Fréttablaðið - 03.02.2023, Síða 24
Inga Valborg Ólafsdóttir er
með masterspróf í hjúkrun
og með sérfræðingsleyfi í
hjúkrun hjartasjúklinga.
Hún starfar sem klínískur
sérfræðingur í hjúkrun
hjartasjúklinga.
Inga Valborg starfar á göngudeild
fyrir kransæðasjúklinga og hefur
gert meira og minna frá stofnun
hennar árið 2004. Deildin er stað
sett í Hjartagáttinni á Landspítal
anum við Hringbraut.
„Sérstaða þessarar deildar er
að hún fylgir einstaklingum og
aðstandendum þeirra eftir yfir
lengri tíma, eftir útskrift. Að
þjónustunni kemur fjölfaglegt
teymi sem samanstendur af hjúkr
unarfræðingum, hjartalæknum,
sjúkraþjálfurum, sálfræðingi,
næringarfræðingum, kynfræðingi,
lyfjafræðingi og félagsfræðingi.
Veitt er einstaklingsmiðuð fræðsla
um sjúkdóminn, lyfin og ráð
lagðan lífsstíl, auk þess er veitt
ákveðið eftirlit og mat á ákveðnum
þáttum. Þá er veitt lífsstílsmeðferð
og stuðningur til að takast á við
sjúkdóminn og breyta um lífsstíl
yfir lengri tíma (eitt ár),“ útskýrir
Inga Valborg.
600 kransæðavíkkanir á ári
„Einstaklingurinn hittir hjúkrun
arfræðing í einstaklingsviðtölum.
Aðrir í teyminu koma að skipulagi
þjónustunnar, eru ráðgefandi og
koma að meðferðinni eins og þörf
þykir. Við erum ekki eina slíka
deildin því önnur er starfrækt á
Akureyri og síðan er Reykjalundur
með hjartaendurhæfingu sem
veitir meðal annars einstaklingum
með kransæðasjúkdóma þver
faglega meðferð í nokkrar vikur
sem hefur skilað góðum árangri,“
segir hún. „Sjúklingar fá fræðslu og
stuðning eftir kransæðavíkkun. Á
Íslandi eru gerðar um 600 krans
æðavíkkanir árlega, bæði hjá
konum og körlum.“
Lífsstíllinn skiptir miklu máli
Inga Valborg segir að lífsstíll hafi
gríðarlega mikil áhrif á hjartasjúk
dóma. „Hann getur legið í erfða
efni okkar en lífsstíllinn getur haft
áhrif á hraða framgangs sjúk
dómsins. Það að vera án tóbaks,
hreyfa sig reglulega eins og að
ganga í 30 mínútur á dag, forðast
yfirþyngd, hafa góða blóðsykurs
stjórnun, meðhöndla háþrýsting
ef hann er til staðar, meðhöndla
blóðfituröskun ef hún er til staðar,
forðast streitu, fá nægan svefn,
drekka ekki áfengi eða lítið af því
og sjaldan og borða skynsamlega
getur hægt á framgangi sjúkdóms
ins,“ bendir hún á og heldur áfram:
„Konur sem hafa haft einhver
vandamál tengd meðgöngu eins og
meðgöngusykursýki, háþrýsting
á meðgöngu, fósturlát, fætt fyrir
tímann svo eitthvað sé nefnt, eru í
meiri hættu á að fá hjarta og æða
sjúkdóma en aðrar konur. Einnig
konur sem fara snemma á breyt
ingaskeiðið, það er fyrir fimmtugt
og/eða fá mikil einkenni á breyt
ingaskeiði. Þær ættu að huga vel
að öðrum áhættuþáttum og fara
snemma í eftirlit, svona um fertugt
og láta athuga blóðþrýstinginn, en
hann getur verið breytilegur yfir
ævina til dæmis hækkað á breyt
ingaskeiði, kólesteról, blóðsykur
og aðra áhættuþætti. Láta meta
hvort þörf er á sérstöku eftirliti og
lífsstílsmeðferð. Fara síðan reglu
lega í eftirlit eftir það. Sjúklingar
eru af báðum kynjum en konurnar
eru oft eldri þegar þær fá sjúk
dóminn.“
Góð fræðsla
Þegar Inga Valborg er spurð hvort
Íslendingar séu framarlega þegar
kemur að lækningu á hjartasjúk
dómum og eftirfylgni, svarar hún
því játandi. „Við höfum komið
mjög svipað út í þeim saman
burði sem gerður hefur verið. Við
fylgjumst vel með öllum nýjung
um á sviðinu og fylgjum alþjóð
legum klínískum leiðbeiningum
við skipulag á þjónustu og við val
á okkar meðferðum. Fræðsla er
stór hluti af mínu starfi. Mikill
hluti af viðtali á göngudeildinni
er fræðslusamtal um sjúkdóminn,
meðferðina og ráðlagðan lífsstíl. Þá
höfum við tileinkað okkur aðferðir
áhugahvetjandi samtals til þess að
örva áhugahvöt einstaklingsins
enn frekar til að bæta lífsstílinn og
fylgja meðferð.“
Inga Valborg segir að starfið
sé afar fjölbreytt. „Einstakling
arnir eru hver öðrum ólíkir á
göngudeildinni, þá fylgir starfinu
þverfaglegt samstarf og mikil sam
skipti við aðra hjúkrunarfræðinga
og annað fagfólk. Einnig er áhersla
á að fylgjast vel með í faginu og
tileinka sér allar nýjungar. Síðan
tengjumst við rannsóknarvinnu
af og til og kennslu til hjúkrunar
nema sem koma í vettvangsheim
sókn til okkar,“ segir hún.
