjónarmið en það verður ekki
séð að tímasetningin sem slík fari
gegn lögunum enda þótt hefðin á
vinnumarkaði kunni að hafa verið
önnur. Annað sjónarmið er að það
hafi enginn samningsvilji verið
til staðar og því hafi verið rétt hjá
sáttasemjara að stíga inn. Það er erf-
itt að segja hvað er rétt í þessu þegar
maður hefur ekki allar forsendurn-
ar. En það er ljóst að þarna reynir
mjög á mörkin milli sjálfstæðis aðila
vinnumarkaðarins annars vegar, og
þá sérstaklega stéttarfélaganna, og
íhlutunar ríkisvaldsins, líkt og ríkis-
sáttasemjara, hins vegar,“ segir Elín.
Hún veit ekki til þess að áður hafi
reynt á rétt ríkissáttasemjara til að
fá félagatal stéttarfélags. „Það verður
bara að koma í ljós,“ segir Elín spurð
hvernig hún haldi að mál sáttasemj-
ara gegn Eflingu, sem var tekið fyrir
í héraðsdómi í gær, muni fara.
Varðandi stjórnsýslukæru Ef l-
ingar til félags- og vinnumarkaðs-
ráðuneytisins vegna miðlunartil-
lögunnar segir Elín þá kæru vera
óvenjulega. R ík issáttasemjar i
hafi hingað til talist sjálfstæður í
störfum sínum og ekki litið svo á
að ákvarðanir hans verði kærðar til
ráðherra. „Það er þá nýmæli ef það
verður niðurstaðan,“ segir Elín. n
Telur kæru Eflingar óvenjulega
kristinnpall@frettabladid.is
ÍSAFJÖRÐUR Skipulags- og mann-
virkjanefnd lagði til að bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar myndi samþykkja
valkost sem felur í sér að byggt
verði á svæði púttsvæðis eldri
borgara, vegna stækkunar á hjúkr-
unarheimilinu Eyri. Lögð er áhersla
á að púttvöllurinn verði að hluta til
nýtanlegur á meðan framkvæmd-
unum stendur og uppbyggingu nýs
vallar verði lokið samhliða fram-
kvæmdum við nýja álmu. Málið
verður tekið fyrir í bæjarstjórn á
næstu dögum.
Alls voru tveir valkostir lóða
vegna stækkunar hjúkrunarheim-
ilisins kynntir fyrir nefndinni og
var samhugur um að mæla með
valkostinum sem fæli í sér að byggt
yrði á svæði púttvallarins. Það þyki
hagkvæmara með tilliti til stofn-
og rekstrarkostnaðar þar sem það
munaði rúmlega þrjátíu milljónum
í áætluðum kostnaði en komi niður
á hluta púttvallarins ásamt því að
það þarf að færa listaverkið „Úr
álögum“ eftir Einar Jónsson sem
hefur staðið þar í rúma tvo áratugi
á nýjan stað.
„Þetta eru vonbrigði. Við þekkj-
um alveg vinnubrögð í svona fram-
kvæmdum. Því er lofað að pútt-
völlurinn eigi að vera jafn góður en
það tekur sinn tíma. Það er sérstakt
efni og gras í púttvöllum sem þess-
um því þetta er ekki bara gras úti í
bæ,“ segir Sigrún C. Halldórsdóttir,
formaður Félags eldri borgara á Ísa-
firði, spurð um tíðindin.
Félagið sendi beiðni fyrr í vetur
um að farið yrði eftir upprunalegu
teikningunum um stækkun Eyrar
sem myndi hlífa púttvellinum.
„Við erum hrædd um að þetta gæti
tekið langan tíma og erum ekki
ánægð. Við lögðum mikinn pening
í þennan púttvöll á sínum tíma og
teljum okkur því eiga hlut að máli.
Við ræddum það á síðasta stjórnar-
fundi að fara fram á að þetta verði
selt og fá peningana til baka því
það er verið að valta yfir okkur.“ n
Skipulagsráð vill fórna
púttvelli eldri borgara
Daníel Isebarn, lögmaður Eflingar, og Sólveig Anna. FRÉTTABLAÐIÐ/DIDDI.
Elín Blöndal,
dósent við
lagadeild
Háskólans á
Bifröst
Eldri borgarar á Ísafirði eru allt
annað en sáttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. JANÚAR 2023
ÞRIÐJUDAGUR