Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 30
Sú lífsreynsla sem fólk
býr að á þessum aldri
er algert gull inn í
sköpunarferlið.
Sara Óskarsson
„Ég hef ótrúlega oft heyrt fólk,
sérstaklega konur, harma það
að kunna hvorki að teikna né
mála,“ segir listakonan Sara
Óskarsson, sem ákvað að
bregðast við með ókeypis net-
námskeiði fyrir konur, 40 ára
og eldri. Innblásturinn fékk
hún ekki síst frá ömmu sinni
sem hélt sína fyrstu einka-
sýningu 83 ára gömul.
toti@frettabladid.is
„Þetta byrjar vel og það eru um
50 konur búnar að skrá sig á nám-
skeiðið og enn eru nokkrir dagar
eftir þannig að ég vonast til að sem
flestar skrái sig,“ segir listakonan
Sara Óskarsson um netnámskeið
sitt í listmálun sem ætlað er fer-
tugum konum og eldri og hefst á
mánudaginn.
Sara segir þessi miklu viðbrögð
koma henni ánægjulega á óvart
þótt hún hafi áður verið búin að
kanna jarðveginn og greina mikla
en niðurbælda tjáningarþörf hjá
fjölda fólks.
Hún segir ótrúlegan fjölda sýn-
ingargesta hennar og fólk sem hefur
heimsótt hana í vinnustofuna og
galleríið hafa kvartað yfir því að
kunna hvorki að teikna né mála.
Bara best að byrja
„Sérstaklega konur sem segjast
langa svo mikið til að mála. Þær þori
jafnvel ekki að byrja eftir að hafa
hætt að mála og teikna sem börn,“
segir Sara og segir þann misskilning
mjög útbreiddan að nauðsynlegt sé
að læra einhvern sérstakan grunn
áður en hægt sé að byrja að mála.
„Og svo finnst mér, að mörgu leyti
og með fullri virðingu, sú kennsla
sem fólki stendur til boða svo leiðin-
leg,“ segir Sara og hlær. „Þetta getur
hentað sumum en fyrir aðra er þetta
nóg til að drepa alla sköpunargleði.
Að sitja saman í hóp og teikna sama
boltann og skyggja hann.
Ef fólk hefur áhuga og þörf til þess
að skapa vil ég bara að það byrji.
Það er svo mikilvægt að byrja bara
og láta á þetta reyna,“ heldur Sara
áfram og bætir við að þegar fólk sé
komið í gang geti síðan vel hentað
að læra tæknileg atriði betur.
Óttinn við að mistakast
Áður en Sara byrjaði á þessu verk-
efni sendi hún út spurningalista og
fékk grun sinn um að víða leyndust
niðurbældir listmálarar staðfestan.
„Já, það virðist vera töluvert af fólki
sem finnur þessa tjáningarþörf og
ég byrja allavega á konunum og
svo sjáum við hvað ég geri í fram-
tíðinni,“ segir hún og hlær.
Sara segir svörin sem hún fékk
mörg hafa verið á þá leið sem hana
grunaði. Bara enn áhrifaríkari. „Þar
kom fram að það voru hlutir eins
og athugasemdir frá kennurum
eða ástvini sem urðu til þess að fólk
hafi, þrátt fyrir þörfina, hætt að
skapa. Og þessi ótti við að mistak-
ast. Að kunna ekki, geta ekki,“ segir
Sara um skortinn á sjálfstrausti sem
margir strandi á.
En af hverju ókeypis? Hefði ekki
verið upplagt að krækja í smá pen-
ing?
„Ég ætla að byrja þetta svona,“
segir Sara og hlær. „Vegna þess að ég
er að gera þetta í fyrsta sinn, kanna
jarðveginn fyrir þetta og að læra að
setja upp svona netnámskeið. Ég fer
svolítið blint út í þetta og er svolítið
að læra á meðan ég held þetta nám-
skeið.“
Aldrei of seint
Sara segist upphaflega hafa ætlað að
vera með námskeiðið fyrir konur,
50 ára og eldri, sem væru kannski
komnar á þann stað í lífinu þar sem
þær ættu rýmri tíma. „Og væru þá
ekki með þessa afsökun um að þær
hefðu ekki tíma til þess að gera
þetta,“ bætir hún við og segist geta
haldið heilan fyrirlestur um að hún
taki þessa afsökun hvort eð er ekki
gilda. „Maður hefur tíma fyrir það
sem maður hefur áhuga á.“
Hún ákvað síðan að víkka ald-
urshópinn aðeins þar sem hún
hafi orðið vör við mikinn áhuga
hjá konum upp úr fertugu. „Það er
líka þessi misskilningur hjá fólki að
halda að þau séu búin að missa af
einhverri lest. Það er af og frá því sú
lífsreynsla sem fólk býr að á þessum
aldri er algert gull inn í sköpunar-
ferlið ef fólk er með þörfina.“
Innblástur frá ömmu
Sara nefnir síðan ömmu sína, Elísa-
betu Gunnlaugsdóttur, til sögunnar.
Bæði sem gott dæmi um að lestin fer
aldrei og ekki síður sem helsta hvat-
ann að því að hún ákvað að bjóða
upp á námskeiðið.
„Ég náttúrlega fór í listaháskóla og
útskrifast og allt það og amma kom
í útskriftina og svo byrjaði hún að
sýna mér málverk sem hún málaði
þegar hún var sextán, sautján ára.
Bara alger meistaraverk. Alveg ótrú-
lega flott.
Hún byrjaði síðan aftur að mála
þegar hún var eitthvað um 79 ára
og þegar hún var 83 ára hjálpaði
ég henni að setja upp hennar eigin
einkasýningu. Ég hugsa mikið um
að hún hefði getað orðið alveg frá-
bær málari ef hún hefði fengið tæki-
færið sem ég fékk,“ segir Sara. „Og
það er líka svona innblásturinn að
baki því að ég er að gera þetta.“ n
Sköpunarþörf kvenna á
besta aldri leyst úr læðingi
Listakonan Sara Óskarsson fann þörf fólks til að gefa tilfinningum sínum lausan tauminn í myndlist og byrjar á því að
bregðast við með netnámskeiði fyrir konur, 40 ára og eldri. Fréttablaðið/Ernir
námskeiðið hefst á mánudaginn
og stendur í fjórar vikur þannig
að enn er tími til að skrá sig á
netinu eða með því að skanna
Qr-kóðann.
22 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 16. FeBRúAR 2023
fiMMTUDAGUR
MANNAMÁL
FIMMTUDAGA KL. 19.00
OG AFTUR KL. 21.00
Persónulegur viðtalsþáttur þar
sem áhugaverðir og jafnvel
þjóðkunnir Íslendingar segja frá
lífi sínu og starfi á opinskáan og
hispurslausan hátt. Stjórnandi
þáttarins er Sigmundur Ernir
Rúnarsson.