Stöðug þróun
„Við erum í stöðugri þróun. Við
höfum verið að auka áherslu á
teymisvinnuna hjá okkur, verið
að leita leiða til að auka aðgengi að
góðu fræðsluefni um sjúkdóminn
og því sem honum tengist. Þá
erum við að horfa til aukinnar
fjarþjónustu á næstunni til að
auka þjónustu við þá sem búa utan
höfuðborgarsvæðisins og við þá
sem eiga erfitt með að koma til
okkar. Við erum líka í tilrauna
verkefni með gagnvirkt app frá
Sidekick Health sem ætlað er að
veita einstaklingum fræðslu og
stuðning eftir kransæðavíkkun
yfir einhvern tíma ásamt því að
vera með ákveðið eftirlit eða ein
kennamat í gegnum appið. Mjög
spennandi viðbót við þá þjónustu
sem fyrir er.
Sjúklingar fá góðan stuðning
með fjórum til fimm fimmtíu
mínútna viðtölum yfir eins árs
tímabil, f leiri ef þörf þykir. Þar
fyrir utan hitta þeir sinn hjarta
lækni yfirleitt tvisvar á árinu. Þá
fá þeir viðtal við aðra í teyminu ef
þörf þykir. Við fylgjum klínískum
leiðbeiningum um eftirmeðferð
kransæðasjúklinga frá evrópsku
hjartasamtökunum en sérsníðum
meðferðina eftir þörfum hvers og
eins. Það sem okkur vantar helst er
að kransæðasjúklingar geti fengið
stuðning hver frá öðrum í kjölfar
veikindanna, jafningjastuðning.
Þeir sem fara á Reykjalund fá ein
hvern vísi að slíkum stuðningi,“
segir Inga Valborg. n
Lífsstíllinn skiptir öllu máli
varðandi hjartasjúkdóma
Inga Valborg Ólafsdóttir starfar á göngudeild fyrir kransæðasjúkdóma á Landspítala. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Við erum í stöðugri
þróun. Við höfum
verið að auka áherslu á
teymisvinnuna hjá
okkur, verið að leita
leiða til að auka aðgengi
að góðu fræðsluefni um
sjúkdóminn og því sem
honum tengist.
Inga Valborg Ólafsdóttir
10 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGURHJARTAÐ ÞITT 2023
Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, var stofnað þann 9. maí 1995
Félagið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á velferð hjartveikra barna og full-
orðinna með hjartagalla. Í dag eru um 500 fjölskyldur í félaginu.
Neistinn miðlar fræðslu hvers kyns sem lýtur að hjartagöllum og meðferð þeirra
t.d. með útgáfu fréttablaðs og upplýsingavef sínum, hjartagáttin.neistinn.is. Félagið
heldur úti öflugu félagslífi, fjölskyldum hjartabarna til skemmtunar og stuðnings og
unglingastarfið þykir einkar líflegt. Þá stendur Neistinn að baki Styrktarsjóði hjart-
veikra barna, sem styrkir hjartafjölskyldur fjárhagslega.
Hlutverk Hjartaheilla er:
• að sameina hjartasjúklinga, aðstandendur þeirra og áhugafólk um heilbrigt hjarta
• að stuðla að betri heilsu og bættum lífsgæðum í íslensku samfélagi, með áherslu á
framfarir í forvörnum, fræðslu og meðferð hjartasjúkdóma
• að standa vörð um hagsmuni og réttindi hjartasjúklinga
• að starfa faglega
• að framfylgja markmiðum samtakanna
Framtíðarsýn Hjartaheilla:
• Hjartaheill verði öflug hagsmunasamtök á sviði heilbrigðismála á Íslandi með
stóran og virkan hóp félagsmanna.
• Hjartaheill verði leiðandi við að bæta lífsgæði landsmanna með eflingu forvarna
og fræðslu um hjartasjúkdóma.
