Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 8
Öryggis- og efnahagsmál vega þungt í snúningi á viðhorfum Íslendinga gagnvart aðild að ESB. Ekki slembisveifla að sögn stjórnmálafræðinga. bth@frettabladid.is Stjórnmál „Fólk leggur saman tvo og tvo og finnur út að þetta sé fórnarkostnaðurinn við íslensku krónuna,“ segir Breki Karlsson, for- maður Neytendasamtakanna, um að æ fleiri Íslendingar vilja samkvæmt könnunum upptöku evru hér á landi. Sveiflurnar í íslenska hagkerfinu eru svo miklar að jaðrar við firringu að sögn Breka. Hann segir að Neyt- endasamtökin sjái æ fleiri dæmi þess að heimilin séu að sligast. „Það má líkja hagkerfinu hér á landi við alkóhólistahagkerfi þar sem þjóðin er meðvirk. Við elskum þegar alkóhólistinn pússar skóna, hnýtir reimarnar og býr sig undir ballið, því við ætlum að taka þátt í djamminu. En við vitum um leið að stofuhúsgögnin munu brotna seinna um nóttina og það þarf að taka til á morgun í þynnkunni.“ Stuðningur við upptöku evru hér á landi mælist nú 52,2 prósent og þykir saga til næsta bæjar. Stjórnmála- fræðingar segja marktæka viðhorfs- breytingu hafa orðið. Öryggismál, Brexit og efnahagsmál  eru nefnd sem skýringar. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að nokkrar kannanir í röð hafi niðurstaðan orðið sú að Íslendingar sem vilji ganga í ESB séu fleiri en hinir sem vilja það ekki. „Þetta er breyting, því síðan Ice- save kom upp hafa andstæðingar verið f leiri en fylgjendur,“ segir Ólafur. Engin ástæða er til að ætla að um slembisveif lu sé að ræða að sögn Ólafs. Raunveruleg  sveif la á við- horfum sé í gangi  en óvíst hvort hún haldi. „Að yfir helmingur vilji taka upp evru er mjög athyglisverð niður- staða.“ Ólafur segir til skýringar að sumir tali um aukinn áhuga á Evrópusam- starfi, aðrir ræði efnahagslega þætti. Hann telji Brexit kunna að hafa breytt viðhorfi Íslendinga til ESB. „Það hefur komið í ljós að flest af því sem Brexit-sinnar héldu fram að myndi batna með útgöngu reyndist tóm vitleysa og hefur valdið Bretum miklum vandræðum. Fleiri og fleiri eru þeirrar skoðunar að Brexit sé einhver stærstu mistök sem stór- þjóð hefur gert á síðari árum,“ segir Ólafur. Flest af því sem Brexit- sinnar héldu fram að myndi batna með útgöngu reyndist tóm vitleysa. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði Samfylkingin hefur sett ESB aftur á listann og flokkurinn stór- eykur fylgi sitt. Baldur Þórhalls- son prófessor í stjórnmálafræði Hörmuleg áhrif Brexit skýri aukna jákvæðni hér gagnvart aðild að ESB kristinnhaukur@frettabladid.is orkumál Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, segist ekki óttast málsókn frá vindorku- fyrirtækinu Qair vegna riftunar samkomulags. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær sendi Qair harðort bréf til sveitarfélagsins eftir að byggðarráð tilkynnti riftun samkomulagsins, sem er frá mars árið 2021. Qair ætlaði að reisa könnunar- mastur sem undanfara mögulegs vindorkuvers nálægt Húsavík. Í bréfinu sakar Qair Norðurþing um að hafa rift samkomulaginu til þess að rýma fyrir sams konar vindorku- verkefni Landsvirkjunar. „Ég óttast í sjálfu sér ekki mála- ferli, ekki á þessum tímapunkti,“ segir Katrín. „Það er ekkert sem ætti að kalla á þau núna. En maður getur aldrei sagt hvernig hlutirnir enda.“ Í bréfinu krefst Qair að ákvörðun Norðurþings verði upplýst að fullu og að félagið fái öll gögn. Þann 15. desember fól byggðarráð sveitar- stjóra að ræða við Landsvirkjun um vindorkurannsóknir á sama svæði og Qair fékk. „Við munum afhenda allt sem okkur ber samkvæmt upp- lýsingalögum. