Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 23
KYNN INGARBLAÐ
ALLT Austurmörk 21 • 810 Hveragerði
Hornsteinn
60 ára afmælissýning
11/02 – 20/08 2023
LAUGARDAGUR 11. febrúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Ívar ákvað snemma að hann vildi eiga heima á Spáni og þar hefur hann verið búsettur í tæp 30 ár. MYND/AÐSEND
Þetta er draumur í dós
Golfkennarinn Ívar Hauksson hefur verið búsettur á Spáni í tæp 30 ár þar sem hann unir
hag sínum afar vel ásamt sambýliskonu sinni og tveimur dætrum þeirra. 2
Þátttakendur koma með staka
sokka. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Momo Hayashi, listakona og kenn-
ari frá Kobe í Japan, verður með
sokkabrúðugerð í Kakó Lingua á
morgun á milli 13.30 og 15.00 á
Borgarbókasafninu í Kringlunni.
Þátttakendur koma með staka
sokka en annað sem þarf til fönd-
ursins verður á staðnum. Svo
er aldrei að vita nema þátttak-
endur læri smá japönsku í leiðinni!
Momo er menntuð í kennslufræð-
um og íslensku og er meðeigandi
í hönnunarbúðinni svartbysvart.
Hún talar japönsku, ensku og
íslensku en á öllum viðburðum
Kakó Lingua leika þátttakendur
sér saman að því að brjóta tungu-
málamúrinn.
Læra orð á annan hátt
Kakó Lingua eru viðburðir á Borg-
arbókasafninu í Kringlunni þar
sem fólk kynnir hvert annað fyrir
nýjum tungumálum í gegnum
einföld og skemmtileg verkefni í
hvetjandi og notalegu umhverfi.
Viðburðirnir eru fyrir börn á
öllum aldri sem langar að læra ný
orð á skemmtilegan hátt. Yngstu
börnin gætu þó þurft að fá hjálp
frá foreldri. Viðburðirnir eru allir
ókeypis. Næstu viðburðir á eftir
sokkabrúðugerðinni eru Arabískir
tónar og skrautskrift með Amel
Barich og Skordýr segja frá: sögu-
stund með Sverri og Cerise. n
Sokkabrúðugerð
á bókasafninu