Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 28
Stór rannsókn sem gerð var
á kynhneigð eldri kvenna og
karla í Noregi, Danmörku,
Belgíu og Portúgal árið 2020
sýnir að ef fólk stundar oft
kynlíf þegar það er á yngri
árum fylgir það því áfram til
efri ára.
elin@frettabladid.is
Rannsóknin var byggð á svörum
fólks á aldrinum 60-75 ára sem lýsti
kynlífi sínu í spurningalista. Það
mikilvægasta fyrir gott kynlíf hjá
eldra fólki er að hafa gott, jákvætt
og heiðarlegt viðhorf til eigin
kynhneigðar. Það er sömuleiðis
nauðsynlegt að vera meðvitaður
um að gott kynlíf sé mikilvægt fyrir
sambandið og andlega líðan. Einn
rannsakenda, Nantje Fischer, segir
að öldrun geti haft áhrif á kynlífið
en ekki endilega á neikvæðan hátt.
„Ef þér finnst þú hafa tilfinninga-
og kynferðislega nálægð með maka
þínum eru meiri líkur á að þú sért
sátt/ur við kynlífið,“ segir hún. „Ef
hjónin hafa mismunandi mikinn
áhuga á kynlífi getur það leitt til
þess að þau stundi það síður. Þá
upplifa þau líka minni tilfinninga-
lega nánd. Þótt eldra fólk stundi
kynlíf sjaldan táknar það ekki
minni gæði,“ segir hún.
Jákvætt viðhorf
Það eru ekki margar rannsóknir til
um kynlíf hjá eldra fólki. Þær sem
til eru koma flestar frá Banda-
ríkjunum. Þess vegna þykir þessi
evrópska rannsókn þýðingarmikil.
Nantje segir að í upphafi hafi
verið talið að nokkur munur væri
á þáttum sem tengjast kynlífi, til
dæmis á Norðurlöndum og S-Evr-
ópu. Í ljós kom að niðurstöður eru
mjög svipaðar. Jákvætt viðhorf til
kynlífs var eins í öllum löndum.
Reyndar hafa portúgalskir
karlmenn oftar samfarir en þeir
sem búa norðar í álfunni, eða um
tvisvar til þrisvar í viku. Það er
mun oftar en í hinum löndunum
þar sem talan var tvisvar til þrisvar
í mánuði. Það kom því ekki á óvart
að portúgalskir karlar eru ánægð-
astir allra karla með kynlíf sitt.
Það var nokkur munur á þátt-
töku í rannsókninni eftir löndum.
Í Noregi samþykktu 68% að vera
með en aðeins fjórðungur í Portú-
gal.
Bæði áhugi á kynlífi og hreyf-
ingu minnkar eftir því sem fólk
eldist. Oft metur fólk aðra þætti
sambúðar í meira mæli en kynlíf.
Að kúra, snerta og knúsa getur
verið mikilvægara en samfarir. Að
finna fyrir tilfinningalegri nálægð
í sambandi er lykilatriði í því að
eiga gott samlíf sem eldri mann-
eskja. Rannsakendur vita þó ekki
hvort góð heilsa leiði til meira kyn-
lífs eða hvort mikið kynlíf leiði til
góðrar heilsu. Rannsóknir hafa þó
sýnt að þetta tvennt geti vel farið
saman.
Orðrómur er yfirleitt á þann veg
að ekkert kynlíf sé hjá ömmum og
öfum. Það kom vísindamönnum
sem unnu þessa rannsókn því
nokkur á óvart hversu mikið kynlíf
fólk stundar á efri árum. Yfir 90
prósent norskra karla á aldrinum
60-75 ára stunda kynlíf reglulega
og sama á við um 75% kvenna.
Margir stunda sjálfsfróun og hafa
nokkuð oft samfarir. Í Portúgal
voru hins vegar fáir sem viður-
kenndu að hafa fróað sér eftir því
sem fram kom í rannsókninni.
Greinin var birt á forskning.no.
Kynferðislega virk
„Allt lífið er mikilvægt að halda
tengslum og varðveita ást og nánd,
það er ekki bara á yngri árum,“
segir Bente Træen, prófessor í
heilsusálfræði við Óslóarháskóla.
