Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 26
Hugmyndin að pastagerð-
inni La Fresca í Kaupmanna-
höfn kviknaði í helgarferð
Fannars Hannessonar og
Francescu Tenze til Bologna
á Ítalíu meðan þau voru í
námi. Þau sögðu bæði upp
krefjandi störfum sínum og
létu drauminn rætast.
starri@frettabladid.is
Undir lok síðasta árs opnuðu
Fannar Hannesson og kærastan
hans, Francesca Tenze, pasta-
gerðina La Fresca í Vanløse-
hverfinu í Kaupmannahöfn. Þar
framleiða þau og selja ferskt pasta
sem fólk tekur með heim og eldar
á stuttum tíma, eins og algengt er
á Ítalíu.
Fannar og Francesca bjóða
meðal annars upp á ravioli með
mismunandi fyllingum, ólíkar teg-
undir af tagliatelle og þrjár gerðir
af gnocchi. „Við framleiðum einnig
heimalagaðar sósur eins og hinar
klassísku bolognese- og arrabiata-
sósur auk þess sem við f lytjum
mismunandi sósur frá Ítalíu.
Viðtökurnar hafa svo sannarlega
farið fram úr væntingum okkar og
Íslendingar eru duglegir að styðja
við sitt fólk, sem er frábært,“ segir
Fannar.
Bakgrunnur Fannars og Fran-
cescu liggur alls ekki í veitinga-
geiranum sem gerir sögu þeirra
enn skemmtilegri. „Við erum bæði
útskrifuð með master í Interna-
tional Marketing & Management
frá Copenhagen Business School
(CBS),“ segir Fannar sem er 29 ára
en hann flutti til Kaupmanna-
hafnar fyrir tíu árum síðan ásamt
foreldrum og systkinum. „Ég
kláraði BSc. í viðskiptafræði frá
CBS og hélt svo áfram í meistara-
námið og þar hitti ég Francescu á
fyrsta skóladegi.“
Francesca er 26 ára og f lutti til
Kaupmannahafnar frá Mílanó á
Ítalíu fyrir fimm árum til þess að
hefja meistaranám sitt við CBS.
Byrjaði með einu námskeiði
Eftir útskrift þeirra árið 2020 hófu
þau bæði störf hjá alþjóðlegum
lyfjafyrirtækjum, Fannar hjá Novo
Nordisk og Francesca hjá Colo-
plast. Hugmyndin að La Fresca
kviknaði hins vegar í helgarferð
sem parið fór í til Bologna á Ítalíu
á seinustu önninni í meistara-
námi þeirra. „Þar ákváðum við
að skrá okkur á námskeið þar
sem við lærðum að búa til ferskt
pasta, bara svona upp á gamanið.
Bologna er þekkt sem höfuðborg
lasagna og þar eru pastagerðir
líkar okkar úti um allt sem búa
til ótrúlega gott ferskt pasta á
hverjum degi.“
Það var í kjölfar þessarar helgar-
ferðar sem þau fóru að velta fyrir
sér hvort grundvöllur væri fyrir
slíkum stað í Kaupmannahöfn. „Á
meðan við skrifuðum meistara-
ritgerðirnar okkar byrjuðum við
því hægt og rólega að pæla meira
í hugmyndinni og safna að okkur
meiri upplýsingum. Að lokum
vorum við komin með 40 blað-
síðna rekstraráætlun og fengum
síðan fjármögnun upp á átta
milljónir íslenskra króna frá sjóði
hér í Danmörku til þess að gera
La Fresca að veruleika. Hálfu ári
seinna skrifuðum við undir leigu-
samning á Jernbane Allé 35 í Van-
løse, sögðum upp störfum okkar
og fórum á fullt með La Fresca.“
Mikil vinna en skemmtileg
Það eru mikil viðbrigði að stökkva
úr fyrri störfum hjá alþjóð-
legum fyrirtækjum í að reka eigin
pastagerð en þrátt fyrir mikla
vinnu hefur allt ferlið verið mjög
skemmtilegt að sögn Fannars.
