Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Logi hefur í mörg horn að líta.
Hann hefur rekið fyrirtækið
Fjarform í mörg ár þar sem hann
þjálfar fólk á öllum aldri, bæði
byrjendur og lengra komna.
Hann hefur verið iðinn við að
halda fyrirlestra og þá er hann
einn helsti handboltaspekingur
landsins og hefur í áraraðir fjallað
á RÚV um íslenska landsliðið á
stórmótum.
„Ég er búinn að vera með Fjar-
form í tólf ár á sama stað í Hafnar-
firði. Ég er að þjálfa fólk meira og
minna allt árið. Þetta er íþrótta-
fólk, kyrrsetufólk, Ólympíufarar,
unglingar, eldri borgarar og bara
öll f lóran. Það kemur til mín alls
konar fólk sem vill bæta lífsstíl
sinn og fá ráðgjöf um hann. Ég set
upp æfingar og matarprógramm
fyrir fólk og fylgi því eftir með
mælingum og utanumhaldi. Það
er búið að vera brjálað að gera
í þessum bransa. Vissulega dró
aðeins úr þessu í Covid en núna
er þetta komið á fulla ferð aftur,“
segir Logi en að hans sögn hafa
mörg þúsund manns nýtt sér
þjónustu Fjarforms.
Logi hefur í mörg ár haldið fyrir-
lestra og segir að fátt sé skemmti-
legra en að halda þá.
„Ég fæ mikið út úr því að halda
þessa fyrirlestra. Ég fer í fyrir-
tæki, til íþróttafélaga, í skóla og á
fleiri staði. Ég hef keyrt á nokkra
fyrirlestra og sá vinsælasti er með
yfirskriftina: „Það fæðist enginn
atvinnumaður.“ Þar fer ég yfir leið-
ina í það að verða atvinnumaður
og er svolítið framhald af bókinni
10 10 10 sem ég gaf út hérna um
árið. Ég hef haldið 2-4 fyrirlestra
á mánuði, bæði hér í bænum og
úti á landi. Þetta eru líka heilsu-
fyrirlestrar sem eru meira fyrir
fyrirtækin. Ég hreinlega elska að
gera þetta og það skemmir heldur
ekki fyrir að mér leiðist ekki að
fá athyglina. Maður nýtir hana
á þessum vettvangi og ef maður
getur gefið eitthvað af sér þá er það
frábært,“ segir Logi.
Ögrar fólki með glingrinu
Logi lék sem atvinnumaður með
þýska liðinu Lemgo frá 2004-
2010 og hann spilaði 97 leiki með
íslenska landsliðinu og skoraði
í þeim 289 mörk. Hann vann til
silfurverðlauna með landsliðinu á
Ólympíuleikunum í Peking 2008
og til bronsverðlauna á Evrópu-
mótinu í Austurríki 2010 en lagði
landsliðsskóna á hilluna 2011.
Þeir sem séð hafa Loga á
skjánum hafa tekið eftir því að
honum leiðist ekki að klæða sig
upp og skarta alls konar glingri.
„Sérstaklega þegar ég kem í sjón-
varpið og ekki síst þegar stórmótin
eru í gangi og 70% þjóðarinnar eru
að horfa, þá þarf maður að vera
svolítið flottur. Fólk hefur ótrú-
legar skoðanir á því hvernig maður
klæðir sig og póstunum rignir inn.
Til dæmis voru þeir margir sem
vildu ekki sjá rauða sólann undir
skónum lengur, sem ég gerði í að
láta sjást. Þegar ég mæti með gull-
gleraugun og gullhringana í settið
þá er ég svolítið að ögra fólki en ég
vil líka vera öðruvísi. Þetta er bara
ég. Ég fæ helling út úr þessu.“
Komast í besta form lífsins
Þegar Logi er spurður út í eigin
hreyfingu og heilsurækt segir
hann: „Ég ætla að komast í besta
form lífs míns á þessu ári og það
fertugur að aldri. Ég ætla að taka
heilsuna vel í gegn,“ segir Logi, sem
fer gjarnan upp í Kaplakrika til að
sækja orku. Kaplakriki var lengi
vel hans annað heimili en Logi er
fæddur og uppalinn í FH og karl
faðir hans, goðsögnin Geir Hall-
steinsson, vann í fjöldamörg ár
sem forstöðumaður í Kaplakrika
sem Logi naut góðs af.
