Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 14
Vigdís Perla Maack er hluti af Sundballetthópnum Eilífðinni sem verður um víðan völl á Sundlauganóttum bæði Reykja- víkur og Kópavogs. Ekki er um sýningu að ræða heldur kynningu á forminu og er um þátttökutíma að ræða. „Aðalmálið er að missa sig í gleðinni og fíf laganginum,“ segir Vigdís. „Að sjálfsögðu er hápunktur tímans samdans, en í upphituninni erum við að læra á vatnið, sem er mótdansari okkar og hitum upp með ýmsum leikjum og æfingum sem styrkja og liðka.“ Vigdís segir að Sundballettinn starfi að mestu yfir sumartímann í samstarfi við Sumarborgina og þegar reglulegir tímar eru á dagskrá sé fjöldi fólks sem mætir alltaf. „Mamma mætir til dæmis alltaf, hlær kvenna hæst og svo dæsa allir eftir tímann og segja: „Þetta er svo gaman!“ Enda er gleðin ákveðið takmark.“ Vigdís segir að sundið sé fullkominn vettvangur tískuhugtaksins núvitundar. „Þetta er einn af fáum stöðum og tímum sem við erum ekki með símann í annarri. Þess vegna er auðveldara fyrir fólk að sleppa sér og eiga lítið sundball- ettævintýri.“ Það eru einhverjir sem stefna að því að taka alla þrjá sund- balletttímana á laugardag. „Já, og við erum að velta fyrir okkur hvort við ættum að taka alveg þrjú handklæði eða hvað … og svo sofnum við afar vært eftir þrjá sundballetttíma, þetta eru átök!“ Allir tímarnir eru ókeypis og ekki þarf að skrá sig. n n 16.00 Salalaug n 18.00 Grafarvogslaug n 20.00 Breiðholtslaug Gleðin allsráðandi í sundballett n Blúbb blúbb n Uppskriftin 3. feb 4. feb 5. feb Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Hvað er að gerast um helgina? n Beebee & The Bluebirds og Aldís FJóla kl. 20.30 Iðnó Beebee & The Bluebirds hafa gefið út tvær plötur, en nýverið gáfu þau út lagið „Mama knows best“ af þriðju plötu þeirra sem væntanleg er á árinu. Aldís Fjóla gaf út sína fyrstu sóló- plötu, Shadows 2020 og síðan þá hefur hún komið fram víðs vegar um landið, fengið gríðar- lega spilun í Finnlandi og víðar og meðal annars komið fram á Bræðslunni. n Jakob Birgis: Skóli Lífsins kl. 21.00 Sviðið, Selfossi Skóli lífsins er splunkunýtt og ferskt uppistand Jakobs Birgis- sonar. Sýningin hefur hlotið góðar viðtökur og alltaf er fullt út úr dyrum. n ApockalypsticK: Blóðugur Valentínus kl. 21.00 Gaukurinn Blóðug sýning um ást, ástar- sorg, ástsýki og sitthvað fleira. Pönkuð og hrá dragsýning. n Hver drap Gógó Starr? Bur- lesque morðgáta kl. 22.00 Þjóðleikhúskjallarinn Fjöllistasýning með morð- gátu-ívafi þar sem allt getur gerst! Spennuþrungin og stór- skemmtileg kvöldstund þar sem áhorfendur fylgjast með fjölbreyttum atriðum og reyna að komast til botns í morðgátu kvöldsins: Hver drap Gógó Starr? Var það tæknimaðurinn? Sviðs- stjórinn? Eða var það einn af skemmtikröftunum sem myrti kynni kvöldsins? Sjá umfjöllun á næstu síðu Frímínútna. n Kínversk nýárshátíð 2023 Háskóli Íslands Til að fagna nýju ári kanínunnar býður Konfúsíusarstofnun til kínverskrar nýárshátíðar á Há- skólatorgi. Drekadans, hljóð- færaleikur, skrautskrift, lukku- hjól og sitthvað fleira. n Sundballettinn Eilífðin 16.00 Salalaug 18.00 Grafarvogslaug 20.00 Breiðholtslaug Sjá umfjöllun annars staðar á síðunni. n Óperukvöldverður kl. 18.30 Gamla bíó Eftir mikla aðsókn á fyrstu óperuuppfærslu Kammeróper- unnar af Così fan tutte í október er komið að aukasýningum. n FLOTT kl. 20.00 Húrra Flott efnir til tónleika á Húrra laugardaginn 11. febrúar í tilefni að útgáfu lagsins Hún ógnar mér! Þetta eru fyrstu tónleikar Flott á höfuðborgarsvæðinu og mögulega síðustu ef enginn kaupir miða … n Eyþór Ingi og Babies heiðra Þursaflokkinn kl. 21.00 Græni hatturinn Í tilefni 40 ára útgáfu plötunnar Gæti eins verið ætla Eyþór Ingi & Babies-flokkurinn að halda tónleika laugardaginn 4. febrúar á Græna hattinum þar sem platan verður leikin í heild sinni og hver veit nema nokkur önnur Þursalög fái að fljóta með. n