Fréttablaðið - 03.02.2023, Side 1
| f r e t t a b l a d i d . i s |
FRÍTT
2 0 2 3
KYNN INGARBL
AÐALLT
FÖSTUDAGUR 3. febrúar 2023
Guðrún Jóhanna, eigandi Snyrtistofunnar Hafbliks, segir árangurinn af húðmeðferðunum sem hún veitir á stofunni vera ótrúlegan. Henni þykir ómetanlegt að
geta boðið upp á raunverulegan árangur með náttúrulegum meðferðum án inngripa með nálum eða skurðhníf.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Náttúrulegar og árangursríkar
viðgerðarmeðferðir hjá Hafbliki
Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir snyrtifræðimeistari og eigandi Snyrtistofunnar Hafbliks
hefur alltaf verið talsmaður náttúrulegra viðgerðarmeðferða á húð í andliti.
Guðrún Jóhanna hefur í gegnum
árin sérhæft sig í náttúrulegum
viðgerðarmeðferðum ásamt
háræðaslitsmeðferðum í andliti.
„Náttúrulegar viðgerðarmeð-
ferðir eru gerðar án inngripa
með nálum eða skurðarhnífum.
Þær bæta raunverulega starf-
semi húðarinnar svo hún verður
margfalt sterkari og heilbrigðari í
lok meðferðarkúrs. Það er mikið
gleðiefni að í dag eru enn fleiri
sem leita eftir náttúrulegum við-
gerðarmeðferðum í stað inngrips-
mikilla lýtaaðgerða,“ segir Guðrún
Jóhanna, eigandi snyrtistofunnar
Haf bliks í Kópavogi.
Á snyrtistofunni er boðið upp á
helstu húðmeðferðir, snyrtimeð-
ferðir, nudd sem og náttúrulegar
viðgerðarmeðferðir fyrir húð-
heilsu.
Undraverður og
raunverulegur árangur
„Með náttúrulegum viðgerðar-
meðferðum höfum við náð undra-
verðum og raunverulegum árangri
sem við erum afar stolt af og
viljum gjarnan koma á framfæri
við öll þau sem vilja eldast með
reisn,“ segir Guðrún Jóhanna.
Starfsemi og frumuendurnýjun
húðarinnar er stóraukin með
háþróuðum og byltingarkenndum
stofnfrumu-viðgerðarmeðferðar-
kúr frá Bandaríkjunum, þar sem
nýjustu hágæða örtækni er beitt
ásamt Intraceuticals súrefnismeð-
ferðum frá Ástralíu. „Meðferð-
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Fræðslan verður í Grasagarðinum í
kvöld á milli klukkan 18 og 19.
sandragudrun@frettabladid.is
Safnanótt hefst á öllu höfuð-
borgarsvæðinu í kvöld. Þá opna
fjölmörg söfn dyr sínar og bjóða
upp á skemmtilega og fjölbreytta
dagskrá. Lögð verður áhersla á að
bjóða upp á óhefðbundna viðburði
og veita gestum nýja sýn á söfnin.
Íbúar og gestir borgarinnar á
öllum aldri geta notið Safnanætur
fram eftir kvöldi sér að kostnaðar-
lausu. Safnanótt er hluti af Vetrar-
hátíð sem hófst í gær og lýkur á
morgun.
Fræðsla um garðverkfæri
Meðal þess sem er í boði í kvöld
er að kíkja í garðskála Grasagarðs
Reykjavíkur á milli klukkan 18
og 19 og læra allt um umhirðu
garðverkfæra. Vel brýnd og heil
verkfæri eru bestu vinir garðyrkju-
mannsins! Það er dýrt að láta verk-
færin sín drabbast niður að ekki sé
minnst á hversu slæmt það er fyrir
umhverfið!
Starfsfólk Grasagarðsins og
Skógræktarfélags Íslands verður
á staðnum til að kenna hand-
tökin við brýningar á klippum,
kantskerum, skóflum og fleiru. Þá
verður farið yfir hvernig eigi að
geyma verkfærin svo þau endist
sem lengst. Gestir eru hvattir til að
mæta með gömlu klippurnar sínar
í garðskálann í kvöld og gefa þeim
nýtt líf.
