Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2023, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 16.02.2023, Qupperneq 32
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar bakþankar | Tilkoma gervigreindar hefur gjör- breytt lífi okkar, vinnu og sam- skiptum. Einn mest spennandi angi þessarar tækni er geta gervi- greindar til að skrifa texta. Það er áhugavert að ímynda sér framtíð þar sem gervigreind skrifar pistil eins og þennan en það eru bæði kostir og gallar sem rétt er að hafa í huga. Ef við byrjum á því jákvæða þá gætu textaskrif sem skrifuð eru af gervigreind aukið skilvirkni og framleiðni. Þar sem tæknin getur skrifað mikið magn af texta á stuttum tíma. Þannig má spara verulega fjármuni fyrir fjölmiðla og fyrirtæki sem þurfa að skrifa mikið af textum. Hins vegar eru gallar á gæðum efnis sem gervigreindin skrifar því hún er gjörsneydd ímyndunar- afli sem aðeins mannshugurinn býr yfir. Gervigreind skortir líka innsýn í menningarlegar tilvísanir og smáatriði sem eru grunnstoð í samskiptum manna á milli. Það má einnig leiða að því líkur að með auknum þunga gervigreindar munum við sjá sífellt minni fjöl- breytileika og tæknin muni skila af sér af formúlukenndum og almennum textum. Þessi texti hér að ofan er skrif- aður af gervigreindarforritinu Chat GPT sem er aðgengilegt á netinu. Ég prófaði að biðja forritið um að skrifa fyrir mig pistil, um kosti og galla þess að gervigreindin sjái um skrif á slíkum pistli. Innan 50 sekúndna fékk ég textann hér að ofan á ensku. Ég þýddi hann á íslensku eins orðrétt og mér var kostur. Pistillinn er ekki sá skemmtilegasti en miðað við að þessi tækni er á frumstigum er ljóst að byltingin er rétt að byrja. n Gervipistill Sparaðu tíma og gerðu einfaldari innkaup á netto.is Herholz hurðirnar standast öll gæðapróf ÞÝSKAR SÉRPANTAÐAR INNIHURÐIR Fyrir fólk í leit af nýjum tækifærum

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.