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því,“ segir Katrín. Byggðarráðið sleit samkomu- laginu vegna meints aðgerðarleysis Qair. „Byggðarráð taldi ástæðu- laust að halda áfram samstarfinu við Qair. Það hafa ekki verið gerðar rannsóknir samkvæmt samkomu- lagi, það er vindafarsrannsóknir og fleira,“ segir Katrín. Qair kveðst ekki hafa fengið nægan tíma fyrir rannsóknirnar. „Samkomulagið var í gildi í tæp tvö ár. Það er þokkalegur tími,“ segir Katrín. Nú er Norðurþing að fara yfir rök Qair. Sjálf segist Katrín koma ný að málinu, hún hafi tekið við stöðu sveitarstjóra í haust. Nýr meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknar- manna tók við eftir kosningar. En samkomulag Norðurþings og Qair reyndist fyrri meirihluta Sjálfstæð- isflokks, Samfylkingar og VG erfitt þar sem VG lagðist gegn því. „Ég held að það hafi frekar verið samskiptaleysi,“ segir Katrín spurð hvernig samskipti sveitarfélagsins við Qair hafi verið á meðan sam- komulagið var í gildi. Sjálf hafi hún ekki verið í neinum samskiptum við fyrirtækið fyrr en ljóst var að sam- komulaginu væri slitið. n Óttast ekki málsókn vegna riftunar vindmyllusamnings Útganga Breta úr Evrópusam- bandinu er nefnd meðal skýringa á jákvæðari viðhorfum Íslendinga gagn- vart upptöku evru og aðildar að ESB. Fréttablaðið/ Getty Katrín Sigurjóns- dóttir sveitar- stjóri Norður- þings Vindmyllur eru að verða að miklu hitamáli á Íslandi. Mynd/aðsend Baldur Þórhallsson stjór n- málafræðiprófessor segir að við- snúningur hafi orðið á viðhorfum Íslendinga til ESB-aðildar með inn- rás Rússa í Úkraínu. „Þá fóru fyrstu kannanir að sýna vaxandi stuðning við ESB-aðild,“ segir Baldur. Efnahagsleg óvissa tengd Covid á einnig þátt að sögn Baldurs. Alþjóð- legur stuðningur við Evrópusam- vinnu og Atlantshafsbandalagið hafi vaxið og þetta kunni að hafa haft áhrif á viðhorf Íslendinga. Baldur segir athyglisvert að á sama tíma og aukin jákvæðni mælist gagnvart ESB sé lítil umræða meðal stjórnmálamanna um málið. „Samfylkingin hefur sett ESB aftur á listann og flokkurinn stór- eykur fylgi sitt.“ En á Baldur von á að Ísland gangi nokkru sinni í ESB eða taki upp evru? „Það þarf mikið til.“ n kristinnpall@frettabladid.is DýravernD Dýraverndarsamband Íslands sendi fyrir helgi áskorun á öll sveitarfélög landsins um að koma villtum fuglum og öðrum dýrum til aðstoðar með fóðurgjöf þar til fari að hlýna. Veðráttan geri að verkum að fuglarnir komist ekki í fæðu og að mörg dýr séu að glíma við máttleysi sökum hungurs og kulda. Dýraverndarsambandið benti á að á höfuðborgarsvæðinu væru grágæsir illa staddar þar sem þær væru háðar fóðurgjöfum þegar frost væri í jörðu, sem kemur í veg fyrir að gæsirnar geti nærst á túnum og grasflötum. Umræddur stofn, titl- aður Reykjavíkurgæsir, haldist við á Íslandi og eru um þúsund fuglar í honum. Það sé samkvæmt lögum skylda að aðstoða dýr í neyð og það sé á ábyrgð sveitarfélaga ef um villt dýr er að ræða. n Sveitarfélög verði að aðstoða fugla Gæsirnar komast ekki í sitt fæði ef jörð er frosin. Fréttablaðið/ernir ser@frettabladid.is SamGÖnGur Franska fyrirtækið Qair hefur keypt helmingshlut Ork- unnar í Íslenska vetnisfélaginu og hyggjast forkólfar þess byggja upp fleiri vetnisstöðvar á landinu. Ætlunin er að fjölga vetnisstöðv- um félagsins úr tveimur í sex – og segir á vef Félags íslenskra bifreiða- eigenda að þá verði hægt að fylla á vetnisbíla hringinn í kringum Ísland. Margir bílaframleiðendur hafi sýnt vetnistækninni áhuga og sé von á fjölda nýrra gerða vetnisbíla á komandi árum. n Vetnisstöðvum fjölgað að mun Qair keypti í Íslenska vetnisfélaginu. 8 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 16. FeBRúAR 2023 fiMMtUDAGUr

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.