Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 40

Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 40
Lystigarðurinn á Akureyri á sér falinn leyndardóm sem ekki allir eru búnir að finna. Veitingastaðurinn LYST var opnaður í apríl á síðasta ári og er rómaður fyrir ljúf- fengar veitingar, framúr- skarandi þjónustu og hlýlegt umhverfi. sjofn@frettabladid.is Reynir Gretarsson matreiðslu- maður rekur LYST en hann er frá Akureyri. Reynir hefur ávallt haft mikinn áhuga á matar- og súkku- laðigerð og með árunum jókst áhugi hans á því að fara út í eigin rekstur. „Áður en ég fór í þetta verkefni var ég framleiðslustjóri hjá Omnom í fimm ár. Þar á undan hafði ég unnið á veitingastað í Malmö í tvö ár. Ég bý með kær- ustunni minni Berglindi Harðar- dóttur hér á Akureyri. Ég hef alltaf haft áhuga á matar- gerð og var fljótur að ákveða að þetta væri eitthvað sem ég vildi vinna við. Eftir að hafa unnið í Svíþjóð, þar sem ég gerði mikið konfekt, fékk ég áhuga á súkku- laði sem leiddi mig yfir í að vinna með Kjartani Gíslasyni og Óskari Þórðarsyni hjá Omnom. Þessi ár jókst áhugi minn á eigin rekstri og pældi ég mikið í hvernig konsept- veitingastaðir eru með og hvernig þeir funkera,“ segir Reynir. Allar kaffibaunirnar kláruðust Aðspurður segir Reynir að LYST hafi orðið til þegar Akureyrarbær auglýsti eftir tilboðum í rekstur í fallegasta húsi bæjarins, í glæsi- legasta garði landsins, Lystigarð- inum. „Berglind bjó þá á Akureyri og var ekki annað hægt en að keyra á þetta verkefni, búa til konsept og finna gott fólk til að vinna með. Ég var heppinn að hafa kynnst fullt af frábæru fólki og fyrirtækjum eftir að hafa unnið hjá Omnom og hef nýtt mér þau tengsl mikið. Ég hef einnig fundið fyrir miklum stuðningi hjá Akureyrarbæ og bæjarbúum sem vilja auðvitað hafa LYST opið allt árið en það hafði ekki verið gert í mörg ár af fyrri rekstraraðilum.“ Viðtökurnar við opnun á staðn- um fóru strax fram úr væntingum. „Við opnuðum LYST í apríl 2022, og vissum ekkert við hverju var að búast. Akureyringar tóku okkur strax svakalega vel, við erum þeim ævinlega þakklát fyrir skilning á fyrstu vikunum, til dæmis um páskana mættu mun fleiri en við höfðum gert ráð fyrir og allar kaffibaunirnar kláruðust. Við sem LYST í lostafulla lystigarðinum á Akureyri Reynir opnaði veitingastaðinn LYST í apríl á síðasta ári og hafa viðtökurnar verið frábærar, langt fram úr björtustu vonum. Margt er fram undan á LYST næstu vikurnar og það má með sanni segja að búið sé að glæða Lystigarðinn á Akureyri lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Húsið sem hýsir LYST er reisulegt og fallegt, staðsett í einum fallegasta garði landsins. Logi Einarsson teiknaði húsið og gluggarnir eru listaverk út af fyrir sig. Rýmið er listrænt og fallegt. Vinsælasti rétturinn á LYST er þetta girnilega avókadósalat á súrdeigsbrauði. betur fer lærðum af þessu og hefur það ekki komið fyrir aftur.“ Frá orðinu lostagarður Reynir segir að það hafi ekki verið erfitt að finna nafn á staðinn. „Nafnið LYST kemur frá stað- setningunni. Einhver sagði mér að það væri skrifað með ypsílon vegna þess að þetta kæmi frá orðinu losta- garður. En okkur fannst sniðugt að kalla staðinn LYST með tengingu í orðið matarlyst líka. Margir átta sig reyndar ekki á því að staðurinn heitir ekki Kaffi Lyst, heldur LYST, en við vildum sleppa orðinu kaffi þar sem okkur langaði að gera meira en bara kaffihús. Staðurinn er kaffihús á daginn, en tónleika- og viðburðastaður á kvöldin. Við leggjum mikið upp úr góðu nátt- úruvíni og íslenskum bjór.“ LYST býður alla virka daga upp á ferskan fisk og grænmeti í hádeginu. „Við fáum inn ferskan fisk á hverjum degi og kemur það reglulega fyrir að hann klárist, en við viljum frekar klára fiskinn í hádeginu heldur en að enda á að vera að elda þriggja daga gamlan fisk. Fiskurinn hjá okkur er eins ferskur og mögulegt er. Með því að bóka fyrir fram er hægt að tryggja sér fisk í hádeginu. Hægt er að panta fisk og grænmeti á kvöldin líka. Með þessu fyrirkomulagi erum við að reyna að minnka matarsóun eins og mögulegt er og halda öllu hráefni fersku,“ segir Reynir. Húsið sem hýsir LYST er ein- staklega fallegt. „Að okkar mati er LYST í fallegasta húsi bæjarins. Logi Einarsson teiknaði húsið en gluggarnir eru listaverk út af fyrir sig. Verkefnið okkar á LYST var fyrst og fremst að koma lífi í húsið allt árið um kring. Síðustu ár hefur verið frekar rólegt í garðinum á veturna og fannst okkur það vera illa farið með svona frábæra stað- setningu. Margir höfðu áhyggjur af snjómokstri en það hefur alltaf verið á misskilningi byggt, Guðrún, forstöðumaður Lystigarðsins, og hennar starfsfólk er nefnilega alltaf mætt fyrst að moka stígana og er Lystigarðurinn líklega best mokaði svæðið á Akureyri,“ segir Reynir. Pop-up dinner konudagshelgina Ætlunin er að vera reglulega með viðburði á LYST. „Við byrjuðum fljótlega eftir opnun að vera með viðburði, sá fyrsti var líklegast sumarhátíð LYST. Við stefnum á að stækka hátíðina enn frekar og halda sumar- og bjórhátíð. Svo reynum við að vera með alls kyns viðburði til að halda lífi í húsinu, á næstunni verður til að mynda pop- up dinner með Kára Þorsteins- syni frá Nielsen á Egilsstöðum og Kjartani frá Omnom, við ætlum að vera með fimm rétta veislu og vín- pörun um konudagshelgina. Síðar í febrúar verður svo kabarettsýning þar sem Margrét Erla Maack og Gógó Starr mæta ásamt fleirum. Um páskana er stefnan sett á að hafa nokkra tónleika,“ segir Reynir og segir að best sé að fylgja LYST á samfélagsmiðlunum til að fylgjast með viðburðum. Við fengum Reyni til ljóstra því upp hvaða réttur njóti mestrar hylli meðal iðskiptavina. „Einn vinsælasti rétturinn okkar hefur verið avókadósalat á súrdeigs- brauði frá Brauð & Co, en við vinnum mikið með þeim,“ segir Reynir sem er afar spenntur fyrir framhaldinu. Avókadósalat 500 g avókadó 125 g sýrður rjómi 36% (mjög mikilvægt að hafa 36%) 60 g vorlaukur 55 g skalottlaukur 1 stk. rauður chilli 25 g limesafi 4 g salt Byrjið á því að skera avókadó í bita og tossið í limesafa. Fínsaxið vorlaukinn, skallottlaukinn og chilli. Blandið saman og berið fram á fallegum disk þar sem salatið fangar augað. n 6 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.