Fréttablaðið - 31.01.2023, Blaðsíða 20
Ef tekjurnar minnka
eitthvað á móti og
árangur liðsins inni á
vellinum verður verri,
þá getur Chelsea verið
í vondum málum.
Jóhann Már
Helgason,
viðskiptafræð-
ingur og spark-
spekingur
Chelsea hefur eytt allsvaka-
legum fjárhæðum í knatt-
spyrnumenn frá því að félagið
fékk nýja eigendur síðastliðið
vor. Þegar reglur Evrópska
knattspyrnusambandsins um
fjárhagslega háttvísi eru teknar
inn í myndina virðist ótrúlegt
hvað félagið hefur getað greitt
fyrir nýja leikmenn. Það eru
þó ýmsar ástæður fyrir því.
FÓTBOLTI Jóhann Már Helgason, við-
skiptafræðingur og sparkspekingur,
er ansi fróður um fjármála- og við-
skiptahliðina hjá enska úrvalsdeild-
arfélaginu Chelsea, sem hefur undir
stjórn nýrra eigenda farið mikinn á
félagsskiptamarkaðnum og komið
inn með nýja vinda í leiðinni.
Frá því að Bandaríkjamaðurinn
Todd Boehly, ásamt Clearlake Capi-
tal, keypti Chelsea af hinum rúss-
neska Roman Abramovich í maí
árið 2022 hefur félagið eytt tæplega
fimm hundruð milljónum punda í
nýja leikmenn.
Margir furða sig á því að Evr-
ópska knattspyrnusambandið (e.
UEFA), með sitt regluverk um fjár-
hagslega háttvísi, hafi ekki gripið
inn í en Jóhann Már segir Chelsea
ekki sloppið fyrir horn hvað þetta
varðar.
„Mögulega mun regluverkið að
lokum narta í Chelsea, en þetta er
ákveðið veðmál sem Todd Boehly og
Clearlake Capital eru til í að taka.“
Veðmálið felst í því að Boehly og
félagar eru að Ameríkuvæða samn-
ingsgerðina við leikmenn.
„Við höfum ekki séð þetta áður
í ensku úrvalsdeildinni, aðallega
höfum við verið að sjá fimm til sex
ára samninga í allra mesta lagi.
Það sem Boehly er að gera núna er
það að hann gefur út mun lengri
samninga og um leið dreifir hann
greiðslunum, það er kaupverðinu
plús launagreiðslum, á lengri tíma.
Þá afskrifast það per ár.“
Þekkt vestan hafs
Í bókhaldinu hjá Chelsea lítur það
því þannig út að hver leikmaður
kostar minna.
„Þetta er í sjálfu sér allt gott og
blessað, við sjáum þetta reglulega í
bandarískum íþróttum. Ég held að
stærsti íþróttasamningur sem hefur
verið gerður við einhvern einstak-
an leikmann hafi verið samningur
NFL-leikmannsins Patrick Maho-
mes við Kansas City Chiefs. Það var
einhver níu ára samningur á sínum
tíma.“
Þetta sé hins vegar eitthvað sem
þekkist ekki í knattspyrnuheimin-
um og í þessu er fólgin mikil áhætta
að mati Jóhanns Más.
„Ef tekjurnar minnka eitthvað á
móti og árangur liðsins inni á vell-
inum verður verri, þá getur Chelsea
verið í vondum málum. Í þessum
kringumstæðum sem við sjáum
núna liggur í augum uppi að það
verður að auka tekjurnar á móti.
Evrópska knattspyrnusamband-
inu (UEFA) líkar einhverra hluta
vegna ekki vel við að þetta sé raun-
in. Nú hafa hugmyndir verið viðr-
aðar um að sett verði á sérstök fimm
ára regla í tengslum við afskriftar-
tímabil hvers leikmanns. Þú mátt
þess vegna gera fimmtán ára samn-
ing við leikmann en þarft að afskrifa
kostnaðinn á fimm árum.
