Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 18
Vivian Didriksen Ólafsdóttir
fer mikinn á hvíta tjaldinu
þessa dagana í aðalhlutverki
í Napóleónsskjölunum sem
byggð eru á samnefndri bók
Arnaldar Indriðasonar. Vivian
fór ekki hefðbundna leið að
markmiðinu enda einstæð
fjögurra barna móðir sem á
stutt í fertugt þegar stóra tæki-
færið kemur.
Harða gellan í kvik-
my nd i n n i L ey n i-
löggan, sem sló í gegn
á síðasta ári, vakti
töluverða at hyg l i
enda andlit sem fáir þá þekktu, í
nýfrumsýndum Napóleonsskjöl-
unum ber hún svo uppi myndina og
raðar í kringum sig þekktum leikur-
unum eins og Iaian Glen úr Game
of Thrones, Ólafi Darra Ólafssyni,
Þresti Leó Gunnarssyni og fleirum.
Það lá því beinast við að komast
að fleiru um konuna á bak við hina
grjóthörðu karaktera sem hún túlkar
í fyrrnefndum myndum og byrja á
alþjóðlegu nafninu, hvaðan kemur
nafnið Vivian?
„Ég er hálffæreysk, Vivian er borið
fram sem Vívian og Didriksen er fær-
eyska ættarnafnið mitt. Móðir mín
er færeysk og ég er fædd í Þórshöfn
þar sem við bjuggum ásamt föður
mínum fyrstu þrjú ár lífs míns.“
Móðuramma og -afi Vivian höfðu
flutt hingað til lands ung að árum og
er móðir hennar fædd og uppalin á
Íslandi. „Mamma og pabbi ákváðu
svo að prófa að hoppa þarna yfir og
búa í nokkur ár.“
Alltaf á leiðinni til Færeyja
Vivian segir tengslin við Færeyjar
sterk hjá fjölskyldunni en sjálf hafi
hún ekki ræktað þau nægilega. „Ég
hef ekki komið til Færeyja síðan ég
var níu ára. Ég var alltaf á leiðinni og
var komin með miða þegar Covid
skall á svo það frestaðist enn og
aftur.“
Aðspurð segir Vivian færeyskuna
blunda í sér. „Svo þegar það eru ætt-
armót og annað slíkt þá bara kemur
hún. Ég skil meira og minna allt en
það fer auðvitað eftir því hvaðan
Færeyingarnir koma. En mig hefur
langað mikið að fara aftur, ná tungu-
málinu alveg og mynda mín eigin
tengsl við landið og fólkið. Ég mun
gera það.“
Eftir upphafið hjá frændum
vorum Færeyingum segist Vivian
hafa alist upp hér og þar. Í dag býr
hún ásamt börnum sínum í Mosfells-
bænum, þaðan sem faðir hennar var
ættaður. „Við vorum eitthvað hér,
á Sauðárkróki, mörgum stöðum í
bænum og í Þýskalandi. Foreldrar
mínir skildu þegar ég var sjö ára og
voru að fóta sig sitt í hvoru lagi.“
Vivian á fjögur systkini. „Systir
mín, Anní Ólafsdóttir, er líka í kvik-
myndagerð. Við erum mjög nánar
og það er eiginlega út af henni sem
ég leiddist út í þennan geira. Þegar
ég var yngri ætlaði ég að verða svona
milljón hlutir en man að ég hugsaði:
Kannski verð ég bara leikari!“
Hrökklaðist frá Hollywood
Tuttugu og eins árs gömul ákvað
Vivian aldeilis að láta á það reyna og
réðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur, heldur stefndi lóðbeint á
Hollywood. Vivian var að heimsækja
Bandaríkin í fyrsta sinn og leist
engan veginn á menninguna. „Ég var
bara í skítugu Hollywood, nýkomin
frá Sauðárkróki. Ég fór á tveggja
mánaða námskeið hjá virtum leik-
listarskóla í Santa Monica og skoð-
aði þetta aðeins en var fljót að segja:
Nei, takk!“ segir hún með áherslu.
„Mér fannst þetta fólk klikkað. Allir
ógeðslega örvæntingarfullir, mikið
eldri en ég og í volæði að reyna að
meika það. Ég hugsaði með mér: Ég
ætla ekki að vera hluti af þessu!“
Vivian segir að þegar heim var
komið hafi henni verið bent á að
þetta væri ekki rétta leiðin, frekar
hefði hún átt að fara til Evrópu þar
sem ekki væri sami sirkusinn.
„Ég kom heim í hruninu og fór í
framhaldi til Þýskalands. Ég var þar
í tvö og hálft ár og eftir að hafa búið
í Þýskalandi sem barn náði ég þarna
aftur tengingu við landið og fullum
tökum á tungumálinu.“
Frá grasalækningum í leiklist
Þegar Vivian flutti aftur heim var
hún ákveðin í að fara í nám.
„Ég ætlaði í nám í grasalækning-
um en það er enn stórt áhugamál
hjá mér, næring og meltingarvegur-
inn. Ég fann virtan grasalæknaskóla
í Skotlandi, og þá bara verð ég ólétt,“
segir Vivian og skellir upp úr.
Þarna var hún 24 ára, ekki í sam-
bandi og átti óvænt von á sínu
fyrsta barni og frestaði grasa-
læknisnáminu. „Þegar dóttirin var
komin í heiminn var systir mín
byrjuð í námi í Kvikmyndaskól-
anum og hvatti mig til að tékka
aftur á leikaradrauminum og fara
í Kvikmyndaskólann,“ segir Vivian
og viðurkennir að upplifunin frá
Hollywood-tímanum hafi enn setið
í henni.
„Ég hafði sett þetta til hliðar og
ætlaði að gera eitthvað allt annað.
Í Þýskalandi fór ég meira að segja í
trúarbragðafræði og heimspeki. Ég
var rosa mikið að reyna að finna út
hver ég væri og hvað ég vildi gera.“
Í inntökupróf illa undirbúin
Vivian þakkar systur sinni alfarið
að hún hafi farið í nám í Kvik-
myndaskólanum.
„Hún lætur mig hafa pistil sem
ég átti að læra. Ég lærði hann ekki
einu sinni almennilega en hún
skutlaði mér og sendi mig inn. Ég
var illa undirbúin en komst inn mér
algjörlega að óvörum. En stundum
er þetta svona í lífinu, þegar maður
er alveg opinn og slakur og hugsar
að manni sé sama.
Ég er of boðslega þakklát fyrir
þennan skóla sem var eini skólinn
sem bauð upp á kvikmyndatengt
nám en ég hafði aldrei áhuga á að
starfa í leikhúsi.“
Þrjú börn bættust við
Vivian útskrifaðist árið 2012 og er
þá aftur barnshafandi.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Mér fannst þetta fólk
klikkað. Allir ógeðs-
lega örvæntingarfullir,
mikið eldri en ég og í
volæði að reyna að
meika það. Ég hugsaði
með mér: Ég ætla ekki
að vera hluti af þessu!
Það þýðir ekkert að
standa og væla
Vivian hefur
undanfarinn
áratug unnið að
því að koma sér
á framfæri sem
kvikmyndaleik-
kona, á sama
tíma og hún
eignaðist fjögur
börn.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
18 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023
lAUgARDAgUR