Rökkur - 01.04.1949, Blaðsíða 44
44
R O K K U R
Um uppeldi blómjurta
IJegar sumariS nálgast og
sólin hækkar á lofti og vekur
og vermir með ylgeislum sin-
um gróðurinn af dvala vetr-
arins, byrjar annatíminn hjá
þeim, sem stunda garðyrkju-
störf.
Öllum garðyrkjustörfum
er það sameiginlegt, að þau
verða að vera unnin af vand-
virkni, hirðusemi , ástundun
og að gæta verður fyllsta
þrifnaðar til að fyrirbyggja
sjúkdóma, þvi að auðveldara
og betra er að fyrirbyggja
sjiikdómana, en lækna þá.
Eg mun i eftirfarandi grein
geta um nokkur helztu atrið-
in í uppeldi blómjurta fyrir
skrúðgarða.
Nú er ekki seinna vænna
að fara að tryggja sér gott
fræ og sá í potta eða kassa
inni. Þeir sem hafa vermi-
reiti eða vermihús nota þau
að sjálfsögðu við jurtaupp-
eldið.
Enginn ætti að óreyndu að
kaupa fræ nema frá vel-
þekktum og viðurkenndum
fræverzlunum, sem ábyrgj-
ast að grómagn fræsins sé
allt að 80—90% og að fræið
sé algjörlega laust við sjúk-
dóma, eftir því sem bezt
verður vitað.
Hver, sem kaupir fræ, ætti
að minnast þess, að það bezta
er ekki of gott. Að visu er
hægt að sótthreinsa fræið, en
nota verður mismunandi
efnasambönd eftir því um
hvaða tegund jurta er að
ræða, eða hvaða sjúkdómar
er álitið að séu, eða leynast
kunni í fræinu. Ef fræið lief-
ir verið keypt frá fræræktar-
stöðvum, þar sem öll ræktun
og sjúkdómaeftirlit er í
fyllsta lagi á slík sótthreinsun
fræsins að vera óþörf.
Fræ það, sem keypt hefir
verið til landsins frá helztu
fræræktarstöðvum á Norður-
löndum, liefir að öllum jafn-
aði reynst bezt.
Geymsla og spírun.
Sé fræið geymt á þurrum
og fremur köldum stað get-
ur það haldið nothæfu gró-
magni 1—5 ár eftir tegund-
um, flestar tegundir blóm-
jurta 2—3 ár^ en fræið smá-
tapar þó grómagni sínu við
langvarandi geymslu.
Sá tími, sem fræið þarf til
að spíra og koma upp, er lilcæ