Fréttablaðið - 18.02.2023, Qupperneq 21
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 18. febrúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Már var svo óheppinn að fótbrotna á síðasta ári. Hann segir að Active JOINTS frá Eylíf hafi hjálpað beinunum að gróa. Að auki hafa verkir sem hann var með í
hálsi horfið eftir inntöku á fæðubótarefninu þannig að hann mælir heilshugar með að taka Active JOINTS. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINk
Bætt lífsgæði með Active JOINTS
Már Guðnason húsasmiður hefur starfað við álagsvinnu í gegnum árin. Nú þegar hann er
kominn á eftirlaun hafa komið fram ýmis eftirköst erfiðisins. Már hefur fundið út að Active
JOINTS frá Eylíf reynist vel til að bæta lífsgæðin.
Már segist hafa verið sérstaklega
slæmur í hálsliðum. „Ég er lærður
húsasmiður en er eiginlega alt
mulig-maður,“ segir hann. „Get eig-
inlega aldrei verið aðgerðalaus og
er alltaf að dunda mér við eitthvað,
hvort sem það eru endurbætur hér
heima, að hjálpa vinum og vanda-
mönnum eða vinna í garðinum,“
segir Már, sem býr í Fljótshlíðinni
ásamt konu sinni, Önnu Óskars-
dóttur. „Við búum á þessum fagra
stað,“ segir hann. „Ég var alltaf í
átaksvinnu, aðallega í virkjunum.
Það hefur komið niður á líkam-
anum en ég hef verið sérstaklega
slæmur í hálsinum. Ég vann lengi í
járnabindingum og oft með mikil
þyngsli í höndunum. Það reynir á
skrokkinn og kemur fram þegar
maður eldist,“ segir hann. „Ég var
með mikla verki í hálsinum og átti
erfitt með svefn. Ég hafði leitað til
heimilislækna í einhver ár, en það
eina sem ég fékk út úr því var að
taka verkjalyf. Ég fór í nudd með
litlum árangri, verkirnir versnuðu
bara ef eitthvað var. Ég var síðan
sendur í myndatöku og þá kom
fram mikið slit í hálsliðum en því
miður á svo vondum stað að ekkert
er hægt að gera. Eina ráðið voru
verkja- og gigtartöflur það sem
eftir er, sem mér hugnaðist ekkert
sérstaklega vel,“ útskýrir Már.
Get loksins sofið
„Ég sá auglýsingu frá Eylíf um
Active JOINTS og hugsaði með mér
að það væri nú allt í lagi að prófa
þetta. Það var í mars 2020. Eftir
fjórar vikur var ég farinn að finna
fyrir að eitthvað var að breytast
og eftir fjóra mánuði var ég orðinn
töluvert betri. Ári seinna var ég
hættur að finna fyrir verkjunum
í hálsinum. Fyrir mér er þetta
kraftaverk og lyginni líkast. Ég
fékk nýtt líf. Engar verkjatöflur og
mér gekk vel að sofna á kvöldin.
Í rauninni er ég laus við verkina,“
segir Már, sem tekur þrjú hylki á
dag og ætlar sannarlega að taka
Active JOINTS frá Eylíf áfram.
Már var svo óheppinn að fót-
brjóta sig í haust og er viss um
að Active JOINTS hefur hjálpað
beinunum að gróa. Læknirinn er
ánægður með hversu vel hefur
gengið hjá honum. „Ég var svo
óheppinn á leið í Krónuna á Hvols-
velli að detta. Það var rok úti og ég
var með tvo nælonpoka sem fuku
frá mér. Í f lýtinum að ná þeim
hrasaði ég með þeim afleiðingum
að ég mölbraut á mér fótinn. Ég
brotnaði svo illa að læknirinn
sagði að í raun áður en aðgerðin fór
fram hefði fóturinn verið ónýtur.
Aðgerðin hefði hins vegar gengið
vel og ég er farinn að stíga í fótinn,“
segir hann og bætir við: „Enda
læknirinn, Benedikt Árni Jónsson,
algjör snillingur, besti skurðlæknir
á landinu að öðrum ólöstuðum,“
segir hann.
Active JOINTS styrkir beinin
Már segir að hann hafi spurst
fyrir hjá Eylíf hvort það hentaði
að taka Acive JOINTS á meðan
beinin væru að gróa. „Mér var sagt
að það væri mjög gott þar sem
Active JOINTS styrkir beinin. Ég
hélt því áfram að taka hylkin og
er viss um að það hefur hjálpað
þeim að gróa,“ segir hann. „Ég
er bara virkilega ánægður með
Ávextir og grænmeti eru svo sannar-
lega rík af næringarefnum.
gummih@frettabladid.is
Þeir eru margir sem taka mataræð-
ið í gegn hjá sér á nýju ári og vilja
neyta hollara fæðis en áður. Hollur
og fjölbreyttur matur stuðlar að
því að við fáum þau næringarefni
sem líkaminn þarf á að halda og
leggur grunn að góðri heilsu og
vellíðan.
Það er mikilvægt að borða hæfi-
legan skammt af mat og hreyfa sig
reglulega til að hafa jafnvægi á því
hve mikla orku við fáum með mat
og drykk og hve mikla orku við
notum við hreyfingu. Þannig er
auðveldara að viðhalda heilsu-
samlegu holdafari en hreyfingin
er mjög mikilvæg þar sem hún
stuðlar að andlegri, líkamlegri og
félagslegri vellíðan, spornar gegn
langvinnum sjúkdómum og við-
heldur hreysti.
Næringarrík matvæli
Æskilegt er að velja fyrst og fremst
matvæli sem eru rík að næringar-
efnum frá náttúrunnar hendi.
Þar má nefna grænmeti, ávexti,
ber, hnetur, fræ, heilkornavörur,
baunir, feitan og magran fisk, olíur
fituminni mjólkurvörur og vatn
til drykkjar, sem er besti svala-
drykkurinn.
Neyslu á unnum matvörum sem
innihalda oft mikið af mettaðri
fitu, sykri eða salti ætti hins vegar
að takmarka neyslu á en það eru
vörur eins og unnar kjötvörur,
skyndibiti, snakk, sætt kex og
kökur, sælgæti og gosdrykkir.
HeImILd: LANdLækNIsemBæTTIÐ
Fjölbreytt fæði í
hæfilegu magni