Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.02.2023, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 11.02.2023, Qupperneq 20
„Ég kynntist fyrr verandi eiginmanni mínum og barnsföður í Kvikmyndaskólanum. Við gerðum tvær bíómyndir saman, önnur kom aldrei út en hina tók okkur sjö ár að vinna, eiginlega allt hjónabandið okkar.“ Um var að ræða It hatched, hryll- ingsmynd með gamansömum undirtón sem var sýnd í Laugarás- bíó. „Þetta var svona indí-mynd sem enginn tók eftir en ég mæli svo inni- lega með henni en hún er aðgengileg á netinu í dag.“ Vivian eignaðist tvö börn með fyrrverandi eiginmanni sínum en fljótlega eftir skilnaðinn varð hún barnshafandi í fjórða sinn. „Það kom bara einn lítill karl í viðbót,“ segir hún og hlær en yngsti sonurinn er í dag tæplega fjögurra ára. Vivian var ekki í sambandi við barnsföðurinn en gat ekki hugsað sér annað en að eiga barnið þó að aðstæður væru vissulega flóknar. Ekki mælt með barneignum „Frá því ég steig inn í Kvikmynda- skólann í fyrsta sinn hef ég verið ákveðin í að ég er leikari, punktur. Þetta er búið að vera brjálæðis hark en ég er líka búin að njóta þess. Það hafa komið upp alls konar verkefni á leiðinni, lífið,“ segir Vivian sem viðurkennir alveg að það hafi bitnað á fjárhagnum að elta drauminn. Ég fékk alveg að heyra að ekki væri mælt með því að eignast börn í þessum geira og eftir annað barnið var mér bent á að vera ekki að bæta f leirum við. En svo fór þetta samt svona hjá mér og ég er svo þakklát að núna, tíu árum eftir útskrift, að hingað sé ég komin. Ég horfi til baka og hugsa að þetta hafi verið þess virði.“ Vivian viðurkennir að það hafi þurft blöndu af kæruleysi og ákveðni til að halda áfram eins lengi og hún hefur gert. „Það þarf gott f læði, ákveðið kæruleysi og mikla ákveðni.“ Ætla að snúa þessu við Aðstæður Vivian eru vissulega aðrar en f lestra leikkvenna sem eru að koma sér á framfæri og þá sérlega þar sem hugurinn stendur út fyrir landsteinana. „Ég hef alveg fundið fyrir því að einhverjum finnist það fyrirstaða að ég eigi fjögur börn. En ég ætla bara að snúa þessu við og nota það mér til framdráttar. Enda er ég búin að koma mér hingað í öllu harkinu. Auðvitað komu þó upp tímabil þar sem ég hugsaði með mér hvort ég gæti þetta eða hvort það væri eigin- gjarnt af mér gagnvart börnunum að vera listamaður. Ég hef ekki getað veitt þeim endilega það sama og vinir þeirra fá.“ Vivian segist í dag sannfærð um að staða hennar nýtist henni til góðs. „Maður þarf að standa með sjálfum sér. Ég er stolt af því sem ég hef áorkað og drifkrafturinn sem börnin gefa manni vinnur gegn erfiðinu. Þau eru mitt stolt og mér finnst til fyrirmyndar að hafa kom- ist hingað og held að það geti gefið öðrum í svipaðri stöðu von.“ Við erum í Doddabæ Eins og fyrr segir leikur Vivian aðal- hlutverkið í kvikmyndinni Napó- leónsskjölunum en hvernig ætli hafi gengið að koma tökunum fyrir með- fram hinum daglegu verkefnum? „Ég nýt þess að leika og elska það, það er aldrei erfitt en það erfitt að púsla heimilislífinu. Þetta hefur stundum verið geðveiki en ég á gott bakland fjölskyldu og vina. Börnin fara vanalega til feðra sinna langar helgar og á meðan á tökum stóð í þrjá mánuði breyttum við fyrir- komulagi þannig að þau voru meira hjá þeim og komu til mín langar helgar.“ Vivian hefur undanfarin ár leikið aukahlutverk í ýmsum þáttum en stærsta innkoman hefur komið úr erlendum auglýsingum. „Það sem hélt mér uppi allan þennan tíma sem ég hef verið að reyna að meika það sem leikkona, voru þessar erlendu auglýsingar.“ Vivian hefur gengið vel að koma sér á framfæri hér á landi enda segist hún þakklát fyrir að koma úr svo litlu samfélagi. „Við erum bara í Doddabæ þar sem allir hafa möguleika. Ég veit hvernig það er að reyna að koma sér á framfæri úti í hinum stóra heimi þar sem þú ert bara einhver kennitala og milljón manns jafn hæfileikaríkir og þú – ef ekki bara hæfileikaríkari – og ekki með fjögur börn,“ segir hún með áherslu. „Ég er sjúklega heppin.“ Leitaði sér aðstoðar Fyrir tveimur árum fékk Vivian staðfestingu á því sem hana hafði grunað, að hún væri með ADHD. „Ég var í raun útbrennd eftir skilnaðinn og að hafa svo eignast barn ein, beint í kjölfarið. En það þýðir ekkert að standa og væla og maður verður bara að keyra þetta áfram. Áfram gakk! En svo fór að ég leitaði mér aðstoðar í Virk.“ Í fyrsta viðtali hjá Virk lýsti Vivi- an því að þó að það væri ekki föst vinna sem væri að sliga hana þá væri hún einstæð móðir sem hreinlega væri búin með orkuna. „Ég sagði: „Ef það að vera ein með fjögur börn er ekki full vinna, þá veit ég ekki hvað! Og ég er útbrennd og þarf hjálp.“ Þau sögðust ekki geta sagt nei við þessu og ég fékk aðstoð. Því miður kom svo Covid svo ég gat nýtt mér það minna en planið var. En þetta hjálpaði mér að rétta mig aðeins af. Þarna fór ég þó að sjá að ég funkera ekki eðlilega, ég á erfitt með að fara í málin og klára þau. Ég flutti að heiman sextán ára svo þetta er löng saga af mér einni að díla við fullorðins dót án þess að kunna það.“ Af hverju er ég svona? Vivian fór í ADHD-greiningu og segir það hafa verið gott að vita hvað amaði að sér og geta þannig tekið á því. „Ég hef svo oft hugsað: Af hverju er ég svona?“ Vivian hefur ekki tekið lyf við ADHD þó að hún útiloki það ekki en hefur skoðað mataræðið vel og seg- ist þannig halda niðri einkennum. „Ég er hrædd við lyf því ég er með psoriasis, tourette og ADHD, svo ef ég fer að dæla í mig einhverjum lyfjum við einu, getur það haft áhrif á annað. En ég passa rosalega hvað ég borða – ef ég geri það ekki krassar kerfið mitt.“ Vivian segir áhugann á áhrifum mataræðis á heilsuna lengi hafa fylgt sér en eftir greininguna hafi hann aukist enn frekar. Ég sagði: „Ef það að vera ein með fjögur börn er ekki full vinna, þá veit ég ekki hvað! Og ég er útbrennd og þarf hjálp.“ Vivian hér ásamt börnum sínum fjórum. Unu, 14 ára, Esju, 11 ára, Óla, 6 ára og Funa, 4 ára. mynd/ aðsend Kvikmyndin Napóleons- skjölin er byggð á sam- nefndri bók Arnaldar Ind- riðasonar sem kom út árið 2007. mynd/Juliette Rowland  20 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023 lAUgARDAgUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.