Fréttablaðið - 18.02.2023, Qupperneq 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
„Mér fannst vanta unaðsmiðaða
fræðslu í íslenskum unaðsvöru-
verslunum og ákvað að taka hana
að mér, bæði vegna þess að ég fann
til samfélagslegrar ábyrgðar en líka
sem foreldri barna á öllum aldri.“
Þetta segir Saga Lluvia Sigurðar-
dóttir, kaupkona í kynlífstækja-
versluninni Losta.is sem jafnframt
er fræðslusetur um kynferðis-
legan unað og losta fyrir gesti og
gangandi.
„Mig langaði að skapa öruggt
rými þar sem fólk gæti komið, tyllt
sér í sófa yfir kaffisopa í notalegu
andrúmslofti og spurt um allt sem
það vill vita um kynlíf og losta.
Ég vil að fólki finnist það komið
inn í stofu til að ræða málin og
fá leiðbeiningar, en ekki bara í
búðina með sínu heillandi úrvali
af unaðsvörum. Við leggjum mikið
upp úr ríkri þjónustulund og
þjálfun starfsfólks sem getur mætt
hverjum og einum þar sem hann
er staddur. Við veitum greiðan
aðgang að okkur og leiðum við-
skiptavini í gegnum möguleikana
og með fræðslu, í stað þess að
afhenda vöruna yfir búðarborðið
með orðunum „góða skemmtun“
og láta þar við sitja,“ segir Saga.
Hafa aldrei fengið fullnægingu
Losti.is opnaði vefverslun árið
2019 en starfrækir nú tvær kynlífs-
tækjaverslanir, í Borgartúni 3 og á
Laugavegi 51.
„Það er ótrúlega gaman að sjá
hvað Íslendingar eru opnir fyrir
kynlífstækjum. Eftir að við opn-
uðum á Laugavegi fáum við mikið
af erlendum ferðamönnum sem
þykir framandi að finna kynlífs-
tækjaverslun í vinsælustu göngu-
götu borgarinnar. Sumir koma inn
af einskærri forvitni, enda sums
staðar ekki til sambærilegar versl-
anir í þeirra heimalandi, á meðan
aðrir gera góð kaup, þakklátir fyrir
að finna svona verslun í alfaraleið,“
upplýsir Saga.
Hún segir flesta koma í Losta af
hispursleysi og biðja um það sem
hugurinn girnist.
„Unga fólkið er sérstaklega opið
fyrir kynlífstækjum, en sporin eru
mislétt eftir því hver á í hlut. Inn
kemur fullorðið fólk og konur sem
hafa aldrei fengið fullnægingu né
notað kynlífstæki sér til hjálpar, en
í þeim efnum getum við bæði leið-
beint og gefið góð ráð. Það er aldrei
of seint að taka skrefið og njóta
kynlífs til fulls. Mann langar ekki
alltaf í sama réttinn í eldhúsinu
og eins er í kynlífinu. Kynlífstæki
krydda kynlífið, þau eru skemmti-
leg tilbreyting og sannarlega hægt
að hafa það unaðslegt með kynlífs-
tækjum.“
Valdeflandi kynlífsskart
Spurð um vinsælustu kynlífstækin
í Losta.is, svarar Saga:
„Stórir dildóar (gervigetnaðar-
limir) njóta sem fyrr vinsælda
hjá ákveðnum hópum en í dag
er mikið um nýjungar og fallega
hönnuð tæki sem taka lítið pláss
og bera það ekki með sér að vera
kynlífstæki. Þannig er feimni alveg
óþörf við að taka unaðstæki með
sér í ferðalagið því hönnunin er
svo smekkleg að engan grunar að
um kynlífstæki sé að ræða þegar
litið er ofan í töskur. Þegar fólk
hefur upplifað hvað slík tæki geta
gert fyrir kynlífið fara þau klárlega
alltaf með í ferðalagið og auka
unaðinn til muna,“ segir Saga.
