Fréttablaðið - 11.02.2023, Side 15
182
Jóhann Berg er á sínu
sjöunda tímabili hjá
Burnley. Í heildina
hefur hann spilað 182
leiki og gæti því farið
yfir 200 leiki fyrir félag-
ið á þessu tímabili.
hordur@frettabladid.is
Fótbolti Það verður líf og fjör í
enska boltanum um helgina en
topplið Arsenal tekur á móti Brent-
ford á heimavelli. Fróðlegt verður að
sjá hvernig lærisveinar Mikel Arteta
svara fyrir sig eftir verulega óvænt
tap gegn Everton um síðustu helgi.
Manchester City sem tapaði á sama
tíma fær Aston Villa í heimsókn
en Pep Guardiola reynir að koma
sínum mönnum í takt.
Helgin hefst á grannaslag West
Ham og Chelsea en bláliðar hafa
verið í tómu tjóni þrátt fyrir botn-
lausa eyðslu á þessu tímabili.
Manchester United gerði jafntefli
við Leeds á heimavelli í miðri viku
en á sunnudag fer liðið í heimsókn
á Elland Road, mikið fjör er iðulega
í leikjum liðanna.
Krísa hefur verið á Anfield und-
anfarnar vikur en Jurgen Klopp
og hans menn fara í áhugaverðan
grannaslag gegn Everton á mánu-
dag. Everton vann frækinn sigur á
Arsenal um síðustu helgi sem var
fyrsti leikur liðsins undir stjórn
Sean Dyche. n
Grannaslagur í
Bítlaborginni
Klopp þarf að leysa krísu Liverpool.
Fréttablaðið/Getty
Dagskrá helgarinnar
laugardagur
12.30 West Ham – Chelsea
15.00 Arsenal – Brentford
15.00 Crystal Palace – Brighton
15.00 Fulham – Nottingham
Forest
15.00 Leicester – Tottenham
15.00 Southampton – Wolves
17.30 Bournemouth –
Newcastle
Sunnudagur
14.00 Leeds – Manchester United
16.30 Manchester City – Aston
Villa
Mánudagur
20.00 Liverpool – Everton
benediktboas@frettabladid.is
Fótbolti Íslenski landsliðsmaður-
inn Jóhann Berg Guðmundsson,
leikmaður enska B-deildarliðsins
Burnley, var til viðtals í Íþrótta-
vikunni með Benna Bó þar sem þeir
félagar fóru yfir stöðuna hjá Jóhanni
sjálfum sem og Burnley sem hefur
verið á miklu flugi.
Fyrir yfirstandandi tímabil tók
belgíska Manchester City-goð-
sögnin Vincent Kompany við
stjórnartaumunum hjá Burnley sem
hafði fallið niður úr ensku úrvals-
deildinni.
Segja má að Burnley hafi gengið í
gegnum endurnýjun lífdaga undir
stjórn Kompany, liðið spilar meira
aðlagandi fótbolta nú en undir
stjórn hins íhaldssama Sean Dyche,
og situr á toppi ensku B-deildarinn-
ar um þessar mundir.
Jóhann Berg segir mikið hafa
breyst hjá Burnley eftir komu
Kompany.
„Já, þetta er náttúrulega svakaleg
breyting á stuttum tíma frá því
sem var, líka á leikmannahópn-
um. Það hafa margir nýir leik-
menn komið inn í þetta. Það sem
Vincent Kompany hefur
gert á þessum stutta
tíma er náttúrulega
ákveðið afrek út af
fyrir sig. Það vissu
ekki margir hvað
my ndi gerast
m e ð s v o n a
miklum breyt-
ingum.“
K o m p a n y
hef ur hrósað
Jóha n n i B er g
í háster t ef tir að
hann tók við Burnley
f y r ir y f irstandandi
tímabil.
„Okkar samband er
mjög gott. Þegar hann
kom inn held ég að
hann hafi tengt mikið
við mig vegna þess að
á hans leikmannsferli,
hjá Manchester City,
átti hann í erfiðleikum
með meiðsli. Svipuð
meiðsli og ég var að
ganga í gegnum,“ segir
Jóhann. Kompany
glímdi sjálfur við
þrálát meiðsli á
sínum leikmanna-
ferli hjá Manc-
hester City og
skilur því hvað
Jóha n n Berg
hefur gengið í
gegnum.
