Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FIMMTUDAGUR 16. febrúar 2023 Mæðgurnar fögru, Kaia Gerber og Cindy Crawford. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY thordisg@frettabladid.is Bandaríska ofurfyrirsætan Cindy Crawford verður 57 ára á bolludag- inn. Hún viðurkennir að sáröfunda dóttur sína, fyrirsætuna Kaiu Gerber, sem er sláandi lík móður sinni. „Ég horfi á dóttur mína og sé hár hennar glansandi og heilbrigt. Hún er með gamla hárið mitt og ég vil fá það til baka!“ sagði Cindy í viðtali við tímaritið InStyle. Fyrirsætan, sem var ein sú allra vinsælasta á 10. áratugnum, segist meðvituð um að húðin láti á sjá með aldrinum en það komi sér á óvart að árin setji mark sitt á hárið. „Allir tala um að húðin muni eldast en enginn segir manni að hárið eldist líka. Við reiknum jú öll með gráu hárunum en ég hafði ekki hugmynd um að áferð hársins léti líka á sjá og það yrði stökkara og mattara,“ sagði Cindy. Á tíunda áratugnum var Craw- ford þekkt fyrir blásið hár með dúandi, stórum liðum og sú hár- greiðsla er einmitt aftur komin í tísku nú. „Það er alltaf gaman að sjá tísku og trend koma aftur. Þessi greiðsla minnir mig á tískuna sem ég elskaði á tíunda áratugnum. Hún var óafsakanlega sexí og skemmtileg,“ sagði Cindy sem heldur enn mikið upp á gömlu, góðu hárgreiðsluna. „Mér finnst alltaf jafn flott að blása hárið með stórum krullu bursta og Velcro- rúllum. Það gefur hárinu fyllingu og mjúkar, glansandi bylgjur. Ég kalla það „Madison Avenue- blásturinn.“ n Cindy Crawford vill hárið til baka Lífið er yndislegt og það er gaman að vera til, segir Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Er svolítið að ögra fólki Logi Geirsson, fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í handknattleik, lítur björtum augum á lífið og tilveruna. Hann segist ætla að komast í besta form lífs síns á þessu ári en Logi, sem ávallt er flottur í tauinu, fagnaði fertugsafmæli sínu á síðasta ári. 2 Austurmörk 21 • 810 Hveragerði Hornsteinn 60 ára afmælissýning 11/02 – 20/08 2023 Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.