Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 30

Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 30
Ertu fjölhÆfur sérfrÆÐingur mEÐ áhuga á samskiptum og störfum þingsins? Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum sérfræðingi til að sinna krefjandi og fjölbreyttum verkefnum í lifandi umhverfi. Um er að ræða stöðu í stoðteymi sem sinnir almennri ritaraþjónustu fyrir nefndir og fleiri einingar auk annarra verkefna. Til greina kemur að ráða í tímabundna stöðu vegna afleysingar. • Almenn ritaraþjónusta þ.m.t. boðun funda og gesta • Miðlæg móttaka og skráning erinda og gagna • Þátttaka í skipulagningu og undirbúningi nefndastarfa • Gerð samantekta, greiningarvinna og úrvinnsla upplýsinga • Önnur verkefni sem stoðteyminu eru falin • Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi • Faglegur metnaður, jákvæðni og framúrskarandi samskiptahæfni • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni • Mjög gott vald á íslensku og ensku • Góð tölvufærni og þekking á skjalastjórn • Reynsla af teymisvinnu er kostur Helstu verkefni og ábyrgð HÆfniskröfur Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023 og sótt er um starfið á starfatorg.is Nánari upplýsingar: Hildur Eva Sigurðardóttir, sviðsstjóri nefnda- og greiningarsviðs | hildureva@althingi.is | 563-0500 frekari upplýsingar um starfið fagmennska | v irðing | framsækni Íþróttafélagið Grótta óskar eftir starfsmanni í 100% starf í íþróttamannvirki Gróttu Grótta er staðsett á Seltjarnarnesi og innan vébanda þess eru þrjár deildir; fimleikadeild, handknattleiksdeild og knattspyrnu- deild. Íþróttamannvirki Gróttu samanstanda af tveimur íþrótta- sölum, gervigrasvelli, fimleikasal auk búnings- og fundarher- bergja, skrifstofuaðstöðu, styrktaraðstöðu og veislusals. Meginmarkmið Íþróttafélagsins Gróttu er að þjónusta alla félagsmenn á sem bestan hátt. Áhersla er lögð á árangursríkt samstarf við þá fjölmörgu sem nýta sér þjónustu Gróttu dag hvern. Helstu verkefni og ábyrgð • Starfsmaður aðstoðar nemendur grunn- og leikskóla og iðkendur Íþróttafélagsins Gróttu í leik og starfi. • Dagleg þrif á íþróttamannvirkinu, t.d. íþróttasölum, göngum, anddyri, veislusal og búningsklefum. Hæfniskröfur • Áhugi á að vinna með börnum • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð • Hæfni til að vinna í hóp Vinnutími er breytilegur eða eftir samkomulagi, óskað er er eftir starfsólki í fullt starf og hlutastörf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kári Garðarsson í síma 561-1133 og tölvupósti kari@grotta.is. Nánari upplýsingar um Íþróttafélagið Gróttu er að finna á www.grotta.is. Umsóknarfrestur er til 18. febrúar 2023. Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda á netfangið kari@grotta.is. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. apríl nk. Starfsmaður óskast Sérfræðingur í greiningardeild ríkislögreglustjóra Við leitum að einstaklingi sem hefur góða þekkingu á innlendum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum, reynslu af gagnagreiningu, úrvinnslu og framsetningu gagna og hefur brennandi áhuga á að starfa í síkviku umhverfi. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2023. Hlutverk greiningardeildar er að samhæfa og samræma öflun og greiningu upplýsinga og stuðla að nýtingu þeirra við ákvörðunartöku innan löggæslustofnanna. Greiningardeild fer með stjórn rannsókna mála er lúta að landráðum og brotum gegn stjórnskipan ríkisins og æðstu stjórnvöldum. Greiningardeild framkvæmir áhættumat vegna skipulagðrar brotastarfsemi og hryðjuverka, þá tekur deildin jafnframt þátt í margvíslegu innlendu og erlendu samstarfi varðandi öryggismálefni. Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar, eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans. Helstu verkefni og ábyrgð • Gerð áhættumats fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og önnur tilfallandi verkefni á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018. • Rannsóknir mála er kunna að varða við X. og XI. kafla almennra hegningarlaga. • Aðgerðir til að koma í veg fyrir fjármögnun hryðjuverka og annarra skyldrar háttsemi. • Önnur tilfallandi verkefni greiningardeildar. Hæfnikröfur Menntun, þekking og reynsla • Meistarapróf í fjármálaverkfræði, hagfræði, viðskiptafræði eða sambærilegu sem nýtist í starfi. • Starfsreynsla af fjármálamarkaði eða frá öðrum stjórnvöldum sem og góð þekking á inn- lendum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum. • Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi. • Tölfræðiþekking, reynsla af gagnagreiningu, úrvinnslu og framsetningu gagna. • Reynsla af gerð áhættumats af einhverju tagi, og/eða menntun, þjálfun eða annars konar þekking á því sviði. • Þekking og skilningur á margvíslegum eiginleikum mismunandi kerfa og ferla. • Gott vald á íslensku, framúrskarandi enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Persónulegir eiginleikar • Jákvætt viðmót, hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi. • Frumkvæði, lausnamiðuð nálgun og metnaður til að ná árangri í starfi. • Aðlögunarhæfni, seigla og geta til að vinna undir álagi. • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð. Frekari upplýsingar um starfið Umsóknir skulu berast í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is). Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum um- sóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til við- komandi starfa. Embætti ríkislögreglustjóra leitar að öflugum sérfræðingi til starfa í teymi greiningardeildar. RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 www.radum.is • radum@radum.is Við ráðum Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.