Fréttablaðið - 03.02.2023, Síða 38

Fréttablaðið - 03.02.2023, Síða 38
Ég veit að hann getur hluti sem aðrir geta ekki. Brandur Karlsson Í HELGARBLAÐINU Óttalaus í Ameríku Guðlaug Jónsdóttir, arkitekt og hönnuður, f lutti til Los Ange­ les  aðeins 19 ára gömul og þar hefur hún búið síðan. Hún er þekkt fyrir stórbrotna hönnun hótela og veitingahúsa um allan heim. Gulla nýtur lífsins í Ameríku en hún naut þess einnig að vera í öruggu umhverfi á Íslandi í Covid. Gulla ræðir f jölskyldulíf ið, framann, arkitektúr og fegurðina í helgar­ blaði Fréttablaðsins. Sagan heldur áfram annars staðar  Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir f ylgdi föður sínum, Br y njólf i H. Björnssyni, í nokkrar vikur í nóvember með myndavélina að vopni. Hún festi á filmu þegar ævi­ starfi hans, versluninni Brynju, var pakkað saman ofan í kassa. Nýtir sára reynslu til góðs Þórunn Pálsdóttir er einn stofnenda Gleym mér ei, styrktarfélags til stuðnings foreldrum sem missa barn á meðgöngu og í eða eftir fæðingu. Hún segir eigin sára reynslu hafa kveikt viljann til að styðja foreldra í sömu sporum. toti@frettabladid.is Tómas Valgeirsson kvikmyndarýnir „Eins og margir unnendur eftirheimsenda, blóðsúthellinga og eymdarsagna með yljandi vonarneista hef ég ekki komist hjá því að kíkja á fyrstu þrjá þættina úr spennuseríunni The Last of Us. Þótt samnefndur tölvuleikur muni seint teljist einhver snilld er með ólíkindum hversu vel tekst til með þessa aðlögun hans að kvik- myndaforminu. Þetta er grípandi gott!“ segir Tómas Valgeirsson um HBO-þættina sem allir eru að tala um og horfa á þessar vikurnar. Pedro Pascal og Bella Ramsey eru fremst í flokki í hlutverkum Joel og Ellie og hann segir þau og fleiri leikara nýta tímann vel og ná auðveldri tengingu við áhorfand- ann. „Þetta er gæðaframleiðsla sem hittir í mark og allt stefnir í þrælgóða uppvakningaseríu sem brýtur um leið ákveðið blað með því að splundra þeirri mýtu um að bíóaðlaganir tölvuleikja séu alltaf rusl. Þetta er hægt. Þetta er skemmtilegt. Það er ekki bara traust rennsli sem skiptir helstu máli hér, heldur tengingin við kjarna uppruna- lega leiksins. The Last of Us hugar fyrst að karakterum og síðan að hasarnum og þannig gengur þetta prýðilega upp sem sjálfstæð þátta- röð án þess að áhorfandinn þurfi að kunna að ræsa leikjatölvu eða hafa haldið á stýripinna. Þegar svona ágætis ástríða er lögð í áframþróun „tölvuleikja- efnis“ má fastlega gera ráð fyrir að stórrisar kvikmyndavera eigi eftir að stökkva á færibandið og dæla hressilega af þessum tanki. Ofur- hetjumyndir eru á útleið og þættir eða bíómyndir byggðar á tölvu- leikjum munu núna taka við. Þótt almenningur megi óhjákvæmi- lega slaka örlítið á öllu „hæpi“ og „hæper bólum“, þá er þetta fanta- flott sjónvarp þegar allt kemur til alls og mikið bíó. Kjósum Pedro!“ n Kjósum Pedro Á SKJÁNUM | Heimildarmyndin Atomy fjallar um ferðalag fjölfatlaða listamannsins Brands Karls­ sonar til Nepal þar sem heilarinn Rahul hét honum því að hann gæti gengið á ný innan árs. Brandur segist hafa upplifað kraftaverk í Nepal og er þess fullviss að örlögin hafi leitt heilarann á sinn fund. toti@frettabladid.is Heimilda r my nd in Atomy er afrakstur þess að leikstjórinn og framleiðandinn Logi Karlsson fylgdi fjölfatlaða listamanninum Brandi Karlssyni eftir í þrjú ár á meðan hann fór í gegnum óhefð­ bundna meðferð hjá heilaranum Rahul í Nepal. „Viðbrögðin við myndinni eru búin að vera rosaleg. Alveg yfir­ þyrmandi bara. Fólk er að gráta og hlæja yfir henni og kemur síðan til mín eftir á og talar um hvað þetta hafi veitt þeim mikinn innblástur,“ segir Brandur. „Það er líka einhver ábyrgð í því sem er svolítið áhugaverð og minnir mann á að halda áfram og að þetta er ekki búið ennþá.