Hjartaáfall – dragsýning kl. 21.00 Kiki Fram koma Lola Von Heart, Chardonnay Bublée, Milo de Mix, Úlla la Delish og King Rafael The First. n Lunch Beat kl. 13.00 Prikið Hugmyndin að Lunch Beat fæddist í Svíþjóð en var fyrst haldin á Íslandi 2012 á Reykjavík Dance Festival og var reglulegur viðburður til ársins 2016. n Að þreyja þorrann – galdra- steinar og súrt skyr, barnaleið- sögn kl. 14.00 Þjóðminjasafnið Safnkennari Þjóðminjasafnsins leiðir börn og fjölskyldur þeirra í spennandi uppgötvunarleið- angur um hluta grunnsýningar safnsins að rannsaka þetta efni og sjá hvað þar er að finna. n Marat/Sade kl. 20.00 Borgarleikhúsið Bæling og losti, kúgun og upp- reisn, hinir jaðarsettu gegn valdinu! Marat/Sade, öðru nafni Ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn De Sade markgreifa, er eitt af öndvegisverkum 20. aldarinnar – marglaga og marg- slungið í efni og formi. Sýning sem hefur hlotið mikið lof gagn- rýnenda og skartar okkar elsta og helsta listafólki. Aðalatriðið er fíflagangur, segir Vigdís Perla. MYND/AÐSEND Ljós í myrkri á Vetrarhátíð Höfuðborgarsvæðið Vetrarhátíð er haldin dagana 2.–4. febrúar og fer hátíðin fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs saman- stendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt yfir 150 viðburð- um þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Frítt er inn á alla viðburði Vetrarhátíð- ar. Boðið verður upp á ljósa- skúlptúra og ljósaslóð og opið langt fram á kvöld í söfnunum sem bjóða upp á tónleika, rat- leiki, getraunir og fleira. Sirkus- sýningar verða í einhverjum sundlaugum, slökun, upplestrar og fleira á bókasöfnum. Sjón- listir ýmiss konar skipa stóran sess í fjölbreyttum sýningar- rýmum og boðið verður upp á kvöldvöku á Þjóðminjasafninu. Yfir tvö hundruð viðburðir eru í boði og má skoða úrvalið á heimasíðu hátíðarinnar. Gísli Matt af Slippnum gestur á Héðni Héðinn Kitchen & Bar Hinn framúrskarandi og ástsæli matreiðslumeistari Gísli Matt og landsliðskokkar Héðins munu snúa bökum saman og leiða saman mat- seðla sína á Héðni næstu helgi, 10.–11. febrúar. Við urðum að segja frá þessu tímanlega til að fólk geti pantað sér borð. Gísli er eigandi Slippsins í Vest- mannaeyjum og hefur notið mikilla vinsælda og vakið mikla athygli innan lands sem og erlendis. Matseðillinn verður í anda Slippsins, sem sækir innblástur til íslenskrar náttúru og hafsins. n friminutur@frettabladid.is Ekkert er betra en heimabakaðar brauðbollur með helgarkaffinu í góðum félagsskap. Við mælum með þessum ljúffengu kotasælubollum hafa notið mikilla vinsælda í mörg ár og til eru nokkrar útgáfur af þeim. Þessi útgáfa þykir ákaflega góð og undirbúningurinn og baksturinn tekur ekki langan tíma. Það sem gerir þær svo laufléttar og dúnmjúk- ar er kotasælan. Bollurnar eru bestar nýbakaðar og ylvolgar, þá er dásam- legt að smyrja þær með smjöri sem bráðnar og gerir þær ennþá girnilegri. Mælum með þessum dásemdum í helgarbaksturinn. Kotasælubollur 550 g hveiti 150 g heilhveiti 1 tsk. salt 1 tsk. sykur 1 bréf þurrger ½ l mjólk 3 msk. olía 1 stk. lítil dós kotasæla Fræ að eigin vel – má sleppa Gróft salt og óreganó ef vill – má sleppa Byrjið á því að velgja mjólkina og setjið sykur og þurrger út í og látið leysast upp. Leyfið blöndunni að kólna lítillega. Setjið þurrefnin út í og hnoðið deigið og bætið að lokum kotasælu og olíu saman við deigið. Látið deigið hefast í hálftíma og mótið bollurnar. Penslið bollurnar með eggi eða mjólk og fræjum að eigin vali stráð yfir, til dæmis graskers- eða sesamfræjum. Það er líka mjög gott að strá smá grófu sjávarsalti fyrir þær ásamt óreganó. Bakið við 200°C gráðu hita á blæstri í um það bil 20 til 25 mínútur. Berið fram ylvolgar með góðu áleggi og kræsingum að eigin vali. n Heimabakaðar og ylvolgar kotasælubollur með helgarkaffinu 4 kynningarblað A L LT 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.