Fréttablaðið - 18.02.2023, Page 23
Línan hentar fyrir
alla fjölskylduna
þar sem mismunandi
styrkur er til sem hentar
hverjum og einum,
vörurnar fást í styrkleika
allt frá 10 µg til 100 µg.
D-vítamín munnúðarnir frá
Better You eru einstaklega
góð lausn til að fá inn ráð-
lagðan dagskammt af þessu
mikilvæga vítamíni fyrir
alla aldurshópa.
Á Íslandi er sérlega mikilvægt að
huga að inntöku D-vítamíns í
formi bætiefna, sérstaklega yfir
vetrarmánuðina þar sem sólin hér
á landi er ekki nægilega hátt á lofti.
D-vítamín gegnir lykilhlutverki
í viðhaldi sterkra beina og tanna
og skiptir til að mynda sköpum í
viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi
sem og fyrir heilbrigt ónæmiskerfi.
Margt gefur þó til kynna að D-víta-
mín gegni mun víðtækara hlut-
verki en talið var og það sé í raun
grundvallarefni til að viðhalda
heilsu og fyrirbyggja hina ýmsu
heilsufarskvilla. Eflaust eru margir
sem ekki vilja taka inn mikilvægt
D-vítamín í föstu formi en þá eru
munnúðar einstaklega hentug og
áhrifarík leið. Munnúðar eru ein-
föld leið fyrir alla, sérstaklega fyrir
þá sem eiga í erfiðleikum með að
kyngja töflum/hylkjum eða hafa
undirliggjandi kvilla á borð við
meltingarvandamál.
Fyrir alla fjölskylduna
Better You-vörurnar hafa notið
mikilla vinsælda og ekki að
ástæðulausu þar sem mikið er
lagt upp úr gæðum og að upptaka
vítamína sé tryggð. Munnúðarnir
eru sérstaklega hannaðir þannig
að þeir frásogist beint inn í blóð-
rásina en með því að spreyja undir
tungu eða út í kinn fer spreyið
fram hjá meltingarveginum og
tryggir þannig hámarksupptöku.
Better You framleiðir öll helstu
vítamín sem þörf er á fyrir eðlilega
líkamsstarfsemi en D-vítamín
línan hefur slegið í gegn. Línan
hentar fyrir alla fjölskylduna þar
sem mismunandi styrkur er til
sem hentar hverjum og einum,
vörurnar fást í styrkleika allt frá
10 µg til 100 µg. Better You hefur
einnig tileinkað sér þann frábæra
eiginleika að fyrirtækið tryggir að
vöruúrval þess hafi sem minnst
áhrif á jörðina og eru því allar
vörur lausar við pálmaolíu og eru
pakkaðar í endurunnið plast úr sjó
sem er allt 100% endurvinnanlegt.
Nauðsynlegt D-vítamín í munn-
úða fyrir yngstu börnin
Fljótlega eftir fæðingu er vert
að huga að D-vítamíngjöf fyrir
ungabarnið. Móðurmjólkin, sem
er svo næringarrík, inniheldur þó
ekki nægjanlegt magn D-vítamíns
til að uppfylla þarfir barna og er
því mikilvægt að gefa viðbót frá
1-2 vikna aldri. Fyrstu ár ævinnar
eru beinin að vaxa og þéttast og
skiptir því miklu máli að börn fái
viðbót til að stuðla að viðhaldi
eðlilegra beina. D-vítamín er að
auki nauðsynlegt fyrir upptöku og
nýtingu á kalki, sem og mikilvægt
fyrir tennur og eðlilega starf-
semi ónæmiskerfisins. Til eins árs
aldurs er ráðlagður dagskammtur
af D-vítamíni 10 míkrógrömm.D-
vítamínin frá Better You er til fyrir
alla aldurshópa en D400 Infant er
hugsað fyrir börn yngri en þriggja
ára. Munnúðinn inniheldur 400 IU
eða 10 μg af D-vítamíni í ráðlögð-
um dagskammti en munnúðinn er
bragðlaus sem hentar afar vel fyrir
þau yngstu. Einnig býður Better
You upp á D400 Junior sem ætlað
er börnum eldri en 3 ára. Úðinn
inniheldur 400 IU eða 10 μg en
slíkur munnúði er með bragðgóðu
piparmyntubragði og hentar eldri
en 3 ára því betur. Ekki gleyma að
gefa þínu barni mikilvægt D-víta-
mín og einfaldaðu daglega verkið
með Better You munnúða.
Veldu hvað hentar best
Better You býður upp á þrenns
konar styrkleika í D-vítamín
munnúða svo allir geti fundið
styrk sem hentar hverju sinni.
D1000 munnúðinn inniheldur
1000 IU eða 25 μg í ráðlögðum
dagskammti og hentar 8 ára og
eldri. Næsti styrkur hjá Better You
er D3000 sem inniheldur 3000 IU
eða 75 μg af D3 vítamíni í ráð-
lögðum dagskammti og hentar
13 ára og eldri. D4000 inniheldur
4000 IU eða 100 μg af D-vítamíni í
skammti. D1000, D3000 og D4000
frá Better You á það allt sam-
eiginlegt að vera með bragðgóðu
piparmyntubragði sem oftar en
ekki slær í gegn. Better You býður
að auki upp á einstaka blöndu D+
K2-vítamíns sem inniheldur 3000
IU eða 75 μg af D-vítamíni og 75
mg af K2-vítamíni en samvirkni
þessara vítamína tryggja að kalkið
frásogist úr blóðinu og skili sér
til beinanna þar sem það bætir
beinþéttni. Munnúðinn hentar 13
ára og eldri ásamt barnshafandi
konum og konum með barn á
brjósti. Hugum að mikilvægri
D-vítamín inntöku alla tíð, frá
fæðingu til eldri ára með Better
You munnúðunum. n
Fæst í öllum helstu apótekum og
heilsuhillum stórmarkaða.
Hugum að D- vítamíninu allan ársins hring
D- vítamín munnúðinn frá Better You fæst í styrkleika fyrir alla fjölskylduna
þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. mynd/aðsend
D400 Infant og Junior munnúðarnir eru einstaklega góður kostur fyrir börn
til að fá inn ráðlagðan dagskammt af D-vítamíni á bragðgóðan máta.
D- vítamín gegnir lykilhlutverki í viðhaldi sterkra beina og tanna og skiptir til
að mynda sköpum í viðhaldi eðlilegrar vöðvastarfsemi sem og fyrir heilbrigt
ónæmiskerfi. Better You býður upp á D-vítamín í formi munnúða.
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 18. febrúar 2023