Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 48
Líkamsleifar keisara-
ynjunnar Anastasíu
fundust ekki fyrr en
nokkrum árum eftir
fall Sovétríkjanna.
Anna Anderson
Árið 1918 var rússneska keis
arafjölskyldan myrt af bolsév
íkum. Í kjölfarið fór orðrómur
á kreik þess efnis að Anastasía,
yngsta dóttir Nikulásar II.
keisara, væri á lífi. Meðal ann
ars vegna þess að líkamsleifar
hennar höfðu ekki fundist.
Margir reyndu að notfæra sér
það og sögðust vera rússneska
prinsessan og þeirra á meðal
var Anna Anderson. Anna, sem
þótti ansi lík Anastasíu, reyndi
að sanna að hún væri prins
essan, en tapaði dómsmáli
þess efnis árið 1938.
Fólk sem þekkti til rússnesku
keisarafjölskydunnar átti erfitt
með að trúa henni, en aðrir
voru fullvissir um að Anna væri
Anastasía.
Anna lést á níunda áratug
síðustu aldar 87 ára gömul.
Raunverulegar líkamsleifar
Anastasíu fundust ekki fyrr en
eftir fall Sóvíetríkjanna, nánar
tiltekið árið 2007. Í kjölfarið
var erfðarannsókn gerð sem
leiddi í ljós að hún hefði í raun
verið pólsk verkakona að nafni
Franziska Schanzkowska, en
ekki Anastasía.
Steven Spielberg átti eftir að leikstýra kvikmynd um æfi Abagnale og fékk sjálfan Leonardo
DiCaprio til að fara með hlutverkið fréttablaðið/epa
Frank Abagnale
Hinn bandaríski Frank Abagn ale er hvað
þekktastur fyrir að hafa verið leikinn af
Hollywoodstjörnunni Leonardo DiCap
rio í kvikmynd Steven Spielberg, Catch
Me If You Can, en myndin fjallar einmitt
um líf þessa uppátækjasama lygara og
svindlara.
Eftirminnilegustu lygar Abagn ale
varða líklega það hvernig hann kom sér
í ákveðin störf ungur að aldri. Á sjöunda
áratug síðustu aldar varð hann flugmaður
einungis sextán ára gamall og fékk háa
stöðu á bráðadeild átján ára. Í hvorugu
tilfelli hafði hann nokkur réttindi til að
sinna starfinu.
Eftir að upp komst um fjölda svika
Abagnale þurfti hann einungis að dúsa í
fangelsi í fimm ár. En þá fékk hann starf
hjá bandarísku alríkislögreglunni sem
ráðgjafi við rannsóknir sem vörðuðu svik.
Wilhelm Voigt
Árið 1906 útvegaði hinn þýski Wilhelm Voigt sér
búning prússnesks herforingja. Jafnvel þó að
búningurinn passaði Voigt illa tókst honum að láta
hann koma sér að góðum notum.
Hann heimsótti herskála í Berlín og sannfærði
tíu hermenn um að fylgja sér. Þeir fóru saman
í bæinn Köpenick og tóku ráðhúsið yfir. Hann
sagði hermönnunum að standa vörð um húsið og
stöðvaði allar skilaboðasendingar til Berlínar.
Síðan lét hann handtaka féhirði bæjarins og
sjálfan bæjarstjórann. Og hafði sjálfur á brott með
sér fjögur þúsund mörk. Hann skildi eftir nótu,
titlaða á fangelsisstjóra sem Voigt hafði kynnst er
hann sat inni.
Að lokum kom hann sér á brott, með því að
skipta yfir í venjuleg föt. Hann var handtekinn
vegna málsins tíu dögum síðar. Voigt hlaut viður
nefnið Kafteinninn af Köpenick.
Robert Ripley
Bandaríski þúsundþjalasmiðurinn LeRoy Robert
Ripley gaf lengi vel út tímaritið Ripley’s Believe It
or Not! sem innihélt fjölda sturlaðra „staðreynda“,
sem áttu það þó til að vera ekki sannleikanum
samkvæmar.
Margt sem finna mátti í blaðinu var satt, en
annað ósatt. Til að mynda var mikið fjallað um
ótrúleg fyrirbrigði í dýraríkinu. Maður með horn
á höfði, barn með eitt auga (eins og kýklópar í
grískri goðafræði), kona með tungu eins og gaffal,
fiskar sem klifra upp tré og kjúklingar með fjóra
fætur eru á meðal þeirra vera sem fjallað var um í
tímaritinu.
Ripley fékk viðurnefnið „mesti lygari heims“, en
þegar hann var spurður út í það svaraði hann: „Það
skiptir engu máli hvað ég segi. Þið trúið mér hvort
eð er ekki.“
Charles Dawson
Árið 1912 kynntu breski steingervingaáhuga
maðurinn Charles Dawson og samstarfsmaður
hans, jarðfræðingurinn Arthur Smith Woodward,
mikla vísindauppgötvun.
Þeir höfðu fundið höfuðkúpu sem þeir töldu
vera af týnda hlekknum á milli mannsins og apa í
malarnámu við þorpið Piltdown.
Piltdownmaðurinn reyndist þó vera settur
saman af Dawson, meðal annars úr höfuðkúpu
manneskju og tönnum úr órangútan. Það kom þó
ekki í ljós fyrr en árið 1953, rúmum fjórum ára
tugum eftir að félagarnir kynntu uppgötvunina.
Undanfarnar vikur hefur bandaríski þing-
maðurinn George Santos verið ansi áberandi
í fjölmiðlum vegna fjölda fjölbreyttra lyga.
Greint hefur verið frá því að ferilskrá hans
innihaldi ósannindi og þá hefur hann
verið gripinn glóðvolgur við að skrökva að
almenningi.
jonthor@frettabladid.is
Santos hefur til dæmis haldið því
fram að móðir hans hafi látið
lífið í árásinni á tvíburaturnana,
hann hafi rekið dýraskýli, að
amma hans hafi lifað af helför-
ina og hann segist sjálfur hafa
sloppið undan morðtilræði.
Ekki hefur tekist að færa
sönnur á þessar fullyrðingar.
Í tilefni af þessu ótrú-
lega máli tók Fréttablaðið
saman lista yfir nokkra
alræmdustu lygara sög-
unnar. n
Mestu lygarar
sögunnar
Bandaríski þingmað
urinn George Santos
hefur gert garðinn
frægan undanfarið
vegna fjölbreyttra
lyga sinna.
fréttablaðið/epa
28 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023
lAUgARDAgUR