Fréttablaðið - 11.02.2023, Qupperneq 56
Ewa Marcinek og Pálína Jóns-
dóttir byggja verkið Djöfulsins
snillingur á sameiginlegri
reynslu af því að fara í gegnum
umsóknarkerfi sem útlending-
ur í nýju landi, og skáldskap.
Reykjavík Ensemble er alþjóðlegur
leikhópur sem var stofnaður 2019
yfir kaffibolla í Iðnó af Pálínu Jóns-
dóttur og Ewu Marcinek. Reykjavík-
urborg útnefndi Reykjavík Ensemble
Listhóp Reykjavíkur árið 2020 og
nýlega gerði borgin þriggja ára sam-
starfssamning við þau.
Pálína: „Þetta er fyrsti langtíma-
samningurinn sem við fáum til þess
að standa undir starfsemi Heims-
leikhússins sem er með leikhópinn
Reykjavík Ensemble International
Theatre Company. Þetta er leikhús
sem býr til pláss fyrir allar þjóðir og
tungur sem fela í sér mikla hæfileika
og á leiksviðinu.“
Þær Pálína og Ewa lýsa Reykjavík
Ensemble sem fyrsta og eina sjálf-
stætt starfandi heimsleikhúsinu á
Íslandi en helsta markmið þeirra er
að búa til virkan atvinnuvettvang
innan sviðslista fyrir fjölþjóðlega og
íslenska listamenn.
Ewa: „Við byrjuðum með ekk-
ert á milli handanna fyrir rúmum
þremur árum. Fyrsti stóri áfanginn
kom 2020 þegar við vorum útnefnd
Listhópur Reykjavíkurborgar árið
2020 og það hjálpaði okkur mikið
eftir að hafa aðeins verið starfandi í
nokkra mánuði. Að fá þennan sam-
starfssamning núna er mikil viður-
kenning sem stuðlar að sjálfbærni og
stöðugleika okkar.“
Eitthvað alveg nýtt
Reykjavík Ensemble hefur hingað til
sett upp þrjú sviðsverk frá stofnun
2019, þar á meðal Opening Cere-
mony og Ísland pólerað, byggt á bók
Ewu.
Pálína: „Þetta var eitthvað alveg
nýtt sem við komum með inn í
íslensku sviðslistasenuna, það er
að segja að opna gáttina fyrir erlent
sviðslistafólk til faglegrar þátt-
töku, án þess að tala óaðfinnanlega
íslensku. Ísland hefur breyst mjög
mikið og nú er hér sest að fjölbreytt
sviðslistafólk og listafólk almennt
og það var bara klárlega skortur á
sýnileika og kynningu á þessu hæfi-
leikafólki og tækifærum fyrir það
til að vera í samstarfi við íslenskt
sviðslistafólk og koma fyrir sjónir
áhorfenda.“
Spurðar um hvað felist í þriggja
ára samningnum við Reykjavíkur-
borg segir Ewa um vera að ræða fjár-
hagsstyrk til þriggja ára sem styðji
að hluta til starfsemi Reykjavík
Ensemble.
Ewa: „Að gera leikhús er kostn-
aðarsamt og við reiðum okkur á
styrki til að gera verkefni okkar að
veruleika og borga listamönnunum.
Okkur tókst að fjármagna þetta
fjórða sviðsverk okkar með styrk
frá Sviðslistasjóði og listamanna-
launum. Það hefur aftur á móti
reynst erfitt að fjármagna verkefni
okkar einvörðungu á Íslandi og
á heildina litið er meirihluti þess
fjármagns, sem gerir okkur kleift að
viðhalda starfseminni, fenginn úr
erlendum sjóðum. Þessi stuðningur
frá Reykjavíkurborg er því afar kær-
kominn.“
Stöndum á tímamótum
Ewa Marcinek er pólsk að uppruna
en hefur búið á Íslandi í tæpan ára-
tug. Hún er einnig rithöfundur og gaf
í fyrra út ljóðabókina Ísland pólerað
sem samnefnd leiksýning byggði á
og fjallar um upplifun ungrar pólsk-
rar konu af því að flytja til Íslands.
Finnst þér íslenski listheimurinn
vera að opnast meira fyrir ólíkum
menningarstraumum?
Ewa: „Mér finnst hafa orðið mikil
breyting og við stöndum á ákveðn-
um tímamótum þar sem svo margt
er að gerast. Við vitum hvað er að
gerast í bókmenntaheiminum en í
fyrra voru nokkrar bækur gefnar út
eftir rithöfunda af erlendum upp-
runa.