„Það er í rauninni auðvelt að skrá
fyrirtæki hér í Kaupmannahöfn
og um leið er góður aðgangur að
viðskiptahröðlum sem veita góða
leiðsögn og innsýn í það sem er
gott að hafa í huga þegar maður
íhugar að fara í rekstur. Það er
mjög hjálplegt þegar maður hefur
ekki hugmynd um hvar á að byrja.“
Eins og er reka þau einu pasta-
gerðina í borginni sem selur
eingöngu ferskt pasta til að taka
með heim þannig að engin bein
samkeppni er enn til staðar.
„Hins vegar er veitingabransinn í
Kaupmannahöfn mjög virkur og
samkeppnin getur verið mjög hörð
innan hans.“
Þessa dagana gera þau því lítið
annað en að sinna rekstrinum.
„En þegar við höfum tíma finnst
okkur gaman að uppgötva nýja
matarstaði í borginni og verja
tíma með vinum og fjölskyldu. Það
er almennt ljúft að lifa og starfa
í Kaupmannahöfn. Hér eru auð-
veldar samgöngur, gott jafnvægi
milli vinnu og daglegs lífs að mestu
leyti og við hlökkum nú þegar til
sumarsins sem er dásamlegt í Dan-
mörku.“ n
Hægt er að fylgjast með á Face
book (lafrescadk), Instagram
(lafrescadk) og á lafresca.dk.
Afdrifarík helgarferð til Bologna
Francesca Tenze og Fannar Hannesson opnuðu pastagerðina La Fresca undir
lok síðasta árs í Kaupmannahöfn. Viðtökur hafa verið góðar. MYNDir/AÐSENDAr
La Fresca býður meðal annars upp á
úrval af ravioli, tagliatelle og gnocchi.
Sigríður hefur fundið mik-
inn mun á sér eftir að hún
byrjaði að taka inn Liði frá
Protis. Morgunbrakið í ökkl-
unum og viðkvæmir liðir
heyra nú sögunni til og hún
getur að eigin sögn „djöflast
eins og henni sýnist“.
„Ég byrjaði að taka inn kollagen
því ég var komin á aldur og
langaði til að prófa það. Ég er að
verða sextug og var farin að finna
fyrir liðunum og svo er ég með
undirliggjandi rauða úlfa, sem er
sjálfsofnæmissjúkdómur,“ segir
Sigríður Svava Þorsteinsdóttir sem
starfar sem lífeindafræðingur á
Landspítalanum. „Ég hef stundað
íþróttir af kappi alla mína ævi og
haldið mér í góðu formi. Ég hreyfi
mig daglega og þar sem ég er í
vaktavinnu og starf mitt er líkam-
lega erfitt þá er það mikilvægt fyrir
mig að vera í formi,“ segir hún.
Hafði engu að tapa
„Stirðleikinn kemur með aldr-
inum og þegar ég stóð upp úr
rúminu á morgnana brakaði heil
ósköp í helstu þyngdarpunktum
neðst í ökklunum. Ég fann líka
fyrir töluverðum sársauka við
brakið. Nú er ég ekki þung og
held mér í nokkuð góðu formi.
Ástæðan fyrir brakinu og liða-
verkjunum er því aðallega slit sem
gerist þegar maður hefur verið
mikið í hreyfingu. Ég stundaði
langhlaup í mörg ár en geri það
ekki lengur.
Í dag er ég meira í þolþjálfun
á þrektækjum í ræktinni. Mig
vantaði eitthvað til að styðja betur
við líkamann og kollagen er nú
eitthvað sem þú færð ekkert allt
of mikið af úr fæðunni. Ég hef
lesið mér til um kollagen og sem
lífeindafræðingur þá hef ég smá
þekkingu á þessu og veit að það
getur haft góð áhrif. Ég hafði því í
raun engu að tapa.“
Hylkin henta henni
Sigríður hefur nú tekið Protis Liði
í ár en formúlan er mjög rík af
kollageni. „Ég fann mikinn mun
á mér eftir um tvo til þrjá mánuði
af inntöku. Fyrst byrjaði ég á því
að taka inn kollagen frá öðru fyrir-
tæki sem kom í duftformi. En mér
líkaði ekki lyktin af því, svo mér
datt í hug að prófa Liði frá Protis.
