Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 2
Þarna ætlar verktaki að
hrófla upp risavaxinni
heimavist.
Úr bréfi íbúa til borgaryfirvalda
Hæsta verðið mældist
í Iceland.
Þakkaði björgunarsveitarfólki
Katrín Jakobsdóttir þakkaði björgunarsveitarmönnunum fyrir vel unnin störf fyrir hönd stjórnvalda og Íslendinga. Þeir komu til landsins í gær frá Tyrklandi
eftir langt ferðalag þar sem þeir stýrðu rústabjörgunaraðgerðum eftir jarðskjálftann mikla þann 6. febrúar síðastliðinn. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Koma á fyrir íbúaúrræði
fyrir allt að 85 umsækjendur
um alþjóðlega vernd í gamla
sendiráði Bandaríkjanna við
Laufásveg. Íbúar í grennd
undrast samráðsleysið.
ser@frettabladid.is
SAMFÉLAG Urgur er á meðal íbúa í
Þingholtunum vegna áforma um
að breyta gömlu sendiráðsbygg-
ingu Bandaríkjanna við Laufásveg
21 og 23 í svokallað íbúaúrræði fyrir
umsækjendur um alþjóðlega vernd
á vegum Vinnumálastofnunar.
Fréttablaðið hefur skeytasend-
ingar á milli íbúanna og embættis-
manna Reykjavíkurborgar undir
höndum, en þær bera vott um að
þeir fyrrnefndu hafi margsinnis
reynt að grennslast fyrir um þau
áform sem uppi hafa verið um
nýtingu á húsakostinum. Hann er
samtals 1.600 fermetrar að stærð,
og hefur staðið auður frá því Banda-
ríkjamenn yfirgáfu Laufásveginn
haustið 2020.
Í einu svaranna frá umhverfis- og
skipulagssviði borgarinnar segir
að 40 herbergi í húsinu eigi að
nota „fyrir 75-85 umsækjendur um
alþjóðlega vernd“.
Að sögn íbúanna, sem ekki vilja
koma fram undir nafni, varð þeim
heldur hverft við niðurlag svarsins:
„Sólarhrings öryggisgæsla verður
í húsinu svo það er ávallt öryggis-
vörður til staðar. Enn fremur setjum
við upp myndavélakerfi sem dekkar
sameiginleg rými í því“, segir orðrétt
í svari sviðsins.
Að sögn íbúanna í grennd, sem
Fréttablaðið hefur ítrekað rætt við
á síðustu dögum, kom það þeim
algerlega í opna skjöldu að gamla
sendiráðinu skyldi að lokum vera
valið þetta hlutverk, enda lá fyrir, að
þeirra sögn, að nýr eigandi ætlaði að
breyta því í almennar íbúðir.
Mikil ánægja hafi verið meðal
nágrannanna um þau áform, enda
segjast þeir á tímabili hafa óttast að
gamla sendiráðinu yrði breytt í enn
eitt gistiheimilið á svæðinu með
tilheyrandi umferð og fyrirferð að
degi sem nóttu.
Því hafi þeir komið af fjöllum
þegar leyfisveiting af hálfu borgar-
innar um umrætt íbúaúrræði hafi
loksins legið fyrir undir lok síðasta
árs.
„Þarna ætlar verktaki að hrófla
upp risavaxinni heimavist þar sem
öll rými á borð við eldhús, böð og
setustofur eru sameiginleg fyrir allt
að 85 manns og leigja þetta ríkis-
stofnun sem hyggst bjóða fólki í
neyð upp á svona aðstæður,“ segir
í athugasemd íbúa við breyttum
áformum um starfsemina.
Íbúarnir segja enn fremur að þeir
efist um að nokkrum öðrum yrði
boði upp á svona húsnæði, auk þess
sem margir í hverfinu óttist eðli-
lega áhrif þess á rólegt íbúðahverfi,
þar sem meðal annars er bannað að
opna ný gistiheimili og að reka þar
búsetuskilyrði á borð við það sem
nú standi til að reka í gamla sendi-
ráðinu. n
Gamla sendiráðinu breytt
í óþökk íbúanna í grennd
Áratugum saman var sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg 21 og 23. Hús-
næðið hefur staðið autt síðan haustið 2020. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
ser@frettablaid.is
NEYTENDUR Meiri verðmunur var
á milli matvöruverslana í nýjustu
verðkönnu n verðlag sef t irl it s
Alþýðusambands Íslands en verið
hefur um árabil, en þar var lögð
áhersla á að bera saman lægsta kíló-
verð á vörum.
Meðalverð á 113 vörutegundum
var lægst í Bónus, að meðaltali 6
prósent frá lægsta verði, en hæst í
Iceland, að meðaltali 54 af hundraði
frá lægsta verði.
Í tilkynningu frá ASÍ segir að
meðalverð á vörukörfu sem inni-
heldur matvöru sem þarf til að mat-
reiða sunnudagslæri með meðlæti
ásamt forrétti og eftirrétti hafi verið
52 prósentum hærra í Heimkaup þar
sem það var hæst, en hjá Bónus og
Krónunni þar sem verðið var lægst. n
Lægsta vöruverðið
að finna í Bónus
ASÍ gerði könnunina.
Fréttablaðið/Vilhelm
AðAlfundur BÍ 2023
Fimmtudaginn 23. mars kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2023
verður haldinn fimmtudaginn 23. mars n.k. að
Síðumúla 23, 3. hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið
er til húsa og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar
Lagabreytingar
Önnur mál
BÍ-félagar eru hvattir
til að mæta
erlamaria@frettabladid.is
kjARAMáL Viðræðum í kjaradeilu
samninganefnda Samtaka atvinnu-
lífsins og Eflingar lauk í Karphúsinu
laust fyrir klukkan sex síðdegis í
gær. Ástráður Haraldsson, settur
sáttasemjari, sagði að fundi loknum
að engar niðurstöður lægju fyrir.
Enn sé talsvert af álitamálum sem
deiluaðilar greini á um.
„Ég reiknaði alltaf með því að
þetta yrði erfitt, en það sem ég átt-
aði mig ekki á og vissi ekki fyrir
fram er að tillögur aðilanna væru
byggðar á svona gjörólíkum for-
sendum,“ segir Ástráður.
„Ég játa það að kannski fórum
við ekki yfir eins stóran hluta af
málinu eins og ég hefði viljað á
þessum fundi, en það gengur von-
andi hraðar á þeim næsta,“ segir
Ástráður, sem hefur boðað til nýs
fundar klukkan tíu fyrir hádegi.
„Við erum komin á þann stað að
við erum byrjuð að tala um launa-
töf lur og ýmis smáatriði og hluti
sem raunverulega skipta máli til að
ganga frá kjarasamningum,“ segir
Ástráður. n
Vinnan meiri en vonir stóðu til
Ástráður Haraldsson sáttasemjari
ræddi við fjölmiðla eftir fundinn.
2 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
LAUGArDAGUr