Þ á h a f i
K o m p a n y
auðvitað einn-
ig séð knattspyrnulegu gæðin sem
Jóhann býr yfir.
„Það var fullt af leikmönnum sem
hann losaði sig við síðasta sumar og
maður þurfti náttúrulega líka að
sýna sig og sanna, maður gerði það.
Hann hefur verið frábær við mig
frá fyrsta degi og ég þakka honum
mikið fyrir það.“
Kompany stýrir líka álaginu á
Jóhanni. „Það er stóra breytingin
í þessu, álagið sem hann
hefur stýrt á mér í leikj-
um sem og æfingum. Í
sumum tilfellum er ég ekki
með á allri æfingunni, ég get verið
úti í 40 mínútur á meðan aðrir eru
að djöflast í klukkustund eða eina
og hálfa klukkustund. Þetta skiptir
máli því það sem skiptir höfuðmáli
í þessu er að vera heill heilsu og klár
í slaginn í leikjum.“ n
Jóhann Berg ber stjóranum sínum Kompany vel söguna
Jóhann Berg í ár
Leikir 21
Mörk 2
Stoðsendingar 4
Gul spjöld 2
Það stefnir allt í
það að íslenski
landsliðsmaður-
inn verði í ensku
úrvalsdeildinni í
haust.
Fréttablaðið/
Getty
Styrkir til
krabbameins-
rannsókna
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins auglýsir: Vísindasjóður
Krabbameinsfélagsins
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins
Markmið Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins er að efla rannsóknir á
orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.
41 rannsóknarverkefni af fjölbreyttum toga hefur fengið styrk úr
sjóðnum frá árinu 2017.
Á þessu ári er stefnt að því að a.m.k. 30% úthlutunar fari til klínískra
rannsókna. Sérstaklega er hvatt til umsókna vegna rannsókna á krabba-
meinum hjá börnum þar sem sjóður Kristínar Björnsdóttur, sem ætlaður er
slíkum rannsóknum, var hluti af stofnfé Vísindasjóðsins.
Rynkebysjóður Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna
Á árunum 2017 - 2021 styrkti Team Rynkeby Ísland Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna um 80 milljónir króna sem skyldu renna til rannsókna á
krabbameinum hjá börnum. Í ár verður í fyrsta sinn úthlutað rannsóknar-
styrkjum úr sjóðnum samhliða úthlutun úr Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins.
Farið verður með umsóknir í Rynkebysjóðinn á sama hátt og umsóknir í
Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins, eftir því sem við á, þannig að faglegar
kröfur Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins gilda. Úr sjóðnum er einungis
hægt að sækja um styrki til rannsókna sem tengjast krabbameinum hjá
börnum.
Frekari upplýsingar um umsóknir í báða sjóði
• Hámarksupphæð styrks úr hvorum sjóði er 10.000.000 kr.
• Sama verkefni getur fengið styrk að hámarki í þrjú ár
• Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti sunnudaginn 12. mars
• Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar er að finna á
www.krabb.is/visindasjodur/
Erna Magnúsdóttir hlaut 4.793.400 kr.
styrk til verkefnisins BLIMP1 miðluð
stjórnun á frumuhring í Walden-
strömsæxlum.
Tómas Guðbjartsson hlaut 1.920.000
kr. styrk til verkefnisins Nýjungar í
skurðmeðferð lungnakrabbameins á
Íslandi.
Valtýr Stefánsson Thors hlaut
5.647.397 kr. styrk til verkefnisins
Ónæmissvar barna eftir krabba-
meinsmeðferð - hvernig og hvenær
er rétt að bólusetja?
Dæmi um rannsóknir sem fengu styrk
úr Vísindasjóði á síðasta ári:
styrkur
milljónir
Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins
er fjármagnaður með styrkjum frá
almenningi og fyrirtækjum í landinu.
Með þeim styrkjum hefur með
sameinuðu átaki tekist að bylta stöðu
krabbameinsrannsókna hér á landi.
Fréttablaðið íþróttir 1511. Febrúar 2023
LAUGArDAGUr