„Ég gríp í lóðin af og til. Hand-
boltaferillinn fór ekkert mjög illa
með mig og til að mynda fór ég
í september á síðasta ári og tók
þátt í „All Star“-leik í Þýskalandi
sem gekk bara vel. Skrokkurinn
er ekkert illa farinn enda var ég
frekar stutt í atvinnumennskunni.
Ég er í góðu líkamlegu formi og nú
þegar maður er orðinn fertugur þá
bætast göngutúrar við. Ég ætla líka
að sigra nokkur fjöll á þessu ári og
stefnan er að labba Laugaveginn.“
Bankar ástin upp á?
Logi á tvö börn, Vilberg og Júlíu,
með Ingibjörgu Elvu Vilbergs-
dóttur en Logi og Ingibjörg hættu
saman eftir tíu ára sambúð árið
2019.
„Lífið er yndislegt og það er
gaman að vera til. Hvert tímabil í
lífinu hefur sinn sjarma og aldrei
að vita nema að ástin banki upp á
2023. Ég hef góða tilfinningu fyrir
því að þetta verði árið sem þetta
gerist,“ segir Logi, sem segist hafa
búsetu á þremur stöðum.
„Ég bý í Njarðvík og er með
krakkana hjá mér aðra hverja viku.
Ég er líka með íbúð í bænum og svo
geri ég mikið af því að fara vestur
í Grundarfjörð. Ég reyni að vera í
húsinu í Grundarfirði eins mikið
og ég get. Grundarfjörður er æðis-
legur staður og er falinn demantur
að mínu mati. Ég keypti húsið
upphaflega sem sumarhús en ég
er að fara í það yfir allt árið. Ég get
unnið þar og mér líður ákaflega
vel á þessum stað. Ég er enn þá að
gera húsið upp og þegar því lýkur
verður þetta alvöru villa.“
Það er ekki hægt að sleppa Loga
án þess að spyrja hann aðeins út
í landsliðið nú þegar rykið hefur
sest eftir HM í síðasta mánuði. Logi
var mjög bjartsýnn og taldi liðið
vera nógu gott til að vinna heims-
meistaratitilinn. Niðurstaðan varð
hins vegar 12. sæti. Í janúar á næsta
ári fer EM fram í Þýskalandi og
þar verður íslenska landsliðið nær
örugglega í eldlínunni. Logi hefur
verið einn sérfræðinga á RÚV mörg
undanfarin ár.
Síðasta stórmótið á RÚV?
„Ég er ekki frá því að þetta hafi
verið síðasta stórmót mitt í sjón-
varpinu. Við verðum með frábært
lið í Þýskalandi og mig langar að
upplifa það mót sem áhorfandi.
Mig er búið að dauðlanga til að
fara á þessi stórmót ár eftir ár en
frá árinu 2012 er ég búinn að vera
á RÚV og er búinn að fjalla um
síðustu tíu stórmót hjá landsliðinu.
Það tekur á og maður er hálf
bensínlaus nokkrar vikur á eftir. Ég
man eftir heimsmeistaramótinu
sem ég tók þátt í með landsliðinu
í Þýskalandi 2007. Það er flottasta
mót sem ég hef farið á. Umgjörðin
var rosaleg og fólk hafði aldrei
séð annað eins. Stemningin var
mögnuð og allar hallir voru fullar.
Þeir sem fóru á þetta mót hafa
beðið eftir því að fara aftur á mót
í Þýskalandi og eitt er víst að það
verður boðið upp á stórveislu þar á
næsta ári.“ n
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Logi við skrif-
borðið sitt hjá
fyrirtækinu Fjar-
formi sem hann
hefur rekið í
tólf ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Logi flottur í tauinu í útsendingu í HM-stofunni á RÚV. MYND/AÐSEND
Logi ásamt börnunum sínum, Júlíu og Vilberg. MYND/AÐSEND
Lífið er yndislegt
og það er gaman að
vera til. Hvert tímabil í
lífinu hefur sinn sjarma
og aldrei að vita nema
ástin banki upp á 2023.
Logi Geirsson
2 kynningarblað A L LT 16. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR