Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 4
70
prósent landsmanna á
aldrinum 16 til 74 ára
voru starfandi á vinnu-
markaði á Íslandi.
52,2
prósent Íslendinga vill
að Ísland taki upp evru
í stað krónu í könnun
Prósent.
4
prósent fólks undir
25 ára styðja Vinstri
græn samkvæmt
könnun Prósent.
122
milljónir króna er
áætlað söluvirði fíkni-
efna sem lögregla lagði
hald á í síðustu viku.
2,9
milljónir ferðamanna
gætu lagt leið sína til
Íslands árið 2025 rætist
spá Ferðamálastofu.
Þrjú í fréttum |
tölur vikunnar |
ggunnars@frettabladid.is
netöryggi „Óprúttnir aðilar hafa
verið að reyna að komast yfir
aðganga á Facebook í stórum stíl.
Þetta hefur verið mjög áberandi
að undanförnu,“ segir Guðmundur
Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri net-
öryggissveitarinnar CERT-IS.
Sigurður Ingi Jóhannsson, inn-
viðaráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, missti aðgang að
Facebook-síðu sinni fyrr í vikunni.
Síða í hans nafni kallast nú Ramay
Entertainment þótt þar sé enn að
finna persónulegar myndir af Sig-
urði Inga.
Aðspurður segist Sigurður Ingi
ekki óttast að atvikið muni draga
dilk á eftir sér. „það er samt grá-
bölvað að lenda í þessu,“ segir Sig-
urður Ingi, sem vinnur nú að því að
endurheimta síðuna.
Ekki einn í örmum netþrjóta
Óprúttnir
aðilar klófestu
Facebook-síðu
Sigurðar Inga
fyrr í vikunni.
fréttablaðið/
valli
Guðmundur Arnar segir nokkuð
um að áhrifafólk verði fyrir barð-
inu á slíkum árásum. Það sé oft-
ast gert til að koma höggi á viðkom-
andi. Fólk í slíkum stöðum þurfi
því að vera sérstaklega á varðbergi.
Öllu algengara sé þó, að sögn
Guðmundar, að herjað sé á venju-
legt fólk í þeim tilgangi að hafa af
því fé.
„Algengasta aðferðin um þessar
mundir eru skilaboð sem virðast við
fyrstu sýn koma frá vini eða kunn-
ingja. Mín skilaboð til allra eru því
einföld. Ekki láta af hendi neinar
upplýsingar. Hringið frekar í við-
komandi og fáið staðfestingu. Við
verðum að temja okkur heilbrigða
tortryggni í samskiptum á netinu,“
segir Guðmundur. n
Guðrún
Aspelund
sóttvarnalæknir
segir það ekki
spurningu hvort
heldur hvenær
næsti heimsfar-
aldur gangi yfir
mannkynið.
„Við eigum alveg örugglega von á
einhverju,“ sagði Guðrún í þætt-
inum Mannamáli á Hringbraut.
„Langlíklegastur er heimsfaraldur
inflúensu,“ sagði Guðrún. Vegna
loftslagsbreytinga og hlýnunar
jarðar sé líka möguleiki á því að
skæðar pestir, sem herji á heitari
lönd, færi sig yfir til þeirra kaldari.
Björn J.
Gunnarsson
hópstjóri í ferð
Íslendinga á skjálfta-
svæðin í Tyrklandi
hrósar þarlend-
um mikið fyrir
fagleg vinubrögð
við björgun fólks
úr rústunum.
„Tyrkir hafa gríðarlega sterkt
almannavarnakerfi. Þeirra rústa-
björgunarsveitir eru mjög góðar,“
sagði Björn við komuna aftur heim
til Íslands. „Tyrknesku sveitirnar
voru að standa sig gríðarlega vel í
því sem þeir voru að gera, eins og
að flytja mat og vistir og allt sem
þurfti að gera á svæðinu.“
Breki Karlsson
formaður Neytenda-
samtakanna
segir sífellt f leiri
heimili að sligast
vegna fjármála-
erfiðleika.
„Það má líkja
hagkerfinu hér á
landi við alkóhólistahagkerfi þar
sem þjóðin er meðvirk. Við elskum
þegar alkóhólistinn pússar skóna,
hnýtir reimarnar og býr sig undir
partíið því við ætlum að taka þátt
í djamminu. En við vitum um leið
að stofuhúsgögnin munu brotna
seinna um nóttina og það þarf að
taka til á morgun í þynnkunni.“
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Alex og William
manual hvíldarstólar
Alex manual með 20% afsl. 195.000 kr.
Alklæddir
Anelín leðri
Litir: svart,
dökkbrúnt og cognac
William manual með 20% afsl. 215.000 kr.
Nú með
20%
afslætti
Verður næsti bíll
þinn rafbíll?
n Mjög líklegt n Frekar líklegt
n Hvorki né n Frekar ólíklegt
n Mjög ólíklegt
23%
25%18%
14%
21%
Kjósendur þriggja flokka eru
ólíklegastir til að kaupa rafbíl.
Sviðsstjóri hjá Orkustofnun
býst við mjög hraðri þróun
næstu 10 eða 12 árin.
kristinnhaukur@frettabladid.is
bílar Nærri helmingur landsmanna
ætlar að velja rafmagnsbíl sem sinn
næsta bíl. Þetta kemur fram í nýrri
könnun sem Prósent gerði fyrir
Fréttablaðið. 48 prósent telja líklegt
að næsti bíll verði rafmagnsbíll, þar
af 23 prósent mjög líklegt.
Rúmur þriðjungur, 35 prósent,
telja ólíklegt að næsti bíll verði raf-
magnsbíll, þar af 21 prósent mjög
ólíklegt. En 18 prósent voru óviss.
Sigurður Ingi Friðleifsson, sviðs-
stjóri loftslagsmála, orkuskipta
og nýsköpunar hjá Orkustofnun,
segir að nýskráningarhlutfall raf-
bíla þurfi að vera komið í 100 pró-
sent í síðasta lagi árið 2025 til þess
að Ísland standist loftslagsmark-
mið sín. Aðspurður um könnunina
segist hann hafa viljað sjá hlutfall
jákvæðra svara hærra en hafa ber
þó í huga að spurt var um næsta bíl,
ekki næsta nýja bíl.
„Það er að verða til þroskaður
markaður með notaða rafbíla. Það
er orðinn valkostur að kaupa sér
notaðan raf bíl sem er frábært,“
segir Sigurður aðspurður um hvort
raf bílar séu of dýrir. „Raf bílar eru
algerlega samkeppnishæfir í mörg-
um flokkum.“
Bendir hann á að þróunin sé mjög
hröð og verði það næstu 10 til 12
árin. Evrópusambandið, sem inni-
heldur mörg bílaframleiðsluríki,
hefur sett bann við nýskráningum
jarðefnaeldsneytisbíla árið 2035 og
Norðmenn árið 2025.
„Það er búið að taka ákvörðun
fyrir geirann að þetta sé búið,“ segir
Sigurður. „Hver ætlar að kaupa síð-
ustu eintökin af tækni sem er búið
að ákveða að sé á útleið?“ Það sé
áhætta upp á endursölu og fleira.
Samkvæmt könnun Prósents er
tiltölulega lítill munur á kynjunum
en aðeins meiri eftir aldurshópum.
Fólk á aldrinum 25 til 34 ára er lík-
legast til að kaupa sér rafbíl, eða 56
Helmingur býst við að fara á rafbíl
Höfuðborgarbúar eru hrifnari af rafbílum en landsbyggðarfólk. fréttablaðið/vihelm
Sigurður Ingi
Friðleifsson,
sviðstjóri hjá
Orkustofnun
prósent, en fólk yfir 65 ára ólíkleg-
ast, 38 prósent.
53 prósent fólks á höfuðborgar-
svæðinu ætlar að kaupa rafbíl næst
en aðeins 37 prósent fólks á lands-
byggðinni. Hátekjufólk, með 800
þúsund eða meira í mánaðartekjur,
er líklegra til að kaupa sér rafbíl, það
er 60 prósent, en aðeins 38 prósent
lágtekjufóks, með undir 400 þúsund
krónur.
Nokkur munur er á svörum eftir
stjórnmálaskoðunum. Hrifnastir
eru kjósendur Vinstri grænna af raf-
bílum og ætla 62 prósent þeirra að
eignast slíkan næst þegar þeir kaupa
bíl en 26 ætla að kaupa bensín- eða
dísilbíl.
Hlutfallið er svipað hjá fimm
stjórnmálaf lokkum. 55 prósent
Samfylkingarfólks og Sjálfstæðis-
manna ætla að kaupa sér raf bíl
næst, 54 prósent Viðreisnarfólks og
Pírata og 49 prósent Framsóknar-
manna.
Kjósendur þriggja flokka skera sig
hins vegar úr. 29 prósent kjósenda
Flokks fólksins ætla að kaupa rafbíl
og 26 prósent kjósenda Sósíalista-
flokksins og Miðflokksins. n
4 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
LAUGArDAGUr