Hún segir hönnun kynlífstækja
hafa gjörbreyst eftir að konur
komu í meira mæli að hönnun
þeirra.
„Í dag eru mörg kynlífstækja-
fyrirtæki í eigu kvenna og kven-
kyns verkfræðingar sem hanna
þau og þróa. Konur hafa jú umfram
vitneskju um unaðssvæði kvenna
en karlar og leggja meiri áherslu á
snípsörvun, enda viðurkennt að
langflestar konur fá fullnægingu í
gegnum snípinn.“
Saga segir gaman að sjá hug-
myndaflug kvenna þegar þær
komast í að hanna unaðstæki.
„Þar má nefna titrara í dular-
gervum, eins og hálsmen og hringa
sem eru fallegir skartgripir en
engum dettur í hug að séu líka
kraftmiklir titrarar sem örva
snípinn og er svo sannarlega fal-
legur og óvæntur glaðningur í til
dæmis konudagspakkann,“ stingur
Saga upp á.
Hún segir valdeflandi fyrir
konur að ganga með slík kynlífs-
tæki utan á sér.
„Konur eru farnar að bera meiri
ábyrgð á kynlífi sínu og full-
nægingum. Þær þora að taka pláss
og örvun á snípinn er orðin jafn
sjálfsögð og að þær fái jafn mikið
út úr kynlífinu og aðrir.“
Sogtæki og múffur vinsælust
Í Losta.is eru sogtæki langvin-
sælasta unaðsvaran fyrir fólk með
píkur.
„Sogtæki veita snípsörvun með
léttu sogi. Við erum með nett og
hljóðlát tæki sem njóta mikilla
vinsælda meðal kvenna og eru
auðveld í notkun þegar stundað er
kynlíf með annarri manneskju,“
upplýsir Saga.
Hjá typpaeigendum eru múffur,
eða gervipíkur, vinsælasta unað-
svaran.
„Múffur fást eins misjafnar og
þær eru margar. Við eigum múffur
með mótor og titringi en langvin-
sælasta varan er einföld, handhæg
múffa án rafmagns og sem fellur
vel í hendi. Hún er þægileg og hægt
að þrífa hana vel, gefur notand-
anum færi á að stjórna sjálfur
og endist lengur en rafknúnar
múffur,“ útskýrir Sigga.
Í Losta.is fæst einnig spenn-
andi fantasíulína sem vakið hefur
athygli fyrir vægast sagt óhefð-
bundin kynlífstæki.
„Við höfum fengið mikið hrós
fyrir að taka inn fantasíuvör-
urnar, svo sem skrímslalega og
geimveru-dildóa. Við lögðumst í
mikla rannsóknarvinnu áður en
við ákváðum að taka vörurnar í
sölu og þá kom í ljós að það er mun
algengari fantasía en fólk gerir sér
grein fyrir að vera numinn á brott
af geimveru eða skrímsli og vera
valdalaus gagnvart framandi veru.
Þetta er æsandi ævintýraheimur
sem við erum stolt af, litríkir og vel
munstraðir dildóar sem minna á
kolkrabbaarma með alls kyns sog-
skálum eða sæskrímsli með klær
og tungu.“
Námskeið sem segja sex
Í Losta.is fer fram fræðsla, við-
burðir og námskeið.
„Sem betur fer hefur kynfræðsla
batnað með árunum en losti er enn
tabú. Allir vita allt um getnaðar-
varnir og hvernig börnin verða til,
en við göngum lengra og gefum
unaði meira rými. Við höldum
reglulega námskeið eins og munn-
makanámskeið sem vakið hefur
mikla athygli og verið vel sótt,“
upplýsir Saga um námskeiðin sem
fara fram á netinu og í versluninni
í Borgartúni.
„Námskeið eru vinsæl hjá
vinahópum, saumaklúbbum og
gæsahópum og mikil stemning að
koma til okkar í búðina þar sem
andrúmsloftið er persónulegt.
Annað vinsælt námskeið er Anal
101 fyrir þau sem hafa áhuga á að
prófa sig áfram með anal örvun og
vörur fyrir rassinn. Námskeiðin
henta byrjendum sem lengra
komnum og alltaf mikilvægt að
fólk fái fræðslu áður en það prófar
sig áfram með anal varning og viti
hvað þarf að hafa í huga. Að það
hugi að hreinlæti og noti ekki hluti
heima sem ekki eru gerðir til að
setja í rassinn. Við leggjum okkur
fram um að allir finni eitthvað
fyrir sig í Losta.is og fái sitt pláss
í öruggu rými þar sem fólk getur
spurt að öllu. Fólk er svo sannar-
lega þakklátt og öruggara á eftir,“
segir Saga.
Losti.is býður líka upp á ókeypis
heimakynningar sem eru mjög
vinsælar við alls kyns tilefni.
„Þar myndast alltaf frábær
stemning og mjög gaman að
upplifa hvernig hóparnir verða
nánari og ófeimnari við að opna
sig og deila reynslusögum, enda
er sjálfsagt að ræða um kynlíf og
kynlífstæki eins og hvað annað,“
segir Saga.
Unglingar líka velkomnir
Losti.is er eina unaðsvöruverslunin
á Íslandi sem er ekki með aldurs-
takmark.
„Við viljum frekar að unglingar
sem eru forvitnir um að prófa
sig áfram komi og fái fræðslu við
hæfi. Til okkar koma líka for-
eldrar með unglingana sína því
með kynlífstækjum gefst tækifæri
til að kanna líkama sinn og sín
mörk, og hvað þeim þykir gott
og hvað ekki, áður en þeir fara að
deila líkama sínum með öðrum.
Maður fær hlýtt í hjartað að sjá
hvað foreldrasamband getur verið
náið, ekki bara hvað unglingana
varðar heldur líka mæðgur eða
feðga á fullorðinsaldri. Þetta
traust og að deila reynslu sín á
milli er fallegt, enda þarf kynlíf
ekki að vera grafalvarlegt mál.
Sem foreldri skil ég að foreldrar
vilji passa upp á unglingana sína
en það er dýrmætt ef maður getur
leyft umræðunni að vera stundum
kjánaleg og fyndin, deilt reynslu-
sögum og hlegið með,“ segir Saga.
Á vefsíðunni losti.is er að finna
vefverslun, fræðslu, upplýsingar
um næstu námskeið, veftímarit og
margt f leira.
„Í veftímaritinu ræður erótíkin
ríkjum. Þegar ég var með kynn-
ingar fyrir ungar stelpur fékk ég
svo oft spurningar um klám. Ég
vildi því hvetja fólk til að velja
klámefni sem er gert með sam-
þykki allra en líka erótík í sögu-
formi. Erótískar sögur eru tól sem
er hægt að skella í heyrnartólin til
að örva heilann og sjá fyrir hug-
skotssjónum í stað þess að grípa
bara tölvuna í leit að klámi. Þetta
eru sögur úr ýmsum áttum, bæði
lífsreynslusögur og fantasíur,
og margt af því fáum við sent og
erum mjög þakklát fyrir. Losti er
því margt f leira en kynlífstækja-
verslun, því við komum víða við
og vöndum okkur í hvívetna,“
segir Saga. n
Losti.is er í Borgartúni 3 og á
Laugavegi 51. Sími 546 0666. Sjá
vefverslun Losta.is og margt fleira
á losti.is.
Saga stingur
upp á fallegum
hring eða háls-
meni í konu-
dagsgjöf en
skartgripirnir
eru í raun kraft-
miklir titrarar
í dulargervi. Í
Losta.is fást
einnig kyn-
þokkafullar ilm-
tegundir í úrvali
að ógleymdum
kynlífstækjum
við allra hæfi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
2 kynningarblað 18. febrúar 2023 LAUGARDAGURUnaðsvörUr