Fréttablaðið - 11.02.2023, Side 55

Fréttablaðið - 11.02.2023, Side 55
Nissan Max-Out fram- tíðarsportbíllinn er með láréttu stýri og engum pedulum en ekki hefur verið gefið upp af hálfu Nissan hvað drífur bílinn áfram. Í fyrra seldust aðeins 32.506 Kia Rio bílar sem er fækkun um 9% frá 2021. J.D. Power er stofnun í Banda- ríkjunum sem mælir gæði bílamerkja og hversu oft þau þurfa á viðgerðum að halda. Stofnunin gaf í vikunni út tölfræði síðasta árs og þar var það Lexus-merkið sem tók aftur toppsætið. njall@frettabladid.is Hverju merki eru gefin stig fyrir vandamál á hvert hundrað farar- tækja. Vandamálin geta verið ýmiss konar, allt frá vandamálum með margmiðlunarskjá upp í bilanir á vélbúnaði. Vandamál með marg- miðlunarskjái var reyndar algeng- asta vandamálið og voru það vanda- mál tengd Apple CarPlay og Android Auto, raddstýringu, blátannarbún- aði og úreltum landakortum sem voru algengust. Eins og áður sagði var Lexus í fyrsta sæti yfir heildina með 133 vandamál á hverja 100 bíla. Fram- leiðendum er skipt í lúxusflokk og framleiðendur fjöldaframleiddra bíla, en í lúxusflokki komu Genesis, Cadillac og BMW næstir. Í f lokki fjöldaframleiddra bíla stóð Kia- merkið sig best með 152 stig, Buick í öðru sæti með 159, en á eftir komu Chevrolet, Mitsubishi og Toyota. Þau merki sem hækkuðu mest frá síðustu könnun voru Ram, Volvo og Nissan. Tesla fékk að taka þátt í fyrsta skipti þrátt fyrir að hafa ekki leyft J.D. Power að fá aðgang að neytendamálum í öllum fylkjum Bandaríkjanna. Fékk Tesla alls 242 stig og var frekar neðarlega á lista og talsvert fyrir neðan meðallag fram- leiðenda, sem er 186 stig. n Lexus tekur aftur fyrsta sætið í könnun J.D. Power Lexus er aftur komið í toppsæti áreiðanleikakönnunar J.D. Power. MYND/NJÁLL GUNNLAUGSSON Kia-merkið er með fæst vandamál í flokki fjölda- framleiddra bíla. njall@frettabladid.is Nissan hefur frumsýnt útlit nýs sportbíls sem kallast Max-Out og mun það nafn vera tilkomið vegna þess að bíllinn á að fullnýta kolefnis- lausan akstur til hins ýtrasta. Nissan hefur þó ekkert gefið upp um hvað drífur bílinn áfram en líklegast mun það vera fastkjarnarafhlaða. Hingað til hafa aðeins verið birtar tölvumyndir af bílnum en hér er hann kominn í föstu formi sem tveggja sæta opinn sportbíll. Athygli vekur ljósabúnaður í hjóla- búnaði og stórt loftinntakið að framan. Að aftan er stór ljósarönd með Nissan merkingu. Í innréttingu er breiður upplýsingaskjár yfir allt mælaborðið sem getur gert allt frá því að spila tölvuleiki upp í að skrá brautartíma. Bíllinn er með láréttu stýri og engir pedalar eru sjáan- legir, og því má jafnvel búast við að bíllinn hafi einhverja sjálfsaksturs- eiginleika. n Nissan Max-Out framtíðarsportbíllinn Hvort að Nissan Max-Out tilraunabíllinn nái í einhverju formi í framleiðslu er engan veginn víst enn þá. MYND/NISSAN njall@frettabladid.is Kia Rio mun fara af Evrópumarkaði áður en árið er úti og án þess að það komi bíll í staðinn fyrir hann. Er Kia Stonic ætlað að fylla upp í þann kaupendahóp sem hann skilur eftir sig. Kia Rio hefur verið framleiddur í Sohari í Suður-Kóreu og er á sinni fjórðu kynslóð. Alls hafa 148.000 Kia Rio verið afhentir kaupendum sínum frá 2001 þegar hann kom á markað. Sala á bílnum hefur minnk- að mikið á undanförnum þremur árum og aðeins seldust 32.506 Kia Rio árið 2022 sem er 9% fækkun frá 2021. Sá bíll sem keppir helst við Kia Rio er Opel Corsa sem seldist í 164.119 eintökum í fyrra. Kia Rio er þannig einn af mörgum smábílum sem hafa fallið fyrir hendi smærri jepplinga frá sama framleiðanda. n Kia Rio af Evrópukortinu Kia Rio smábíllinn verður ekki lengur seldur í Evrópu eftir 2023. njall@frettabladid.is Geely sækir nú í sig veðrið sem aldrei fyrr og von er á fjölda nýrra bíla frá fyrirtækinu. Undirvagnar frá Geely munu verða undir mörgum nýjum bílum frá Volvo, Smart, Zeekr og svo Polestar. Ef marka má nýjustu njósna- myndir af Polestar 4 raf bílnum má telja líklegt að bíllinn verðir frumsýndur á þessu ári. Eins og nafnið bendir til er þetta fjórði bíll Polestar-merkisins en á markaði eru Polestar 2 og Polestar 3 sem var frumsýndur nýlega. Polestar 4 verður jepplingur í millistærðar- flokki sem mun keppa við bíla eins og Tesla Model Y og Mercedes-Benz EQC. Polestar 4 er fyrsti bíll merkisins til að koma á PMA-undirvagninum, sem er svipaður undirvagn og SEA- undirvagninn frá Geely. Það þýðir að um 800 volta rafkerfi verður að ræða og rafmótora sem geta skilað allt að 637 hestöflum. Myndirnar sýna vel útlit bílsins og eins og sjá má sækir hann mikið af útliti sínu til Polestar 2 og 3. Bíllinn er lægri en Polestar 3 og eins og forstjóri Polestar, Thomas Ingenlath, orðaði það: „faðmar“ hann meira götuna. Þaklínan er með meira kúpulagi en innanrýmið verður ekki langt frá því sem það er í Polestar 3. Loftflæði mun skipta meira máli í Polestar 4 til að auka drægi bílsins. Þess vegna er bíllinn með innfelld hurðarhand- föng til að mynda. Ingenlath hefur einnig látið hafa eftir sér að bíllinn myndi byrja í kringum 7 milljónir króna í verði svo að hann verður aðeins dýrari en Polestar 2. n Ný njósnamynd af Polestar 4 Þrátt fyrir mikinn felulit má sjá að framendinn er líkur öðrum Polestar-bílum með litlu grilli neðarlega á bílnum.  MYND/AUTOCAR Tegund Stig Lexus 133 Genesis 144 Kia 152 Buick 159 Chevrolet 162 Mitsubishi 167 Toyota 168 Hyundai 170 Mini 170 Nissan 170 Dodge 172 Cadillac 173 Mazda 174 GMC 175 BMW 184 Meðaltal 186 Tegund Stig Ram 189 Jeep 196 Honda 205 Infiniti 205 Porsche 208 Acura 211 Subaru 214 Volvo 215 Volkswagen 216 Chrysler 226 Jaguar 229 Mercedes-Benz 240 Tesla 242 Ford 249 Audi 252 Lincoln 259 Land Rover 273 FRéttabLaðið bílar 3511. FEbRúaR 2023 laUGarDaGUr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.