Heilaheill er í húsnæði SÍBS að Síðumúla 6, 108 Reykjavík. Formaðurinn hefur náið
samstarf með talsmönnum Hjartaheilla eftir þörfum og hafa þessi tvö félög verið
með samvinnu undir átakinu Go Red, með þátttöku Hjartaverndar er varðar sérstak-
lega konur um upplýsingar um hjartagalla er leiða til slags. Hefur sá hópur vinnu-
heitið HHH-hópurinn og hefur félagið gefið út sérstakan bækling um gáttatif og slag
og dreift þegar tækifæri eru til. Þá hafa þessi félög verið með sameiginlegt átak á
alþjóða hjartadeginum í samstarfi við Hjartavernd sem er opinber stofnun
Eina deild landsins sem sérhæfir sig í þjónustu við sjúklinga með einkenni frá hjarta.
Sinnir fyrst og fremst sjúklingum frá Hjartagátt og bráðadeild í Fossvogi. Sjúklingar
eru einnig kallaðir inn af biðlista eða koma frá öðrum sjúkrahúsum landsins
Af hverju GoRed?
Hjarta- og æðasjúkdómar eru algengasta dánarorsök kvenna á Íslandi líkt og ann-
arsstaðar í heiminum. GoRed átakið miðar að því að fræða konur um áhættuþætti
og einkenni hjarta- og æðasjúkdóma og hvernig draga megi úr líkum á sjúkdóm-
unum. Aukin vitund kvenna um áhættuþættina hefur einnig óbein áhrif á lífsstíl karla
og ungmenna. Nánar má lesa um alheimsátak GoRed með því að fara hér.
GoRed átakið er alheimsátak, á vegum World Heart Federation. Um er að ræða
alþjóðlegt langtímaverkefni sem hófst í Bandaríkjunum og víða í Evrópu árið 2004 og
hefur verið haldið á Íslandi frá árinu 2009.
Hvaða konur eru í forgangi?
• Einkennalausar konur, 50 ára og eldri, ættu að fara í áhættumat til greiningar á
áhættuþáttum á a.m.k. 5 ára fresti.
• Einkennalausar konur yngri en 50 ára sem hafa ættarsögu um hjarta- og æðasjúk-
dóm hjá 1. gráðu ættingjum og/eða með sögu um ættgenga blóðfituröskun ættu
að fara í skoðun reglulega í samráði við sinn lækni.
Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum:
• Aldur
• Reykingar. Kona sem reykir þre- til fjórfaldar áhættu sína á að fá hjartasjúkdóm.
• Sykursýki er alvarlegur áhættuþáttur hjá konum.
• Blóðfituröskun
• Háþrýstingur
• Ættarsaga um kransæðasjúkdóm hjá 1. gráðu ættingjum
• Ofþyngd (BMI > 25-30) sérstaklega aukin kviðfita
• Offita (BMI>30)
• Hreyfingarleysi
Ofangreindir áhættuþættir eru flestir einkennalausir og því þarf að mæla þá sér-
staklega.
Einkenni hjartaáfalls og heilaslags – Konur eru öðruvísi:
Konur eru líklegri til að upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
• Óútskýrðan slappleika eða þreytu
• Óeðlilegt kvíðakast eða verða taugaóstyrkar
• Meltingartruflanir eða verk vegna uppþembu
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni hjartaáfalls:
• Þyngsl eða verk fyrir brjósti eða fyrir neðan bringubein
• Óþægindi eða verk milli herðablaða, í hálsi, kjálka eða maga
• Verk sem kemur við áreynslu og hverfur við hvíld og getur verið fyrirboði krans-
æðastíflu
• Stöðugan verk fyrir brjósti etv. með ógleði og kaldsvita sem getur verið einkenni
um bráðakransæðastíflu og krefst tafarlausrar meðferðar
Konur og karlar upplifa eftirfarandi einkenni heilaslags:
• Dofa eða máttleysi í andliti, handlegg eða fæti, aðallega í öðrum helmingi líkamans
• Ringlun, erfiðleika með að tala eða að skilja
• Erfiðleika með að sjá með öðru eða báðum augum
• Erfiðleika með gang, svima, skort á jafnvægi eða samhæfingu
• Slæman höfuðverk af óþekktri orsök
• Yfirlið eða meðvitundarleysi
Fagdeild hjartahjúkrunarfræðinga
Fagdeild hjartahjúkrunarfræðinga stuðlar að bættri hjúkrun hjartasjúklinga, auk
þess að viðhalda og auka þekkingu hjúkrunarfræðinga sem hjúkra hjartasjúklingum
Fagdeildin vinnur að eftirtöldum verkefnum:
• Heldur fræðslufundi árlega í tengslum við aðalfund sem allir hjúkrunarfræðingar
eru hvattir til að sækja
• GoRed-samstarfsverkefni og alheimsátak um hjarta- og æðasjúkdóma meðal
kvenna
• Sendir út Fréttabréf fagdeildarinar með fréttum um starfsemi fagdeildarinnar
• Heldur úti heimasíðu fagdeildarinnar á hjukrun.is og uppfærir hana reglulega
ásamt Facebook síðu fagdeildarinnar