Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 57

Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 57
Í Hringrás fá áhorfendur að sjá hrífandi myndbandsinn- setningu af líkama Þyríar Huldar á með- göngu á meðan hún dansar sjálf á sviðinu. Mynd/Saga Sig  Dans Hringrás Íslenski dansflokkurinn Höfundur og dansari: Þyrí Huld Árnadóttir Tónskáld: Urður Hákonardóttir Búninga- og leikmyndahönnun: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir Myndbandsinnsetning: Saga Sigurðardóttir Sesselja G. Magnúsdóttir Í dansverkinu Hringrás sem frum- sýnt var á Litla sviði Borgarleikhúss- ins 3. febrúar 2023 skoðar Þyrí Huld Árnadóttir hvað gerist við líkama kvenna við meðgöngu og fæðingu. Í verkinu fá áhorfendur að sjá hríf- andi myndbandsinnsetningu af líkama hennar á meðgöngunni og með börnunum sínum eftir fæðingu en hún dansar sjálf á sviðinu, aftur komin í sitt fyrra form sem dansari. Hugmyndina að verkinu má rekja allt að tvö ár aftur í tímann þegar Þyrí, þá komin nálægt 30 vikur á leið með sitt annað barn, gerði stutt myndbandsverk ásamt Sögu Sigurðardóttur ljósmyndara þar sem líkami hennar og hreyfingar voru í fyrirrúmi. Þær héldu síðan áfram að safna myndefni alveg þar til hún var komin á steypirinn og eftir fæðinguna, þá líka með henni og börnunum tveimur. Eigin líkami, eigin hreyfingar Verkið Hringrás er óður til kven- líkamans og hvernig hann aðlagast og bregst við því að bera barn en ekki síður þá áskorun sem konur standa frammi fyrir þegar líkami þeirra breytist í það að vera hýsill fyrir annan einstakling en ekki þær sjálfar. Þyrí sem hefur einstakt vald á líkama sínum sem skilar sér í áhugaverðum og persónulegum dansstíl leyfir styrkleikum sínum sem dansara að njóta sín og hæfir hreyfiforði hennar sérlega vel við- fangsefni verksins. Það var á millistríðsárunum að nýr stíll í dansi tók að þróast bæði í Bandaríkjunum og Þýskalandi, dansstíll sem seinna var kallaður módern dans. Hann lagði áherslu á að hver dansari yrði að vinna með „eigin líkama og eigin hreyfingar“ í danssköpun sinni og sækja þær hreyfingar hið innra. Tjáningin var grundvallaratriði og markmið sýninga var að hreyfa við áhorf- endum. Þessi þá nýja nálgun var sett fram sem gagnrýni á ballettinn sem byggði á „skilgreindum líkams- ímyndum og skilgreindum sporum“ og hafði að markmiði að heilla áhorfandann með ofurtækni og mikilfenglegri umgjörð. Nú skyldi dansinn takast á við málefni líðandi stundar og sammannleg viðfangs- efni í stað þess að setja ævintýri til af þreyingu á svið. Ævintýra- prinsessur og dísir voru ekki lengur túlkaðar á sviðinu heldur raunveru- legar konur og viðfangsefni þeirra. En áfram voru það þó aðeins ungir vel þjálfaðir dansarar sem dönsuðu á sviðinu. Falleg og djörf ákvörðun Það er ekki langt síðan ófrískar konur huldu ástand sitt. Útþaninn kviður og þrútin brjóst þóttu ekki aðlaðandi hvað þá á sviði. Ákvörðun Þyríar að setja kvenlíkamann í sinni viðkvæmustu mynd á svið er falleg og djörf. Þungaður líkami hennar birtist reyndar í mynd en ekki í raunheimum en sú staðreynd að þungun er ástand sem hefur sinn tíma og ekki er hægt að stöðva gerir annað erfitt viðureignar. Umgjörð verksins, búningur úr fínlegu efni í húðlit og myndbandsinnsetningin með nánast nakinn líkamann, form hans og mýkt hæfði efninu líka vel. Það er ekki síður fallegt hvernig hún hyllir móðurina sem eins og Fönix rís aftur upp eftir barnsburð og verður jafnvel enn sterkari en áður. Það er enn viðkvæmt fyrir marga að gefa sviðið þeim sem ekki passa inn í hefðbundna ímynd dansar- ans þó að innan dansheimsins hér á landi hafi á undanförnum árum verið unnið að því að skilgreina og þróa upp á nýtt hverjir hafa rödd og líkama til að tjá sig í hreyfingu á sviði danslistarinnar. Verkið Hring- rás er áhugavert innlegg í þessa umræðu sem er aðeins rétt að byrja. Fall er fararheill Frumsýning verksins gekk þó ekki vandræðalaust fyrir sig því í tví- gang varð að stöðva sýninguna vegna þess að tæknin virkaði ekki, eitthvað sem á ekki að gerast í stóru atvinnuleikhúsi. Í fyrra skiptið hafði Þyrí dansað nokkra stund áður en hún stoppaði og tekið var um 10 mínútna hlé vegna þess að tónlistin lét á sér standa. Hreyfing- arnar virkuðu algjörlega einar og sér þó að heildarupplifunin yrði enn sterkari þegar