Hún hefur unnið að stóru rann-
sóknarverkefni í nokkur ár um
kynlíf eldri borgara. „Rannsókn
okkar sýnir að yfirgnæfandi meiri-
hluti kvenna og karla yfir 65 ára
eru kynferðislega virk og ánægð.
Við sjáum líka skýr jákvæð tengsl
á milli kynlífs og lífsánægju,“ segir
hún og bætir við að margar rann-
sóknir hafa verið gerðar á kynheil-
brigði en minna hefur verið gert
af því að skoða sálfræðiþáttinn í
nánum samböndum. Hvers vegna
þjást fleiri konur en karlar af
þunglyndi? Rannsóknir sýna að
þunglyndar konur hafa oft fórn-
fúsa hegðun og tala ekki um óskir
sínar og þarfir gagnvart maka
sínum. Þær þagga sjálfar sig niður
og segja ekki frá eigin tilfinningum
og hugsunum en með því eykst
hættan á þunglyndi,“ segir hún og
bætir við: „Leyndinni er ætlað að
skapa sátt í samböndum en virkar
alveg öfugt og býr til sambands-
leysi og fjarlægð.“
Bente segir að þær konur sem
ólust upp á þeim tímum þegar
jafnrétti var ekki til staðar og
þrengri sýn á kynhneigð kvenna,
tala síður um kynferðislegar
langanir sínar og þarfir en síðari
kynslóðir. „Öll umræða um kyn-
hneigð er orðin opin en það er afar
mikilvægt fyrir fólk til að átta sig á
eigin sjálfsmynd,“ segir hún.
„Í rannsóknum okkar sjáum
við að kynlífsáhugi minnkar með
hækkandi aldri. Ristruflanir hjá
körlum geta haft áhrif. Annar
hver karl eldri en 65 ára glímir við
ristruflanir sem skaðar sjálfs-
mynd þeirra,“ segir hún. „Hins
vegar fundum við að hjón urðu oft
ástfangnari með aldrinum og þau
verja meiri tíma saman þegar þau
hætta að vinna. Það getur auð-
veldað samskipti þeirra og þar eru
kynferðislegar þarfir meðtaldar.
Eldri menn eiga auðveldara með
að skilja og bregðast við óskum
konunnar,“ segir Bente.
„Rannsóknin sýnir að eldri karl-
menn sem upplifa tilfinningalega
nálægð við maka sinn eru ánægðari
með kynlífið,“ segir hún en greinina
má lesa á apollon.uio.no. n
Amma og afi stunda líka kynlíf
Að finna fyrir tilfinningalegri nálægð í sambandi er lykilatriði í því að eiga gott samlíf sem eldri manneskja.
fréttablaðið/GEttY
Indíana Rós Ægisdóttir kyn-
fræðingur hefur starfað við
kynfræðslu frá árinu 2016.
Hún fer með fyrirlestra í
skóla og félagsmiðstöðvar
en býður einnig upp á kyn-
fræðslu fyrir foreldra, fag-
fólk og vinahópa, til dæmis í
gæsunum og steggjunum.
sandraagudrun@frettabladid.is
Indíana segir að ekki sé síður
mikilvægt að fræða fullorðið fólk
en unglinga um kynlíf og kyn-
heilbrigði. Í fyrirlestrum sínum
fræðir hún oft kennara og foreldra
unglinga um hvernig best er að eiga
samtal um kynlíf við krakkana.
„Fullorðna fólkið er oft með for-
dóma og hræðslu gagnvart ýmsum
málum sem snúa að kynheilbrigði,
sem ég held að myndi snarbatna
ef allir fengju almennilega kyn-
fræðslu,“ segir Indíana.
„Fólk er oft hrætt við hluti sem
það skilur ekki, til dæmis varðandi
ýmsa kynhegðun eða jafnvel kyn-
ferðisleg samskipti á netinu. Ef það
fær ekki góða kynfræðslu sjálft, þá
er skiljanlegt að það eigi erfitt með
að taka þetta samtal við börnin sín
og ungmenni í kringum sig.“
Indíana segir að sem dæmi þá séu
ýmis orð tengd hinseginleikanum
sem fólk kann oft ekki alveg að nota
og er því feimið við það.
„Fólk er hrætt við að gera mistök.
Flestir sem ég hitti vilja gera betur
en vantar stuðning og fræðslu til
þess,“ segir hún með áherslu.
