Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 21
Frá því ég steig inn í
Kvikmyndaskólann í
fyrsta sinn hef ég verið
ákveðin í að ég er
leikari, punktur. Þetta
er búið að vera brjál-
æðis hark en ég er líka
búin að njóta þess.
„Þá fór ég að skoða þetta í kjölinn
og læra mikið inn á sjálfa mig,“
segir Vivian sem lærði mikið á
námi í Heilsumeistaraskólanum.
„Það kviknaði á risastórri ljósa-
peru hjá mér og ég skildi svo margt.
Ég er ekki á móti lyfjum og útiloka
ekki að prófa þau, en fyrir mig
fyndist mér ekki rétt að taka lyf að
staðaldri. Ég borða allt og er algjör
nautnaseggur og er ekkert heilög
þegar að því kemur. En dagsdag-
lega neyti ég engra mjólkurvara eða
hveitis og legg mikla áherslu á græn-
meti, ávexti, olíur, ensím og gerla og
reyni að hafa mataræðið basískt.“
Vivian segist ekki hafa fengið
formlega greiningu á tourette. „Ég
veit það bara, ég þarf ekki að fara
í greiningu. Þetta var mikið meira
þegar ég var yngri, ég var með rosa-
lega mikið af kækjum og réð stund-
um ekkert við mig. Á þessum tíma
var ég líka algjör kálfur og drakk
helst lítra af mjólk á dag og sem
unglingur var ég öll afmynduð af
hormónarugli,“ segir Vivian.
„Þetta er þó eitthvað sem ég
er búin að mastera, ég lærði sem
krakki að fela þetta því mamma
skammaði mig mikið fyrir kækina.
Hún vissi ekki hvernig hún átti að
taka á þessu, það vissi enginn hvað
þetta var.“
Mataræðið veitt kontról
Vivian segir mikið hafa breyst þegar
hún tók út mjólkurvörur. „Ég varð
allt önnur líkamstýpa. Mataræðið
veitti mér kontról.“
Aðspurð hvernig gangi að læra
texta, hvort ADHD hái henni þar
svarar Vivian:
„Ég læri texta í gegnum líkamann
og geri alls konar æfingar til þess.
Ég kveiki á grát með ákveðinni
hreyfingu, ég þarf ekki einu sinni að
hugsa. Í skóla lærir maður alls konar
tækni en svo tínir maður út það sem
hentar og býr til eigin verkfærakistu.
Ég man engin nöfn en er brilljant í
tilfinningu,“ segir hún í léttum tón.
Vivian segist hafa notið þess í botn
að taka þátt í Napóleónsskjölunum.
„Ég hugsaði aðeins um það hvernig
maður kæmi út sem nóboddí innan
um þessa geggjuðu leikara. Ég spurði
mig hvort ég yrði sambærileg þessu
fólki. En svo gekk þetta alveg rosa-
lega vel enda Óskar æðislegur. Ég var
líka dugleg að taka smá pláss og nýta
mér reynslu hinna leikaranna. Stór-
stjarnan Iain var duglegur að gefa
af sér til okkar allra og koma með
punkta. Það er svo gaman að vinna
með svona kláru og reynslumiklu
fólki.“
Aðspurð hvernig hafi verið að sjá
sig á hvíta tjaldinu með fullum sal af
áhorfendum segir Vivian: „Í öllu því
sem ég hef gert hef ég alltaf átt erfitt
með að horfa á sjálfa mig. Ég er ekki
alveg komin þangað. Ég er dugleg
að fá að sjá mónitorinn í tökum og
það dugir mér. Mér fannst myndin
geggjuð en ég ætla ekkert að horfa á
hana aftur,“ segir hún og hlær enda
ekki mikið fyrir það að horfa á sjálfa
sig eins og fram hefur komið.
Það er ýmislegt fram undan hjá
Vivian en stærsta verkefnið er þættir
eftir bókum Yrsu Sigurðardóttur.
„Ég er að lesa fyrstu bókina, DNA,“
segir hún og bendir á bókina á stofu-
borðinu. „Þetta er allt að púslast
saman og ég er spennt fyrir þessu
verkefni.“
Viljum heyra um eldri konur
Aðspurð hvort hún sé nú komin á
þann stað sem hún ætlaði sér svarar
hún ákveðin:
„Nú er þetta að fara að byrja.
Hefði ég verið fljótari hefði ég ekki
átt þessi börn? Ég veit það ekki. Ég
er svo þakklát fyrir að vera kona á
þessum tímum. Ef ég hefði verið uppi
40 árum fyrr væri ég búin að missa
bitastæðu hlutverkin og væri sett í
hlutverk mömmunnar og svo ömm-
unnar vegna aldurs. Þetta er búið að
breytast svo mikið, nú viljum við
heyra sögur um konur sem eru fimm-
tugar og eldri. Þær eru aðalkarakter-
arnir, við erum ekki lengur að kaupa
það að einhver 25 ára skvís sé búin
að mastera allt í lífinu, það eru bara
krakkar.“
Vivian er handviss um að æsku-
dýrkunin sem tröllriðið hefur þess-
um geira lengi vel sé á undanhaldi.
„Ég er mjög ánægð með það og það
væri gaman að vera til fyrirmyndar
í þeim efnum, að vera leikkona sem
var fyrst að meika það um fertugt.
Mér var bent á það af umboðsmanni
að klukkan væri farin að tikka hjá
mér og benti honum á móti á að hann
vissi greinilega ekki hvað klukkan
væri að tikka yfirhöfuð. Þetta er
framtíðin!“ segir hún ákveðin að
lokum. n
Vivian hér ásamt leikurunum Jack Fox, Iain Glen og Adesuwa Oni. Mynd/Juliette Rowland
Vivian segir stórleikarann Iain Glen sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt úr Game of Thrones, hafa gefið mikið
af sér við tökurnar og hún hafi getað sótt í reynslubrunn hans eins og aðrir leikarar. Mynd/Juliette Rowland
Vivian hér við
tökur ásamt
leikstjóra
myndarinnar,
Óskari Þór
Axelssyni.
Mynd/Juliette
Rowland
Ef ég hefði verið uppi
40 árum fyrr væri ég
búin að missa bita-
stæðu hlutverkin og
væri sett í hlutverk
mömmunnar og svo
ömmunnar vegna
aldurs.
Fréttablaðið helgin 2111. Febrúar 2023
lAUgARDAgUR