Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 31
Hjá Nóa Síríus njótum við þeirra forréttinda að vinna með margar af uppáhalds vörum þjóðarinnar.
Nú þurfum við að bæta í hópinn. Vegna vaxandi umsvifa leitum við að öflugu, ábyrgu og framsýnu starfsfólki
sem hefur drifkraft til að hrinda verkefnum í framkvæmd, ásamt brennandi áhuga á því að ná árangri í starfi.
Um er að ræða ölbreytt störf í alþjóðlegu vinnuumhverfi þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum,
vellíðan og vexti starfsmanna. Við erum samheldinn hópur framúrskarandi starfsmanna með ölbreytta
reynslu og menntun. Við höfum pláss fyrir fleiri og hver veit - kannski erum við að leita að þér?
Ert þú til í sætt samstarf?
Rafvirki
Hlutverk rafvirkja er að styðja við þá miklu
uppbyggingu sem á sér stað innan Nóa
Síríus, tryggja virkni véla og tækja, auk
framþróunar tæknibúnaðar og húsnæðis.
Þar reynir á nákvæmni, útsjónarsemi og
sjálfstæði í vinnubrögðum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Innleiðing á nýjum tækjabúnaði og
framleiðslulínum.
• Fyrirbyggjandi viðhald og rekstur á
framleiðslubúnaði.
• Bilanagreining á framleiðslubúnaði.
• Almenn viðgerðarvinna.
• Samskipti við framleiðsludeildir.
Sölufulltrúi
Sölufulltrúi tekur virkan þátt í sölustarfi,
framkvæmd söluaðgerða og viðhaldi góðra
tengsla og þjónustu við verslanir í samráði
við sölustjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Sala og uppbygging viðskiptatengsla.
• Virk þátttaka í sölustarfi og skráning
pantana í verslunum.
• Uppröðun og eftirlit með vörum
fyrirtækisins í verslunum.
• Svara fyrirspurnum viðskiptavina.
• Vörukynningar og söluherferðir í
samráði við sölustjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 5.mars 2023. Við viljum fá sem
fjölbreyttastar umsóknir og hvetjum öll áhugasöm til að sækja um.
Nánari upplýsingar á www.noi.is/mannaudur
Við höfum verið svo lánsöm að hafa fengið að vera hluti af sætum stundum þjóðarinnar í rúmlega 100 ár og það er
metnaðarmál okkar að endurgjalda það traust með því að sýna ábyrgð í starfsemi okkar og gefa til baka til samfélagsins.
Starfsmaður í vöruhúsi
Starfsmaður í vöruhúsi sér um tiltekt pantana
til viðskiptavina og móttöku á vörum með það
að markmiði að ná framúrskarandi hagkvæmni
og þjónustu í vörugeymslu og flutningum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Þjónusta og afgreiðsla viðskiptavina.
• Tiltekt á pöntunum til viðskiptavina.
• Móttaka á vörum úr framleiðslu og
erlendis frá.
• Skráning í birgðakerfi vöruhúss.
• Móttaka og losun gáma.
Yfirmaður
vörustýringar
Nýtt starf sem felur í sér yfirumsjón og
ábyrgð á allri aðfangakeðjunni s.s. rekstur
vöruhúsa, samþættingu ytri aðila aðfanga-
keðjunnar, innkaup og dreifingu á vörum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Yfirumsjón með flutningum og
dreifingu á vörum Nóa Síríus.
• Yfirumsjón með daglegum rekstri
vöruhúsa Nóa Síríus.
• Yfirumsjón með innkaupum, móttöku
og geymslu á aðföngum.
• Samþætting á starfi ytri aðila aðfanga-
keðjunnar.
• Val á flutningsaðilum og gerð
verðsamninga.
• Áætlana- og skýrslugerð.
Sérfræðingur í
viðskiptagreiningum
Um er að ræða nýtt starf sem felur í sér
þátttöku í frekari uppbyggingu á nýju
verklagi við greiningar og eftirlit ásamt
innleiðingu á nýjum stjórnendaskýrslum
sem og aðkomu að áætlanagerð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Aðkoma að innleiðingu á nýju verklagi
við stjórnendaskýrslur, árangurs-
mælingar og greiningar til að miðla
lykilupplýsingum úr rekstri.
• Þátttaka í uppbyggingu á greiningum
söluleiða og tekjustýringu.
• Mánaðarlegar stjórnendaskýrslur ásamt
greiningum og eftirliti með lykil
árangursmælikvörðum.
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði
árangursmælinga og greininga þvert á
fyrirtækið.
Kerfisstjóri
Starf kerfisstjóra er nýtt starf. Meðal helstu
hlutverka er að styðja við þá miklu uppbyggingu
á tæknilegum innviðum sem Nói Síríus
vinnur að til að auka sjálfvirkni í framleiðslu-
ferlum fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Uppsetning og rekstur á miðlægum
búnaði og upplýsingatæknilausnum.
• Rekstur Microsoft kerfa þar sem
staðbundnum- og skýjalausnum er
blandað saman.
• Kerfisumsjón, s.s. bilanagreiningar og
úrbætur.
• Samskipti við þjónustuaðila og birgja.
• Kröfugreining og hönnun tækniumhverfis
sem styður við kerfis- og vinnuferla.
• Val á lausnum í takt við tækniþróun á
hverjum tíma.
• Þátttaka í þróunar- og þjónustu-
verkefnum.