Þetta er ekki komið í gegn en af
því að það er byrjað að ræða þetta
held ég að Chelsea sé að leggja alla
áherslu á að reyna að tryggja sér leik-
mann á borð við Enzo Fernandez, til
þess að geta látið samning hans vera
á einhverjum sjö, átta árum.“
Mikil áhætta
Jóhann Már tekur sem dæmi einn
af nýjustu leikmönnum Chelsea,
Ú k r a í nu m a n n i n n My k h ajlo
Múdryk sem var keyptur til félags-
ins fyrir rúmar 88 milljónir punda
og fékk átta og hálfs árs samning.
„Launin hans eru frekar lág til
að byrja með miðað við það sem
gengur og gerist. Hann er að fá ein-
hver 97 þúsund pund á viku, sem er
svona ekkert sérstakt samanborið
við það sem allra helstu leikmenn
eru að fá, en á þessum samnings-
tíma mun hann hins vegar hækka
ítrekað í launum.“
Þetta sé leikplanið hjá eigendum
Chelsea í hnotskurn og í tilfelli
Mudryk mun kostnaður félagsins
við hann afskrifast á þessu átta og
hálfu ári.
Auðvelt er að sjá muninn á nálgun
félaga í ensku úrvalsdeildinni með
því að bera saman kaup Chelsea á
Mudryk við kaup Arsenal á Leandro
Trossard.
„Trossard fær þriggja ára samning
og ágætiskaup hjá Arsenal en félagið
er að borga meira fyrir hann hvert
ár heldur en Chelsea fyrir Múdryk
þrátt fyrir að verulegur munur sé
á milli í kaupverði þessara tveggja.
Kostnaðurinn er þó sannarlega
til staðar hjá Chelsea þetta átta og
hálfa ár. Þá má segja sem svo að ef
eitthvað klikkar hjá Chelsea tekju-
lega séð þá er UEFA og regluverk
þess um fjárhagslega háttvísi komið
á eftir þeim.“
Sjá úrvalsdeildina stækka
Þá felist einnig margvísleg áhætta í
umræddum samningum sem Chel-
sea er að gera. Til að mynda ef leik-
menn standa ekki undir væntingum
eða það dregur verulega úr söluand-
virði þeirra af einhverjum ástæðum.
Chelsea búi yfir dæmum frá fyrri
tíð þar sem leikmenn, sem keyptir
voru fyrir háa fjárhæð, fengu langan
samning en stóðu svo ekki undir
væntingum.
„Leikmaður á borð við Danny
Drinkwater sem varð bara að
óhreyfanlegri eign hjá Chelsea. Það
var ekkert lið sem vildi taka launa-
pakkann hans og það var ekki hægt
að selja hann. Maður sér svona
dæmi oft og ítrekað en þess vegna
er mun mikilvægara fyrir vikið að
reyna að halda launapakkanum
eins lágum og hægt er og gera þá
lengri samning á móti.“
Boehly og Clearlake Capital
sjái ákveðin sóknarfæri í Chelsea,
ónýtta auðlind.
„Þeir voru að borga hátt verð
fyrir félagið, einhverja 2,5 milljarða
punda með skuldbindingu upp á
að setja síðan 1,5 milljarða í viðbót
í félagið, meðal annars til þess að
stækka leikvang Chelsea.
Þeir líta bara svo á að enska
úrvalsdeildin sé undirverðmetin
og halda að tekjurnar í deildinni,
sem og knattspyrnuheiminum,
muni aukast verulega. Þetta er
annað veðmál sem þeir eru að taka
en tekjurnar hafa aukist verulega í
enska boltanum.
Árið 2010 var Chelsea að velta
um 200 milljónum punda árin
2008–2009 en nú hefur sú upphæð
tvöfaldast og maður spyr sig hvar er
markið? Boehly og Clearlake Capital
eru að eyða töluverðum peningum
vegna þess að þeir halda að þeir geti
aukið bæði verðgildi Chelsea sem og
knattspyrnunnar á heimsvísu sem
vörumerkis.“ n
Nóg til á Brúnni
Forráðamenn
Chelsea hafa
ekki setið
auðum höndum
eftir að hafa
keypt félag-
ið af Roman
Abramovich
árið 2022. Miklar
breytingar hafa
átt sér stað á
leikmannahóp
liðsins sem og
þjálfarateymi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Helgi Fannar
Sigurðsson
helgifannar
@frettabladid.is
16 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. JANÚAR 2023
ÞRIÐJUDAGUR