Viðburðurinn er samstarfsverk-
efni Grasagarðsins og Skógrækt-
arfélags Íslands og liður í Safnanótt
á Vetrarhátíð. n
Garðklippur fá
framhaldslíf
FÖSTUDAGUR 3. febrúar 2023
Konurnar sem standa hjarta þínu næst
Hjartað þitt
2023
HALLDÓR | | ?? PONDUS | | 14
2 4 . T Ö L U B L A Ð | 2 3 . Á R G A N G U R |
FRÉTTIR | | 2
MENNING | | 15
ÍÞRÓTTIR | | 10
LÍFIÐ | | 18
Kraftaverk í Nepal
Ökuþórar án
bílprófs
Tæmdu reikning
einstæðrar móður
Safnanótt víða um
höfuðborgina
F Ö S T U D A G U R 0 3 . F E B R Ú A R|
Eftirlit með þeim sem bjóða
ferðaþjónustu er lítið sem
ekkert, segir lögreglumaður.
Vændi hefur aukist til muna
eftir kipp í ferðaþjónustunni.
odduraevar@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL „Eftirlit með fyrir-
tækjum og einstaklingum sem
bjóða upp á einhvers konar ferða-
þjónustu og upplifanir er lítið sem
ekkert,“ segir Stefán Örn Arnarson
hjá miðlægri rannsóknardeild lög-
reglunnar í svari til Fréttablaðsins.
Lögreglunni voru sendar spurn-
ingar í kjölfar fréttar um bandarísk
hjón sem lýstu meintum svikum
íslensks ferðaskipuleggjanda.
„Þá er það grunur lögreglu að
umtalsverð starfsemi, tengd ferða-
mönnum, sé „svört“ starfsemi þar
sem aðilar starfa án leyfa og án þess
að gera skil á opinberum gjöldum,“
bætir Stefán Örn við.
Að sögn Stefáns Arnar væri ekki
erfitt að beita sér í málum sem tengj-
ast svikum gegn ferðamönnum.
„Ágætis lausn væri að hafa lítið
teymi sem hefði meðal annars það
verkefni að kanna leyfi og réttindi
aðila í ferðaþjónustu,“ svarar Stefán
Örn. Gæti það verið með svipuðu
sniði og gert sé með skemmtistaði
og dyraverði.
„Að mínu mati hlýtur það að
aukast, það er starfsemi án leyfa,
samhliða aukningu ferðamanna
hingað til lands. Þá höfum við séð
kippi annars staðar, til dæmis í fram-
boði vændis, sem hefur aukist til
muna eftir að ferðamannaiðnaður-
inn tók við sér á sínum tíma,“ segir
Stefán Örn. n
Meira vændi á Íslandi eftir
kipp í ferðaþjónustunni
Er það grunur lögreglu
að umtalsverð starf-
semi, tengd ferða-
mönnum, sé „svört“.
Stefán Örn Arnarson, hjá miðlægri
rannsóknardeild lögreglunnar
Bæjarstarfsmenn Seltjarnarness vaða djúpan poll til að losa stíflu í niðurfalli við Suðurströnd. Íslenski veturinn er samur við sig og nú koma lægðirnar ein af
annarri yfir landið eins og fiskflök á færibandi, beint sunnan úr Atlantshafinu. Ekki ber á öðru en það sé landsmönnum til armæðu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
MENNTAMÁL Grípa þarf til hagræð-
ingar í rekstri Háskóla Íslands vegna
minni fjárveitinga úr ríkissjóði og
segir Jón Atli Benediktsson rektor
það verða áskorun.
Nemendum hafi fjölgað í heims-
faraldrinum og það hafi komið á
óvart hvað stjórnvöld voru fljót að
draga fjárveitingar til baka.
„Að óbreyttu sjáum við fram á
niðurskurð í háskólakerfinu í heild
sinni,“ segir Jón Atli en á næsta ári
er gert ráð fyrir frekari samdrætti í
fjárveitingum til skólans. SJÁ SÍÐU 7
Niðurskurður hjá
Háskóla Íslands
Jón Atli Bene-
diktsson, rektor
Háskóla Íslands