“ Brandur segist viss um að örlögin hafi leitt þá Rahul saman en þar sem Brandur var með laust aukaherbergi þáði heilarinn gistingu hjá honum þegar hann kom til Íslands að halda námskeið. „Þannig að við erum mjög örlaga­ trúar í þessu öllu saman og trúum að þetta hafi einhvern veginn átt að gerast.“ Kraftaverk í Nepal Þegar Rahul var búinn að vera með námskeið hérna í þrjú ár bauð hann Brandi að koma með sér til Nepal þar sem hann gæti hjálpað honum að endurheimta hreyfigetuna og ganga á ný innan árs. „Hann hugsaði þetta sem ein­ hvers konar æfingabúðir með því að taka mig út úr mínum daglega þæg­ indaramma og fara bara til Nepal. Framfarirnar sem urðu þarna úti voru bara kraftaverki líkastar,“ segir Brandur um meðferðina sem hefur reynst svo áhrifarík að hann hefur öðlast mikla hreyfigetu í kjölfarið. „Þegar þú ert eins og ég var búinn að vera, liggjandi í mörg, mörg ár uppi í rúmi, þá þarf svolítinn kraft til að koma manni í gang og það var það sem ég fékk þarna. Þetta vakti mig svolítið upp frá dauðum.“ Hann segir meðferðina hafa verið heilmikið ferli sem ekki sér fyrir endann á. „Við byrjuðum á líkam­ anum en svo fattaði ég með tíman­ um að hugurinn er alveg jafn mikil fyrirstaða og líkaminn. Núna erum við svolítið mikið að fókusa á það.“ Efasemdamaður í eðli sínu Brandur og Alma, kærastan hans, héldu ásamt aðstoðarmönnum sínum til Nepal 2019 og í mynd­ inni er lögð megináhersla á fyrsta mánuð meðferðarinnar þar og svo eftirfylgnina og framvindu áhrifa hennar á líf og ástand Brands. „Ég held að við Logi séum báðir mjög fegnir að þetta sé búið,“ segir Brandur um þriggja ára heimildar­ myndargerðina sem þeir félagar hafa uppskorið mikið lof fyrir. Brandur segir þó aðspurður að innan um allt hrósið og þakkirnar heyrist vissulega einnig efasemda­ raddir um lækningamátt Rahuls. Hann kippi sér þó ekkert upp við slíkt. „Ég er sjálfur mjög skeptískur að eðlisfari og það hefur kannski alltaf staðið pínu í vegi fyrir mér. En það sem vegur náttúrlega bara á móti er að ég er búinn að vera með Rahul úti í Nepal og sjá hann gera svo ótrúlega hluti. Hvort sem ég trúi öllu sem hann segir og gerir þá skiptir það orðið ekkert máli. Ég veit að hann getur hluti sem aðrir geta ekki.“ Sýningar á Atomy hófust í Bíó Paradís undir lok janúar og aðeins tvær sýningar eru eftir. Á laugardag­ inn klukkan 14.30 og á þriðjudaginn klukkan 16.30. n Brandur reis upp frá dauðum í Nepal Brandur Karlsson hélt til Nepal ásamt fylgdarliði 2019 og Logi Karlsson festi ferðalagið til betri lífsgæða á filmu. Útkoman er heimildar- myndin Atomy sem á tvær sýningar eftir í Bíó Paradís. MYNDIR/AÐSENDAR Ljúflingurinn Rahul gaf ekkert eftir og gerði það sem gera þurfti til þess að láta Breka gera það sem gera þurfti til þess að koma honum af stað. 18 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 3. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.