Við Pálína vorum með eitt fyrsta
framtakið til að ná til erlends sviðs-
listafólks en síðan hafa orðið til fleiri
sviðslistahópar á borð við Pólís og
R.E.C. Arts og það eru mun f leiri
núna sem eru að styðja við jaðar-
setta minnihlutahópa sem er frá-
bært.“
Manneskja með hæfileika
Ný ja st a lei k verk Reyk jav í k
Ensemble, Djöfulsins snillingur,
verðu frumsýnt í Tjarnarbíói í lok
mars. Verkið fjallar um Urielu, unga
listakonu sem flytur til Íslands og
sækist eftir að fara í áheyrnarprufu
hjá Þjóðsirkusnum. Í stað þess að
komast inn í listaelítuna lendir hún
í erfiðri baráttu við kerfið.
Pálína: „Orðatiltækið „djöfulsins
snillingur“ er bæði húmor og hrós og
stundum líka notað í háði, nokkuð
sem við segjum stundum hvert við
annað þegar eitthvað er sniðuglega
leyst, sem vísar í að hafa hæfileika.
Manneskja með hæfileika getur líka
virst svolítið hættuleg, sérstaklega
ef við þekkjum hana ekki, því hún
getur afhjúpað okkur og samfélag
okkar á nýjan, óvæntan og stundum
óþægilegan hátt. Það er einmitt eitt
meginhlutverk listarinnar.“
Pálína bætir því við að söguþráð-
urinn byggi á sameiginlegri upp-
lifun meðlima Reykjavík Ensemble
af því að fara í gegnum umsóknar-
kerfi sem útlendingur í nýju landi.
„Ég hef verið innflytjandi í Banda-
ríkjunum og þau sem vinna með
mér hér hafa reynslu af samskipt-
um sínum við Útlendingastofnun
– stofnun sem er í kastljósinu um
þessar mundir. Við erum að spyrða
saman bæði það að vera útlendingur
en líka í ofanálag það að vera lista-
maður. Það er svona tvöföld áskor-
un, tvöfalt drama,“ segir hún.
Kafkaísk svört kómedía
Ewa, er þetta eitthvað sem þú hefur
upplifað sjálf hér á Íslandi?
Ewa: „Klárlega. Þetta hefur verið
langt ferðalag og margt ótrúlegt
sem gerðist á leiðinni. Eins og þegar
ég hitti Pálínu í kaffi árið 2019 og
sama daginn stofnuðum við leik-
félag. Ég hef verið mjög heppin og
það sem við erum líka að reyna
að gera með þessu leikfélagi er að
búa til vettvang til að gefa öðrum
tækifæri og líka að sviðsetja okkar
sögur svo aðrir innflytjendur geti
komið á sýningar og fyllst inn-
blæstri.“
Verkinu Djöfulsins snillingur er
lýst sem svartri kómedíu og sækir
verkið innblástur til Gleðileiksins
guðdómlega eftir Dante og Gesta-
boðs Babettu eftir Karen Blixen.
Pálína : „Við sameinuðumst í
gegnum þá hugmynd að skrifa
kaf kaíska svarta kómedíu út frá
sjónarhorni manneskju sem mætir
fáránlegum aðstæðum. Söguhetjan
kemur hingað með þá köllun að
starfa sem listamaður og er með
nokkuð skýra mynd af því hvað
hún vill leggja af mörkum í þessu
landi en upplifir það að f lækjast
í geðþóttafullu, vélrænu sjálfsaf-
greiðslukerfi valdsins sem metur
hvort hún er þess verðug að hljóta
landvistar- og atvinnuleyfi.“
Fimm þjóðerni
Stór alþjóðlegur hópur listamanna
tekur þátt í verkinu. Pálína leik-
stýrir en þær Ewa skrifuðu hand-
ritið saman. Þá semur hinn þekkti
ástralsk-íslenski tónlistarmaður
Ben Frost tónlist og hljóðverk.
Pálína: „Aðalleikkonan okkar
heitir Jördis Richter og kemur frá
Þýskalandi, svo erum við með
einn leikara frá Írlandi sem heitir
Paul Gibson, írsk-enska leikkonu
sem heitir Heidi Bowes, íslenskan
leikara sem heitir Snorri Engil-
bertsson og spánskan leikara sem
heitir Jordic Mist. Leikritið fer fram
á nokkrum tungumálum, er fyrst og
fremst borið upp á enskri tungu en
líka íslenskri og þýskri.“ n
Stofnuðu alþjóðlegan leikhóp yfir kaffibolla
Sviðslista-
konurnar Pálína
Jónsdóttir og
Ewa Marcinek
segja Reykjavík
Ensemble vera
fyrsta og eina
sjálfstætt starf-
andi heimsleik-
húsið á Íslandi.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Þetta var eitthvað alveg
nýtt sem við komum
með inn í íslensku
sviðslistasenuna, það
er að segja að opna
gáttina fyrir erlent
sviðslistafólk.
Pálína Jónsdóttir
Djöfulsins snill-
ingur verður
frumsýnt í
Tjarnarbíói í lok
mars.
mynd/aðSend
36 menning FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023
LAUgARDAgUR