Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.02.2023, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 03.02.2023, Qupperneq 36
65 milljónir dollara er áætlaður kostnaður við gerð True Detective á Íslandi. toti@frettabladid.is Glæpasagan Úti eftir Ragnar Jónasson er ein þeirra tíu bóka sem tilnefndar eru til Audiolib- hljóðbóka- verðlaunanna í Frakklandi. Þetta er önnur tilnefningin sem bókin hlýtur á skömmum tíma þar í landi en á dögunum var greint frá því að hún væri tilnefnd til Grand prix des lectrices de Elle. Fyrsta bókin sem hlaut hljóð- bókaverðlaunin í Frakklandi árið 2013 var Sannleikurinn um mál Harrys Quebert eftir Joël Dicker. Úti kom út í Frakklandi ekki alls fyrir löngu og sagði gagnrýnandi franska ríkissjónvarpsins á vef miðilsins að bókin væri „kæfandi þriller … blanda af Agöthu Christie- sögu í snjó og Reservoir Dogs eftir Quentin Tarantino. Ísköld norræn glæpasaga.“ Gagnrýnandi Les Echos sagði enn fremur að útgáfa nýrrar glæpasögu Ragnars væri alltaf viðburður í Frakklandi. Sú nýjasta væri hugvitsamlega smíð- aður og harður spennutryllir. Frakkar hafa tekið Ragnari opnum örmum. Bækur hans hafa verið þaulsætnar á metsölu- listum allt frá því að Snjóblinda var gefin þar út árið 2016. Snjó- blinda var nú fyrir jólin einmitt valin besta glæpasaga sem gefin hefur verið út í Frakklandi undan- farin 50 ár. Sömu verðlaun í flokki bóka almenns efnis hlaut bókin Gúlag-eyjarnar eftir Alexander Solzhenitsyn en Where the Craw- dads Sing eftir Deliu Owens varð hlutskörpust í flokki skáldsagna. n Úti er enn inni í Frakklandi Ragnar Jónas- son rithöfundur. FRÉTTIR AF FÓLKI | Við vonum bara að M3GAN verði ekki jólagjöfin í ár. KVIKMYNDIR M3GAN Leikstjórn: Gerard Johnstone Leikarar: Allison Williams, Violet McGraw, Ronny Chieng Arnar Tómas Valgeirsson Dúkkur með drápseðli hafa lengi verið uppskrift að fínustu ræmum. Child’s Play-serían um Chucky og í seinni tíð The Conjuring-afsprengið Annabelle hafa svo sem aldrei verið á stuttlista hjá Óskarsverð- laununum en það er engu að síður skemmtilegt að horfa á leikföng koma fólki fyrir kattarnef. M3GAN segir frá leikfanga- hönnuðinum Gemmu sem tekur við umsjá systurdóttur sinnar Cady eftir að foreldrar hennar látast í bílslysi. Gemma finnur sig engan veginn tilbúna til að takast á við móðurhlutverkið en ákveður að kynna Cady fyrir nýjasta, og til- raunakenndasta, leikfanginu sem hún er að þróa: M3GAN. Það er varla hægt að kalla dúkk- una M3GAN leikfang en hún er háþróað vélmenni sem getur bæði lært og aðlagað sig aðstæðum og er hannað til að vernda eiganda sinn. Cady er frá sér numin af hrifningu yfir nýja leikfélaganum en Gemmu grunar að ekki sé allt með felldu. M3GAN gæti verið að taka hlut- verki sínu sem verndari Cady full- alvarlega. Það kemur skemmtilega á óvart hvað það er mikið í M3GAN spunnið. Þótt söguþráðurinn sé fyrirsjáanlegur þá er kafað í ýmis þemu á borð við skjánotkun barna og hættuna að baki gervigreind og það tekst ágætlega til. Dúkkan M3GAN er frábær skúrk- ur. Þrátt fyrir fágað yfirbragð þá sést snemma að þráðurinn í henni er stuttur og vélrænn kvalalosti sem blossar upp við minnsta tilefni, oft með sprenghlægilegum niðurstöð- um. Aðrir leikarar