Kynfræðsla misjöfn milli skóla
Aðalstarf Indíönu er að halda fyrir-
lestra í skólum og fyrir fagfólk en
hún kennir auk þess valáfanga í
Grunnskólanum í Þorlákshöfn og í
Hveragerði. Hún var ung þegar hún
ákvað að verða kynfræðingur.
„Ég var 17 ára. Ég hafði mikinn
áhuga á kynheilbrigði og kynlífi og
öllu sem því tengdist. Það var svo
mamma mín sem fann Siggu Dögg
og benti mér á að hægt væri að læra
kynfræði. Ég kláraði sálfræði árið
2016 og fór svo til Bandaríkjanna og
tók master í kynfræði og útskrifað-
ist þaðan árið 2020, síðan þá hef ég
starfað við kynfræðslu,“ segir hún.
Indíana segir að kynfræðsla sé
mjög misjöfn í hverjum skóla fyrir
sig. Sumir fari bara eftir aðalnám-
skrá og skólahjúkrunarfræðingar
komi inn í ákveðna bekki. En ann-
ars staðar séu kennarar eða skóla-
stjórar sem brenna fyrir að standa
vel að fræðslunni.
„Það eru kannski helst þeir skólar
sem standa sig vel sem bóka mig í
fræðslu svo ég fæ svolítið skekkta
mynd af ástandinu. En ég lendi
líka alveg í því að heyra: „Jæja, þá
erum við búin með kynfræðsluna.“
Bara af því ég var fengin inn í
klukkutíma. Ég lít á mína fræðslu
sem algjöra viðbót við fræðsluna
sem á að vera veitt í skólunum. Ég
lít svo á að ég komi til að valdefla
kennarana, svo þeir öðlist öryggi til
að sjá um þetta sjálfir og geti svarað
spurningum unglinganna.“
Spurningarnar sem Indíana fær
helst frá unglingum snúa að því
hvað telst eðlilegt.
„Þau þrá að vita hvað er eðli-
legt og fá samþykki fyrir því
að þau séu eðlileg. Ég fær oft
spurninguna: „Hvað hefur þú
sofið hjá mörgum?“ En ég svara
aldrei neinum persónulegum
spurningum um mig og mitt kyn-
líf, enda ekkert fræðslugildi í því.
Þau vilja heldur ekki endilega vita
það, þau eru kannski bara að leita
að því hvaða tala er eðlileg. En það
er auðvitað engin ein eðlileg tala
þar,“ segir hún.
„Ég er líka oft spurð hver sé
meðal typpastærð. Krakkarnir
hafa miklar áhyggjur af því hvort
þau eru eðlileg eða ekki og vilja fá
staðfestingu á því.“
Forvitni um hjálpartæki
Umræða um kynlífshjálpartæki
er ekki hluti af þeirri kynfræðslu
sem Indíana veitir þegar hún fer
í skólaheimsóknir. Hún segist
aftur á móti fá gríðarlega margar
spurningar um tækin.
„Krakkarnir eru forvitnir og
vilja kannski kaupa tæki en vita
ekki hvernig þau eiga að snúa sér
í því, vilja jafnvel spyrja foreldra
sína um tæki en þora ekki að
spyrja. Ég hvet foreldra og for-
ráðamenn til að ræða við börnin
sín um þetta. Jafnvel gefa þeim
tæki í afmælisgjöf eða pening til
að kaupa tæki,“ segir hún.
„Ég held að foreldrar séu
almennt feimnir við að ræða þessi
mál við börnin sín og hiki við það.
En kynlífstæki leiða krakkana
yfirleitt ekki út í einhverja óæski-
lega kynhegðun. Þau eru bara
partur af sjálfsfróun og sjálfsfróun
er ein öruggasta kynlífshegðunin
og gott tól til að læra á sjálft sig.“
Indíana bætir að lokum við að
hægt sé að bóka fræðslu á indian-
aros6@gmail.com eða á heima-
síðu hennar indianaros.is. n
Sjálfsfróun
ein öruggasta
kynlífshegðunin
Indíana Rós Ægisdóttir fræðir börn og fullorðna um kynheilbrigði.
MYND/aðSEND
4 kynningarblað 18. febrúar 2023 LAUGARDAGURunAðSvörur