Ég hafði séð þetta í búðum og
það heillaði mig að bætiefnið væri
íslensk framleiðsla og að það kæmi
úr sjónum við strendur Íslands.
Mér finnst gaman að prófa ýmsar
húðvörur og f leira sem er framleitt
hér á Íslandi, og svo skemmir ekki
fyrir að þetta eru f lottar umbúðir.
Ég tek fjórar töflur á dag af
Protis Liðum og tek það með mér
hvert sem ég fer. Þar sem það
kemur í hylkjaformi er engin lykt
af því sem truflar mig. Í dag finn
ég ekki lengur fyrir neinum liða-
verkjum í líkamanum og brakið
er horfið, sem sýnir að Protis Liðir
virka. Ég vil geta hreyft mig og
djöflast eins og mér sýnist og þetta
smyr vélina. Ég finn líka að hárið
er heilbrigðara og ég er farin að
safna hári núna á eldri árum, en
það er þekkt að kollagen hafi góð
áhrif á húð, hár og neglur.“
Er ekki vítamínfrík
„Ég þekki sjálfa mig og veit að
ég endist ekki í því að taka inn
fæðubótarefni sem mér líkar
ekki og hefur ekki áhrif. Ég hef til
dæmis reynt að taka inn lýsi en
gefst alltaf upp á því vegna þess
að mér líkar ekki hvernig bragðið
af því kemur sífellt upp aftur yfir
daginn. Ég er ánægð með Protis
Liði enda virkar það fyrir mig. Ég
er ekki mikið vítamínfrík og ef
Protis Liðir virkuðu ekki fyrir mig
þá væri ég einfaldlega ekki að taka
það.“
Undraefni fyrir liði,
brjósk og bein
Protis Liðir er kollagenrík blanda
sem kalla má undraefni fyrir
liði, brjósk og bein. Það sem gerir
vöruna einstaka er innihaldsefnið
sæbjúgnaextrakt sem er unnið úr
skráp villtra sæbjúgna sem eru
veidd í hafinu við Ísland. Form-
úlan er sérþróuð sem stuðningur
við þá sem vilja bæta heilsu liða,
brjósks og beina.
Vítamín bæta virknina
Protis Liðir er með viðbættu
C-vítamíni sem hvetur eðlilega
myndun kollagens í brjóski,
D-vítamíni sem er mikilvægt
fyrir heilbrigði beina þar sem
það stuðlar að frásogi kalks úr
meltingarvegi, og mangani sem er
nauðsynlegt við myndun á brjóski
og liðvökva. Túrmerik er svo ákaf-
lega ríkt af jurtanæringarefninu
curcumin.
Þessi einstaka vara er í uppáhaldi
hjá mörgum viðskiptavinum en
hún er byggð á íslensku hugviti og
er afrakstur áralangra rannsókna
og þróunarvinnu á efnum sem
kallast IceProtein®. n
Protis Liðir fæst í flestum mat
vöruverslunum, apótekum og
Heilsuhúsinu. Þess má geta að nú
eru bætiefnin frá Protis komin í
nýjar og glæsilegar umbúðir.
Viðkvæmir liðir heyra nú sögunni til
Sigríður Svava
Þorsteinsdóttir
vinnur á Land
spítalanum í
líkamlega erfiðu
starfi og segir
gríðarlega mikil
vægt fyrir sig
að vera í formi.
Protis Liðir segir
hún að smyrji
vélina.
FréttAblAÐiÐ/
ErNir
4 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2023 LAUGARDAGUR