í myndinni eru fínir og Violet McGraw sem leikur Cady stendur sig allt í lagi – mikið hrós fyrir barnaleikara í hryllings- mynd. Þótt M3GAN sé ekkert tímamóta- verk þá mætti hiklaust mæla með henni fyrir yngri áhorfendur (ekki of unga þó) sem vilja dýfa tánum í hrollvekjuheiminn. n NIÐURSTAÐA: Fínasta hrollvekja sem heldur vel á spöðunum þrátt fyrir að vera uppskriftarmynd. Dæmalaust er stúlkan fín Öll vötn falla nú til Dalvíkur þar sem tökur eru byrjaðar á glæpaþáttunum á True Detective og Samherji greinir frá því á heimasíðu sinni að kvikmyndatökuliðið frá sjón- varpsrisanum HBO hafi lagt undir sig gamla fiskvinnslu- húsið og ráðið starfsfólk fyrir- tækisins í aukahlutverk. toti@frettabladid.is Það er allt að gerast á Dalvík eftir að tökur hófust þar á fjórðu seríu bandarísku glæpaþáttanna True Detective sem skartar Jodie Foster í aðalhlutverki. Fréttablaðið hefur áður fjallað um í máli og myndum að búið er að gera hluta hans að sviðsmynd smábæjarins Ennis í Alaska en hermt er að tökuliðið tali nú um að bærinn sé í Dalaska en ekki Alaska. Búið er að skrúfa rækilega fyrir samskipti þeirra sem að kvik- myndagerðinni koma við fjölmiðla og þannig tókst ekki að fá staðfest í gær hvort Jodie Foster væri að spóka sig um götur Dalaska. Þeirri spurningu og öðrum álíka er ein- faldlega svarað með því að skrifa undir samning með þagnarákvæði. Samherji upplýsti þó á heimasíðu sinni, samherji.is, í gær að kvik- myndatökuliðið væri búið að koma sér fyrir með skrifstofu og leik- myndadeild í gamla fiskvinnsluhúsi fyrirtækisins. Fiskvinnsla í nýju hlutverki Samherji.is hefur eftir verkefnis- stjóra framleiðandans að f isk- vinnsluhúsið sé algerlega sniðið að þeirra þörfum. „Og við erum afskaplega þakklát Samherja fyrir að hleypa okkur inn í húsið með til- tölulega skömmum fyrirvara.“ Á vef Samherja kemur einnig fram að í gömlu fiskvinnslunni hafi kvikmyndagerðarfólkið fundið margar hentugar vistarverur og þannig sé gamli vinnslusalurinn orðinn að smíðaverkstæði. Gott að vera í Dalaska Þá lætur verkefnisstjórinn hafa eftir sér að það sé hreint út sagt frábært að vera á Dalvík. Íbúarnir hafi tekið vel á móti þeim og lagt sig fram um að auðvelda þeim vinnu sína. „Sömu sögu er að segja um sveitarfélagið og öll fyrirtæki, sem eru boðin og búin til að greiða götu okkar á allan hátt.“ Þá fylgir sögunni að ánægja tökuliðsins með bæinn og móttökurnar sé slík að þau grínist með að smábærinn Ennis sé í Dalaska en ekki Alaska. „Sem undirstrikar hversu heppin við erum með alla aðstöðu hérna á Dalvík,“ segir verkefnisstjórinn við Samherja. n HBO fann samherja í Dalaska Gamla fiskvinnslan í Dalvík reyndist vera mikill happafengur fyrir fylgdarlið Jodie Foster í bænum sem grínast er með að sé í Dalaska. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Fréttablaðið.is sagði frá Jodie Foster á skíðum í Hlíðarfjalli á Akureyri í fyrradag en ekki fæst uppgefið hvort hún sé búin að renna sér til Dalvíkur. Dalvík hefur undanfarið verið að taka á sig mynd bæjar í Alaska með slíkum árangri að gantast er með að bærinn sé í Dalaska. MYND/HELGI JÓNSSON 16 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 3. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.