tónlist Urðar Hákonardóttir var einnig til staðar og f læddi ljúf lega með. Seinna skiptið sem varð aðeins augnabliks hlé gáfu áhorfendur sitt í að skapa stemmingu í salnum með Þyrí en þar kom ekki síður vel í ljós hvað hún er sterkur f lytjandi að geta dottið inn og út úr dansinum án sýnilegra vandkvæða. n niðurstaða: Hringrás er heillandi verk um undur kven- líkamans og það magnaða ferli að verða móðir. Allt yfirbragð verksins er látlaust en á sama tíma sterkt. Óður til móður og líkama hennar Sveinn Ólafur og Sara Dögg halda áhorfendum á tánum en ná ekki saman þannig að smellur í. Mynd/aðSend Leikhús Venus í feldi eftir david ives Tjarnarbíó í samvinnu við edda Production Leikarar: Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson Þýðing: Stefán Már Magnússon Leikstjórn: Edda Björg Eyjólfsdóttir Leikmynd: Brynja Björnsdóttir Búningar: María Ólafsdóttir Tónlist og hljóðmynd: Halldór Eldjárn Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson og Jóhann Friðrik Ágústsson aðstoð við danshreyfingar: Sveinbjörg Þórhallsdóttir dramatúrg og aðstoð við leikstjórn: Hafliði Arngrímsson Sigríður Jónsdóttir Við erum stödd í leikhúsi. Prufur standa yfir en ganga ekki vel. Tómas, leikskáld og leikstjóri, er á leiðinni heim í rigningunni. Allt í einu birtist leikkona eins og elding inni í leik- húsinu. Hún heitir Vanda, alveg eins og aðalpersónan í nýja leikritinu, aðlögun á skáldsögunni Venus í feldi eftir Leopold von Sacher-Masoch en hugtakið masókismi dregur nafn sitt frá honum. Hvalreki fyrir leikhúsið Venus í feldi var frumsýnt í Tjarnar- bíó í janúarlok og verður að teljast hvalreki fyrir íslenskt leikhús. Leik- rit David Ives hafa örsjaldan ratað á leiksvið landsins, sem er synd því verk hans eru iðulega forvitnileg, fyndin og skarplega ígrunduð. Þar má sérstaklega benda á All in the Timing, safn örleikrita sem komu honum á kortið. Draga má þó í efa skynsemi hans að selja kvikmynda- réttinn af Venus í feldi til leikstjór- ans Romans Polanski. Í verkinu leikur hann sér að leikhúsforminu, frásagnarhefðum og regluverki sam- félagsins. Raunveruleiki og fantasía blandast saman, persónur skipta stöðugt um ham og áhorfendur vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Karl og kona. Leikstjóri og leik- kona. Tómas og Vanda. Severin og Vanda. Sveinn Ólafur og Sara Dögg. Þrátt fyrir að persónur verksins séu einungis tvær eru mögulegar sam- setningar nánast óteljandi. Mikið mæðir á leikurunum tveimur sem þurfa að feta mjög f lókinn stíg á milli heima og tilfinninga. Fram- vindan er reglulega brotin upp af karakterunum, sem togast á um völd og samfélagslega stöðu. Sveinn Ólafur og Sara Dögg halda áhorf- endum á tánum, lifandi í túlkun sinni en ná ekki saman þannig að smellur í. Köld upplifun Listræna teymið vinnur lipurt saman til að styðja við textann og þá er kannski markverðust sú ákvörðun að staðsetja áhorfendur á sviðinu sjálfu þannig að horft er út í sal. Áhorfendur eru dregnir inn í leikrænu fantasíuna en alltaf meðvituð um að vera í leikhúsi. Leikstjórinn Edda Björg Eyjólfs- dóttir hefur ágætis tök á textanum og skilar verkinu vel upp á leiksvið en kryddið vantar, x-ið í Madame X og yfirnáttúrulegu tengslin. Mögu- lega má skrifa þessa fjarlægð að einhverju leyti á Ives, hann er ætíð ofurmeðvitaður um form og bók- menntafræðilegt innihald frekar en að skrifa um persónur af holdi og blóði. Sýningatími er knappur og eru áhorfendur hvattir til að kaupa miða. Það er ekki á hverjum degi sem að sjálfstæða senan býður upp á fersk erlend leikrit, eitthvað sem fleiri mættu huga að. Hver hefur að lokum valdið? Sá sem kýs refsingu eða sá sem refsar? Hvernig stjórna áföll fortíðarinnar ákvörðunum framtíðar? Venus í feldi fjallar um allt þetta og meira. En þrátt fyrir eldheit efnistök er Venus í feldi fremur köld upplifun, handverkið er of sýnilegt á kostnað persónulegrar tengingar. n niðurstaða: Laglega fram- kvæmd og spennandi sýning sem skortir ástríðu. Valdið og þráin Verkið Hringrás er óður til kvenlíkamans og hvernig hann aðlagast og bregst við því að bera barn. Venus í feldi var frum- sýnt í Tjarnarbíó í janúarlok og verður að teljast hvalreki fyrir íslenskt leikhús. Fréttablaðið menning 3711. Febrúar 2023 LAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.