Fréttablaðið - 03.02.2023, Page 28

Fréttablaðið - 03.02.2023, Page 28
Í lægðardraginu sem gengur nú yfir landið er um að gera að elda sér huggulegan mat með nógu af næringarríku grænmeti og gommu af hvít- lauk. Hér eru tvær uppskrift- ir að klassískum réttum með grænmetisívafi. jme@frettabladid.is Grænmetislasagna fyrir tvo til fjóra Rauð sósa 1 eggaldin, saxað í bita ½ kúrbítur, saxaður í bita 5 sveppir, saxaðir ½ púrrulaukur, saxaður og skol- aður 2 stilkar sellerí, saxað 3 gulrætur 1 paprika 4 hvítlauksrif ¾ lítil dós tómatpúrra eða um 3 msk. 1 tsk. rósmarín, þurrkað 1 tsk. timjan, þurrkað 1 tsk. chiliflögur 2 dósir hakkaðir tómatar 1 dós linsubaunir, skolaðar 1 stöngull af basilíku Steiktu eggaldin, kúrbít og sveppi á miðlungsháum hita í potti með olíu uns það hefur linast mikið. Settu næst púrrulauk, sellerí og papriku út í og steiktu uns það linast líka. Settu því næst tómat­ púrru, kreistan hvítlauk og krydd út í pottinn og steiktu uns skán myndast á botninum. Helltu næst tómatdósum og linsubaunum út í og eldaðu í um 10 mínútur uns sósan hefur þykknað. Smakkaðu loks til með salti, pipar, ediki og sriracha­sósu. Hvít sósa 1 stór dolla kotasæla ½ rifinn mexíkóostur 2 msk. rjómaostur Rifinn parmesanostur Sett í blandara og blandað uns orðið mjúkt. Settu fyrst smá rauða sósu í lasagnamót og raðaðu lasagna­ plötum yfir. Svo er röðin svona: rauð sósa, hvít sósa, lasagnaplötur. Endaðu á hvítri sósu og svo rifnum osti efst. Bakaðu í ofni á 180°C í um 40 mínútur (eða uns lasagnaplöturnar eru eldaðar í gegn) með álpappír yfir. Þá er álpappírinn tekinn af, parmesanostur rifinn yfir og lasagnað er klárað í ofninum þar til osturinn hefur fengið á sig gullin­ brúnan lit. Berið fram með ferskri basilíku og nýmöluðum pipar. Chili mínus kjöt Fyrir 3–4 Eldunartími 70 mínútur. Undir­ búningur um hálftími. Borið fram með hrísgrjónum. 4 sveppir 1 rauðlaukur, saxaður 2 stilkar sellerí, saxaðir 2-3 gulrætur, saxaðar 1 paprika 2 msk. tómatpúrra 1 tsk. kóríanderduft 1 tsk. cumminduft 1 tsk. chiliflögur 1 msk. paprikukrydd Smá klípa af kanil Um 2 msk. salt og nýmalaður pipar eftir smekk 2 lárviðarlauf 4 hvítlauksrif 1 chipotle chili in adobo úr dós og 1 tsk. af sósunni (eða meira ef þú vilt hafa þetta sterkt) 1 dós hakkaðir tómatar 1 dós svartbaunir eða nýrnabaunir með safanum úr dósinni 1 soðteningur að eigin vali Soðið vatn (uns kássan er orðin aðeins þynnri en þú vilt að hún sé í lokin) ½ dós maís skolaður (eða frosin maískorn) ⅓ poki Halsans-sojahakk 1–3 msk. rjómaostur Saxaðir kóríanderstilkar Um 1 msk. edik Byrjaðu á því að saxa niður sveppi og setja í þurran pottinn með um matskeið af vatni og smávegis af salti. Leyfðu vatninu að losna úr sveppunum og sjóða af. Settu um matskeið af olíu út í og steiktu sveppina ásamt rauðlauk, selleríi og gulrótum. Þegar grænmetið hefur linast er paprikan sett út í og elduð í gegn. Næst skal ýta grænmetinu til hliðar og búa til pláss fyrir tómat púrruna. Skelltu henni út í með smá olíu ef þarf og steiktu í um ½–1 mínútu. Kreistu næst hvítlauksrif út í ásamt söxuðum adobo chili og sósu og steiktu í um ½ mínútu. Settu næst allt kryddið út í ásamt lárviðarlaufunum og leyfðu þeim að vakna í olíunni og hitanum í um ½ mínútu. Leystu soðteninginn upp í soðnu vatni. Helltu næst tómatdósinni, baunadósinni og soðinu út í og hrærðu vel upp í botninum. Eldaðu í ofni með átylltu loki í 40 mínútur við 180°C. Taktu pottinn út úr ofninum, hrærðu upp í og eldaðu með átylltu loki í um 30 mínútur til viðbótar. Eftir ofntímann er maís, soja­ hakk, rjómaostur, edik og saxaðir kóríanderstilkar sett út í og hitað upp ef þarf. Saltað eftir þörfum. Gott er að bera fram með muldu nachos, rifnum osti, gvakamóle, sýrðum rjóma, kreistum limesafa, pikkluðum rauðlauk og fersku kóríander eða söxuðum vorlauk. n Tveir grænir og vænir réttir Lasagna er alltaf gott, hvenær ársins sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Chilipottréttir eru sívinsælir, með kjöti eða án kjöts. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Bandaríska leikkonan Blythe Danner blæs á 80 kerta afmælistertu í dag. Hún fagnar því að fá að eldast og mega lifa. thordisg@frettabladid.is Í nóvember opinberaði Blythe að hún væri á batavegi eftir baráttu við krabbamein í munni. Það er sami sjúkdómur og lagði eiginmann hennar, leikstjórann Bruce Paltrow, að velli þegar hann var á ferðalagi um Ítalíu til að fagna þrítugsafmæli dóttur þeirra, Gwyneth Paltrow, árið 2002. „Krabbamein snertir alla á ein­ hvern hátt, en það er óvenjulegt fyrir hjón að fá sama krabbamein,“ sagði leikkonan í nýlegu viðtali við tímaritið People. Hún rifjaði upp hvernig henni varð innanbrjósts þegar hún fékk greininguna í mars 2018: „Ég man að ég leit upp til himins og sagði við Bruce: Ertu ein­ mana þarna uppi?“ Í dag er hún heilsuhraust og horfir fram á veginn. „Þetta er lúmskur sjúkdómur en ég er í góðum málum núna, hress og kát og heppin að vera á lífi.“ Blythe Danner er þekkt fyrir hlutverk sitt í kvikmyndunum Meet the Parents og Meet the Fock­ ers, sem og í sjónvarpsþáttunum Will & Grace. Hún var við störf í Lundúnum þegar hún fór fyrst að finna fyrir meininu árið 2018. „Ég var farin að vera ringluð og gleymdi nánast öllu. Síðan fann ég fyrir kekki í hálsinum, á næstum sama stað og Bruce fann sinn árið 1999.“ Blythe var greind með tiltölulega sjaldgæft krabbamein sem þróast oftast í munnvatnskirtlunum. Hún háði baráttuna við krabbann ein síns liðs og án þess að segja nokkrum frá fyrr en hún hafði sigrast á vágestinum. „Ég hélt þessu leyndu fyrir börnunum mínum í langan tíma. Ég vildi bara halda áfram að vera mamma þeirra og ekki valda þeim áhyggjum.“ Blythe er móðir leikstjórans Jake Paltrow og leikkonunnar Gwyneth Paltrow sem fékk Óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Shakespeare in love árið 1999. „Mér var augljóslega mjög brugð­ ið,“ segir Gwyneth um það þegar hún frétti hvers kyns var hjá móður sinni. „Þetta var ógnvekjandi og virkilega óhugnanlegt því þetta var svo líkt því sem henti pabba.“ Blythe fór í alls þrjár skurðað­ gerðir til að vinna bug á meininu og í þeirri þriðju náðist loks að fjar­ lægja krabbameinssýktan vefinn. Leikkonan er þekkt fyrir sína rámu rödd og leikur gjarnan ríkar, fágaðar og greindar yfirstéttar­ konur. Hún vinnur oft og iðulega með Woody Allen en sást síðast leika gyðjuna Demeter í sjónvarps­ þáttunum American Gods og hún léði ömmu Jones rödd sína í Net­ flix­teiknimyndaseríunni Ridley Jones. Danner hefur síðastliðin þrjátíu ár látið til sín taka í umhverfis­ málum. Eftir dauða eiginmanns síns varð hún iðin við að vekja athygli á sjúkdómnum og mikil­ vægi þess að greina hann snemma. Hún stofnaði styrktarsjóð í nafni síns heittelskaða sem safnar fé til rannsókna og meðferða á munn­ krabbameini. n Þakklát fyrir lífið Mæðgurnar og leikkonurnar Gwyneth Paltrow og Blythe Danner á góðri stund. Gwyneth varð fimmtug í fyrra og Blythe er nú áttræð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 6 kynningarblað A L LT 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.